Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Blaðsíða 29
ALBERT ERLINGSSON
Frá alþjódamóti I. C. F.
bylgjast hæðótt landslag á báða vegu, sem
smá hækkar allt upp í 400—500 m. Þar
uppi er dásamleg útsýn niður og inn yfir
vatnið. Við sáum það bæði að degi til og
í myrkri, þegar öll ljósadýrðin blasti við.
Svissneskur kunningi okkar var óþreyt-
andi á að aka með okkur um nágrennið
og sýna okkur marga staði, sem við ann-
ars hefðum ekki átt kost á að sjá. Við
hjónin erum hálfgerðir flækingar og höf-
um verið eða komið til ýmissa borga og
staða í Evrópu, en Sviss og Zúrich er „en
stor oplevelse", eins og danskurinn segir.
í Zurich-vatni og ánni Limmat, sem úr
því rennur, er eitthvað af fiski og sáum
við menn oft að veiðum á stöng, og sýnd-
FJÓRÐA HEIMSMÓT I.C.F. var
haldið í ár í Zúrich í Sviss, dagana 5.—10.
september. Svissneska kastsambandið sá
um það, og valdi til þess einhverja feg-
urstu borgina í því fagra landi.
Borgin liggur við norð-vestur enda
Zúrich-vatnsins, beggja megin árinnar,
sem úr því rennur. Upp frá borginni
Þótt vandldtustu veiðimenn
varla kunni að meta hann,
ég hygg það muni sannast senn
að sérvitringar finnist enn,
sem afla fisksins aðeins til að éta hann.
DVERGUR.
Veisimaðurinn
19