Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Page 15

Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Page 15
William Hogarth Esqv. í Aberdeen á Skot- landi og hans lögerfingjum fyrir umsamið kaupverð 1050 rd rm. Eitt þúsund og fimmtíu ríkisdali ríkismyntar, sem kaup- andi hefír látið borga mér út í hönd og sem fyrir þessu hérmeð kvitterast. Gengur því áðumefndur kaupandi William Hogarth Esqv. eða sá sem hann tilvísar, og hans erfingjar að kaupi þessu þegar þann 1. júní 1861, og má hann eða þeir upp þaðan ár hvert á því tiltekna tíma- bili 1. júní til 31. ágúst og í næði nota þau seldu veiðiréttindi upp á hvern þann lög- legan hátt sem hann best vill og getur, án nokkurrar tálmunar af minni eða minna hálfu,- Þessu kaupi fylgir það, að William Hogarth Esqv. má nota jarðarinnar Kald- árhöfða land án frekara endurgjalds þá umgetnu 3 mánuði til að leggja á veiðar- færi sín og báta og færa sér veiðina þar í nyt, einnig er honum kauplaust heimilt að byggja hús á jarðarinnar lóð, er hann þarfnast til að geta hagnýtt sér veiðina sem og að beita hestum sínum, þeim er hann hefur meðferðis, í landi jarðarinnar Kald- árhöfða, einnig án frekara endurgjalds. Þessu til staðfestingar er nafn mitt og I Aðhaldinu. I þessum uppsprett- ulindum hlóðu Skotarnir krœr og geymdu fiskinn lifandi í þeim. Ljósm. Arni Erlingsson. innsigli, sem og undirskriftir tveggja vit- undarvotta. Staddur á Eyrarbakka þann 24. nóvem- ber 1860. Finnur Finnsson (handsalaði nafni) Til vitundar (L.S.) M. Gíslason Vigfús — Lesið á manntalsþing------að Stóruborg þann 3. júní 1861 og innfært undir nr. 17. Th. Guðmundsson Talið er að nokkur saga sé á bak við þessa sölu veiðiréttarins. Eg ætla þó ekki að fara öllu nánar út í það mál hér. Vitað er að Guðmundur Thorgrímsson faktor á Eyr- arbakka var milligöngumaður fyrir Hr. Hogarth varðandi þessi kaup. Heimild finnst og fyrir því að Hr. Hogarth hafi að fyrra bragði boðið 1000 ríkisdali, virðist hann hafa boðið það hátt að hann hafi talið öruggt að fá réttinn keyptan, a.m.k. var upphæðin sem samið var um, 1050 ríkis- dalir, svo mikil að trúlega hefði jörðin öll VEIÐIMAÐURINN 11

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.