Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Blaðsíða 29
hverjum mönnum, sem keyra um landið á
tankbíl og bjóða bændum offjár fyrir góðar
hrygnur, og bændur gera sér lítið fyrir,
draga á ána og hirða eins margar hrygnur
og þeir geta náð, en skila öllum hængunum
aftur til síns heima!
Svona eru sögurnar, sem berast okkur
til eyrna, og því spyrjum við, er þetta allt
með felldu, erum við ekki að ganga allt of
langt í því sem kallast grisjun ánna, og hver
getur sagt til um það, hvað hver á þolir
mikla blóðtöku?
Og þá erum við komnir að kjarna máls-
ins, og við bjóðum velkominn, til þess að
upplýsa okkur leikmennina um þennan
málaflokk, Tuma Tómasson, ílskifræðing.
VERNDUM FISKSTOFNA
í ÁM OG VÖTNUM LANDSINS
Með sigurbros á vör heldur
Guðmundur B. Olafsson á30
punda hcengnum, sem hann
veiddi íDalsárósi í Víðidalsá
10. ágúst ífyrrasumar, enda
engin furða, því að þetta var
stcersti lax á stöng hér á
landi árið 1986. Eins og sagt
var frá í síðasta hefti Veiði-
mannsins tók viðureignin
hvorki meira né minna en 4
klst. og 40 mtn. og endaði
niðri á Skipstjórabreiðu, um
300 m neðan við Dalsárós-
inn. Þessi 105 sm langi bolti
tók rauða Frances nr. 10.
Eins og sjá má á myndinni er
hann leginn og hefurþvíver-
ið eitthvað yfir 30 pund ný-
genginn. Ljósm. NN.
VEIÐIMAÐURINN
25