Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Blaðsíða 59
Nýkjörin stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur og starfslið, f.v. Ólafur Ólafsson, meðstjórnandi, Guð-
laugur Bergmann, meðstjórnandi, Rósar Eggertsson, ritari, HannaMarta Vigfúsdóttir, skrifstofumaður,
Jón G. Baldvinsson, formaður, Friðrik D. Stefánsson, framkvæmdastjóri, Friðrik Þ. Stefánsson, vara-
formaður, Halldór Þórðarson, gjaldkeri, og Ólafur H. Ólafsson, meðstjórnandi. Ljósmyndastofa Þóris.
samningum við veiðiréttareigendur um
þær ár, sem félagið er með á leigu.
Allfjörugar umræður urðu um skýrslur
og reikninga og tóku margir til máls.
Samþykkt var, að félagsgjald skyldi vera
kr. 1800 og inntökugjald kr. 7000.
Þá fór fram stjórnarkjör. Ólafur G.
Karlsson lýsti því yfir, að hann gæfí ekki
kost á sér lengur sem formaður félagsins.
Hann hafði gegnt því starfí í fjögur ár, en
alls setið 10 ár í stjórn. Ólafi voru færðar
þakkir fyrir mikið og farsælt starf, og tóku
fundarmenn undir þau ummæli með dynj-
andi lófaklappi. Einnig var fráfarandi rit-
ara, Karli Guðmundssyni, þökkuð stjórn-
arstörf í 14 ár.
Jón G. Baldvinsson vareinrómakjörinn
formaður félagsins næsta starfsár.
Til varaformanns voru tilnefndir Ólafur
H. Ólafsson og Friðrik Þ. Stefánsson. At-
kvæði féllu þannig, að Friðrik var kosinn
varaformaður til næstu tveggja ára með 89
atkvæðum, en Ólafur hlaut 79 atkvæði,
tveir seðlar auðir.
Rósar Eggertsson var einróma kosinn
ritari til tveggja ára.
Þá skyldi kjósa meðstjórnanda til
tveggja ára, og var stungið upp á Gretti
Gunnlaugssyni og Ólafi H. Ólafssyni.
Hlaut Ólafur 89 atkvæði, en Grettir 75
atkvæði, fimm seðlar auðir.
Einnig var kosinn meðstjórnandi til eins
árs og tilnefndir Jón Karl Ólafsson og
Guðlaugur Bergmann. Hlaut Guðlaugur
kosningu með 103 atkvæðum, en Jón Karl
fékk 60 atkvæði, sex seðlar auðir og ógildir.
VEIÐIMAÐURINN
55