Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Blaðsíða 63
Glæsileg
árshátíð SVFR
Árshátíð Stangaveiðifélags Reykjavíkur,
sú 43. í röðinni, var haldin í Súlnasal Hótel
Sögu 6. febrúar s.l. Var þetta hin glæsileg-
asta samkoma.
Ólafur H. Ólafsson, formaður skemmti-
nefndar, setti hátíðina, en síðan tók Ragnar
Halldórsson við veizlustjórn. Þá flutti Jón
G. Baldvinsson, formaður SVFR, ávarp.
Steingrímur Hermannsson og frú voru
meðal heiðursgesta. Flutti Steingrímur
snjalla ræðu, sem hlaut mjög góðar undir-
tektir.
Steingrímur Hermannsson flutti rceðu. s-ljósmyndir.
Næst fór fram afhending verðlauna
fyrir stærstu laxana, sem veiddust á vatna-
svæðum SVFR á s.l. sumri, og stjórnaði
Rósar Eggertsson, formaður bikarnefndar,
þeirri athöfn.
Skemmtiatriði önnuðust Ríó-tríóið,
Laddi og félagar og hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar.
í vísubotnakeppni var lagður fram þessi
fyrri partur, sem prentaður var á matseðil-
inn og gerður af Rafni Hafnfjörð:
/ borgarinnar bláu strengjum
bregðum við á leik.
Fjöldi botna barst dómnefndinni, sém
úrskurðaði, að Sveinn Snæland bæri sigur
úr býtum, en hann botnaði á þessa leið:
Hyljina með flugu flengjum,
fjaðrar stöngin keik.
Um miðnætti var dregið í happdrætti
með fjölda góðra vinninga, en síðan var
dansinn stiginn til kl. 3.
cV
Ingvi Hrafn fékk
hetjuverðlaun
Á árshátíð SVFR í febrúar voru veitt í
þriðja sinn svokölluð „Footloose“ verð-
laun, en þau hlýtur sá veiðimaður, sem
öðrum fremur hefur sýnt sérstakt vilja-
þrek með því að fara til veiða þrátt fyrir
líkamlega erfíðleika.
Fyrir tveim árum fékk Ólafur H. Ólafs-
son verðlaunin, en hann mætti á árbakkan-
um með annan gangliminn í gipsi og veiddi
eins og ekkert væri. I fyrrafékk Steingrím-
ur Hermannsson þessi verðlaun. Hann
hafði líka stundað veiðarnar í gipsi.
Það var Ingvi Hrafn Jónsson, sem
hreppti „Footloose“ verðlaunin að þessu
sinni. Þegar leið að veiðitíma í fyrra, hafði
Ingvi Hrafn legið á sjúkrahúsi vikum sam-
an, en lét það ekki aftra sér frá að fara í
Norðurá í byrjun júní, eins og ráðgert hafði
verið, þó að hann væri þá engan veginn
orðinn heill heilsu.
Verðlaungripurinn er geysistór fluga,
sem Jónas Jónasson hnýtir.
VEIÐIMAÐURINN
59