Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Qupperneq 17

Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Qupperneq 17
golf og gert mikið af því löngu áður en íþróttin varð svo vinsæl sem hún síðar varð. Ekki var rekstur fyrirtækjanna alltaf dans á rósum en alltaf tókst með gætni að yfirstíga alla erfiðleika (sbr. Aberdeen Daily Journal, 27. júlí 1903). Utlendingar stunda veiðina Eftir að veiðirétturinn á jörð Kaldár- höfða var kominn í eigu Hr. Hogarths þá hefst þar stangaveiði, sportveiði. Hann byggði allveglegt timburhús upp af svo- nefndum Borgardal sem er miðja vegu milli vatnanna.* Það þótti í frásögur fær- andi að ekki var þar torf og grjót í veggjum eins og nær alls staðar tíðkaðist þá á bæj- um. Spurningin er hvort þetta hafi ekki verið fyrsta veiðihúsið (þ.e. í merkingunni aðsetur sportveiðimanna) sem reist hafi verið hér á landi. A hverju sumri komu menn hingað til lands til að stunda veiði þarna. Auk þess má ætla að Hr. Hogarth hafi einnig sent sérstakan umsjónarmann. Til þess bendir frétt í Þjóðólfi frá 18. júní 1862 (bls. 105). Þar er getið komu póstskipsins frá Kaup- mannahöfn þann 16. júní, en þar er meðal farþega maður að nafni Whyte frá Aber- deen og þess getið að hann eigi að „... annast um Silungaveiði fyrir Kaldárhöfða- landi í sumar, fyrir Hogarth húsbónda sinn.“ Annar farþegi með skipinu í þessari *Ekki hefur mér tekist að tímasetja nákvæmlega hvenær húsið var byggt, en eftirfarandi er þó ljóst: Árni Jónsson bóndi í Alviðru hafði beðið Kolbein Guðmundsson fræðimann og fyrrum bónda á Ulfljótsvatni að veita upplýsingar um veiði í Sogi og Úlfljótsvatni. I tilefni af því sendi Kolbeinn Áma bréf um þetta, en hann var þá orðinn svo heilsulítill að hann gat ekki skrifað sjálfur en fékk Guð- mund son sinn til að skrifa fyrir sig. Þetta var árið 1964. Varð- veist hefur afrit úr þessu bréfi og er frásögn mín að hluta byggð á því afriti, en þar segir m.a.: „Eftir að Englendingamir komu hófst raunveruleg stangaveiði. Þeir byggðu allveglegt timburhús í svo- kölluðum Borgardal sem er miðjavegu milli vatnanna.“ Ekki er þetta tímasett nánar en eins og fram kemur í greininni, sést að þegar Sir Charles H. J. Anderson kemur þar þann 12. ágúst 1863, þá er húsið þegar risið. Jón Ögmundsson með26punda urriðann, sem hann veiddi 26. ágúst 1939. Ljósm. Karl Guðmundsson. ferð var J. Ross Browne frá Kaliforníu. Þeir sem lesið hafa bók hans Islandsferð J. Ross Browne 1862 (1976, 26) muna kannski eftir fjörlegri lýsingu á því þegar skipið kom við í Skotlandi á leið til Islands en þar komu um borð 5 farþegar. Hann kallar þá „tískuferðalanga“ án þess að nefna þá með nafni, en þegar athugað er hverjir voru farþegar með skipinu í þessari ferð þá koma tengslin við Kaldárhöfða- veiðina í Ijós. Síðar í bókinni (bls. 72-76) gerir Browne góðlátlegt grín að hinum mikla útbúnaði þeirra, segir þá m.a. hafa haft byssur, veiðistengur og mikið af vín- föngum. Það er athyglisvert að Browne nefnir að þeir hafi haft flugnanet með sér VEIÐIMAÐURINN 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.