Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Síða 23
Að veiðum neðan við Kerið, Niel-
sen lengst t.h., á miðbryggjunni,
en þar veiddist aðallega punds-
bleikja. Við neðstu bryggjuna var
hún smcerri. Efsta bryggjan, sem
var náttúrleg, sést ekki, en þar
veiddist stóra bleikjan, algeng
stcerð 5-6pund. Tjaldið er áStrák-
aflöt, en þar tjölduðu veiðigestir
oft. Ljósm. Oline Lefolii? Þjóðminjasafn íslands.
staðir urðu fljótt vinsælir og fjölsóttir, sér-
staklega eftir að Ljósifoss var virkjaður og
staðurinn komst í vegasamband. Yfírborð
Ulfljótsvatns hækkaði mikið við þá virkj-
un og þá fór mikið land undir vatn og veiði-
aðstæður spilltust nokkuð að áliti heima-
manna. Þarna var þó mjög mikið veitt
þangað til efra Sogið var virkjað en þá
hvarf vatn úr farvegi þess og veiðiskapur
lagðist af.
Þó að Mr. Reynolds og Mr. Waugham
brúarsmiðir hafí bleytt línu hér um árið
þegar Ölfusárbrúin var byggð og Adam
Hoffritz hafí tekið að veiða á stöng á
kreppuárunum og þar með verið braut-
ryðjandi stangaveiði á Selfossi, þá tel ég
með því sem hér hefur verið rakið að um-
talsverð stangaveiði hafí átt sér stað hér
austanfjalls fyrir þeirra tíð. Enda þótt ég
hafi sett upphafsárið við 1860 eða 1861, þá
er ekki þarmeð sagt að Skotarnir hafí ekki
fyrir þá tíð verið þegar farnir að renna fyrir
físk. Reyndar er sögn um að þeir hafí fyrst
komið þar um eða uppúr 1850 og ef það er
rétt, eru þeir þá ekki með þeim fyrstu sem
veiddu á stöng hér á landi? Einnig má geta
þess að laust fyrir 1950 fannst á þessum
slóðum við Kaldárhöfða fomaldarkuml
sem talið er vera frá fyrri hluta tíundu ald-
ar. Þar í haugfénu fannst m.a. öngull sem
án efa var veiðitæki haugbúans. Þannig má
sjá að snemma hefur veiðiskapur tíðkast
þarna (sbr. Kristján Eldjárn: 1956,65-70).
Að lokum ætla ég að geta greinar sem ég
rakst á nýlega í The Tourist in Iceland*
frá árinu 1892. Þar er að fínna á bls. 13
þrjár ferðaáætlanir sem útgefendumir telja
gerlegt fyrir ferðahópa að fylgja og þá að
sjálfsögðu á hestum. Ein þessara ferða er
ferð um Suðvesturland:
From Reykjavík via Reynivellir (there a
fine salmon river). Hestur, Reykholt
(historical place - Snorri Sturluson - hot
springs), Kalmanstunga (Surtshellir, the
greatest cave in Iceland), Lake Arnarvatn
(best trout fishing), Þingvellir, Geysir
(Gullfoss, the grand waterfall), Laugar-
vatn, Efribrú (best fishing in Iceland, Sog)
and back to Reykjavík, making this trip
in 15 days.
Spyrja má hvers vegna þeir félagar
nefna sérstaklega Efribrú og að veiðin í
Soginu sé sú besta á landinu. Svarið hlýtur
að felast í því að nokkurt veiðiorð hafí farið
af þessum veiðistöðum og að það hafí varla
*Ferðamálatímarit á ensku sem þeir Þorlákur O. Johnson og
Björn Jónsson ritstjóri ætluðu að hefja útgáfu á, en aðeins kom út
þetta eina hefti.
VEIÐIMAÐURINN
19