Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Qupperneq 50

Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Qupperneq 50
Grímsá komin á bók í desember s.l. kom út bókin „Grímsá, drottning laxveiðiánna“. Höfundar henn- ar eru Björn J. Blöndal og Guðmundur Guðjónsson. Þar með bætist Grímsá í flokk þeirra veiðivatna, sem um hafa verið skrifaðar sérstakar bækur, en áður hafði Björn gert ánni nokkur skil í „Vötnin ströng“ og reyndar víðar í bókum sínum. I þessari Grímsárbók er saman kominn mikill fróðleikur um ána. Björn J. Blöndal og Sigurður Fjeldsted frá Ferjukoti lýsa öllum veiðistöðum í Grímsá, og Sturla Guðbjarnarson í Fossatúni gerir Tunguá, þverá Grímsár, sömu skil. Þessir kaflar bókarinnar eru ágætir og geta án efa orðið gagnlegir þeim, sem þarna veiða. Lýsingin er krydduð með veiðisögum, sem lífga upp á ferðina með ánni. Einnig eru í bókinni fróðleg og skemmt- ileg viðtöl við Kristján Fjeldsted í Ferju- koti, Steingrím Hermannsson og Viðar Pétursson, sem allir veiddu í Grímsá árum saman. Ur þessum viðtölum má lesa ýmis- legt um sögu stangveiðinnar í ánni, en henni hefði þó mátt gera fyllri skil í bók- inni, þannig að heildarmynd fengist af henni frá fyrstu tíð. Það hlýtur að vera eitt af hlutverkum slíkra bóka. Þá eru stuttar frásagnir af veiðum ýmissa manna í ánni, einnig nokkuð af efni, sem áður hefur birzt í bókum Björns J. Blöndal, í Veiðimanninum og víðar, svo og kafli um félags- og ræktunarmál. Sá er megingallinn á þessari bók, að ekki hefur tekizt að skipa niður miklu og góðu efni svo að vel fari. Af þessum sökum verð- ur bókin ekki nógu aðgengileg lesandan- um, og er þá kannski ekki sízt slæmri byrj- un um að kenna, en strax í annarri máls- grein er leiðinleg meinloka, síðan koma frásagnir af slysförum og dauða, sem ekki geta talizt heppilegt upphaf á bók um fallega laxveiðiá, og þá kemur langur kafli, þar sem venjulegur lesandi hefur enga hugmynd um, hver sá er, sem segir frá. Fjölmargar prentvillur eru og til lýta. Bókin er 198 bls., með um 70 myndum, sem allar eru í svörtu og hvítu. Margar þeirra hafa prentazt illa og myndatextum er sums staðar áfátt. Aftast í bókinni eru veiðikort af Grímsá og Tunguá, sem Gunnar Bjarnason gerði og SVFR gaf út 1972, og voru þá árnar í bláum lit. Hér hefur litnum verið sleppt, og eru því kortin ekki nema svipur hjá sjón. Auk þess hafa nöfn hönnuðar og útgefanda verið afmáð, en tekið skal fram, að höfundar bókarinn- ar munu ekki eiga þar neinn hlut að máli. Utgefandi er Bókhlaðan. Virðist manni sem fullmikið hafl hér verið til sparað, bæði að því er tekur til útgáfukostnaðar og til þess tíma, er ætlaður var í lokafrágang verksins. M.Ó. 46 VEIÐIMAÐURINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.