Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2022, Blaðsíða 54

Læknablaðið - 01.07.2022, Blaðsíða 54
374 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 Fyrir síðustu alþingiskosningar bar öll- um flokkum sem buðu fram saman um að heilbrigðismálin væru efst á blaði. Skoðanakannarnir síðustu árin hafa leitt í ljós að almenningur í landinu setti þau í fyrsta sæti. Ekki minnkaði áherslan á þau mál í COVID-faraldrinum og afleiðingum hans. Um þetta var meðal annars kosið. En hvað svo? Nýr heilbrigðisráðherra var skipaður og öllum bar saman um að þar færi hinn mætasti maður. Hann þótti líka fara vel af stað. Fljótlega kvað hann upp úr með að styrkja þyrfti allar stoðir heilbrigðiskerf- isins, jafnt hið opinbera sem einkarekna. Var það í góðu samræmi við áherslur hans flokks sem gekk vel í kosningunum. Þar var ekki síst tekið fram að efla þyrfti heilbrigðisþjónustu á landsbyggð- inni. Ég held að flestum hafi þótt þetta mjög skynsamleg nálgun og bundu vonir við að nú yrði stefnubreyting. En hvað hefur síðan breyst? Ekki mik- ið enn sem komið er. Vandi Landspítala hefur verið í stöðugri umræðu og að sjálf- sögðu tekið mikinn tíma og orku. L I P R I R P E N N A R Hugleiðingar um heilbrigðismál Gizur Gottskálksson hjartalæknir En heilbrigðisþjónustan verður ekki löguð eingöngu á Landspítala þótt hann gegni mikilvægu hlutverki í kerfinu. Nýta þarf allar stoðir heilbrigðiskerfisins eins og reyndar hinn nýi ráðherra nefndi í upphafi. En á hverju stendur? Af einhverjum ástæðum hefur ekki verið samið við sjálfstætt starfandi sér- fræðinga í fjögur ár. Viðræður samninganefndar þeirra við Sjúkratryggingar Íslands hafa verið mála- myndaviðræður og lítill samningsvilji komið fram. Samningsleysið heldur því áfram og er farið að skaða starfsemina. Nýliðun er afar lítil og að óbreyttu mun þessi þjónusta dragast saman. Getur það verið stefna heilbrigðisyfir- valda? Til sjálfstætt starfandi sérfræðilækna eru um 500.000 komur á ári. Hvert eiga þessir sjúklingar að leita? Auka vanda Landspítala sem er ærinn fyrir? Að ein- hverju marki að leita til heilsugæslunnar? Heilsugæslan virðist ekki aflögufær. Víðast tekur daga og vikur að fá tíma þar. Sérfræðiþjónusta á landsbyggðinni er svo annar kapítuli. Hana þyrfti að bæta og auka. Setja þarf markmið um hvaða þjónustu skal veita í heimabyggð. Síðan að fjár- magna og byggja upp. Hingað til hefur verið nánast handahófskennt hvaða þjón- usta er veitt og hefur byggst á einstak- lingsframtaki frekar en opinberri stefnu. Það hefur ríkt skömmtunarkerfi til heil- brigðisstofnana og þegar leitað hefur verið eftir auknu fjármagni á rökstuddan hátt hefur því oftast verið synjað. Betra hefur þótt að senda sjúklinga til Reykjavíkur en að sinna því sem hægt er í heimabyggð. Nú er spurningin: Hver ræður? Ráðherra heilbrigðismála eða einhver í kerfinu? Þessi atriði sem ég hef hér nefnt eru í góðu samræmi við stefnu hans. Er ekki best að byrja að hrinda henni í framkvæmd?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.