Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2022, Blaðsíða 37

Læknablaðið - 01.07.2022, Blaðsíða 37
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 357 F R É T T I R „Sundið tók á. Það var hrikalegt og æðislegt á sama tíma. Það er ekki hægt að lýsa þessari reynslu öðruvísi. Mér tókst að synda yfir Ermarsundið, sem gerir aðrar áskoranir léttari í lífinu,“ segir Elsa Valsdóttir, skurðlæknir á kviðarhols- skurðdeild á Landspítala. Hún synti í boðsundssveitinni Bárunum með Jórunni Atladóttur sem einnig er ristilskurðlæknir á deildinni og fjórum öðrum þann 7. júní. Með þeim tveimur voru Bjarnþóra Eg- ilsdóttir, Harpa Leifsdóttir, Sigríður Lár- usdóttir og Guðmunda Elíasdóttir. „Við erum fimmta íslenska boðsundssveitin sem klárar,“ segir Elsa. Sundið tók þær 16 klukkustundir og 4 mínútur. „Við syntum 54 kílómetra en loftlína Ermarsundsins er 33 kílómetrar,“ segir hún. „Að synda yfir Ermarsundið gaf okkur þá tilfinningu að við getum hvað sem er. Það verður ekkert verkefni það stórt að ekki sé hægt að yfirstíga það,“ segir Elsa Valsdóttir, skurðlæknir „Við erum enn að jafna okkur. Höfum synt smá og hlaupið smá. Svona sund reynir minna á líkamann en hausinn. Hann er númer 1, 2 og 3,“ segir hún og lýsir ströngum reglum. Þær hafi ekki mátt hjálpast að eða snertast milli spretta og urðu að vera klukkustund hver ofan í í einu. Matsmaður hafi verið um borð sem skar úr um hvort sundið væri gilt. „Það þurfti sterkan vilja til að koma sér út í og halda sér ofan í 13-14 gráðu heitum sjónum í klukkutíma,“ segir Elsa. Passa þurfi að panikka ekki í svona erfiðum að- stæðum. „Við vorum að súpa sjó og hósta upp. Þetta var rosalega erfitt, skítkalt bæði í sjónum og í bátnum.“ Ölduhæðin hafi náð einum metra og aðstæður til sundsins svo erfiðar að tví- Persónulegur sigur í söltu Ermarsundi „Lykilatriði er að tryggja aftur traust í heilbrigðiskerfinu og auka öryggi sjúklinga og starfsmanna,“ segir Theó- dór Skúli Sigurðsson, formaður Félags sjúkrahúslækna. Hann er fulltrúi heil- brigðisstarfsfólks í hópi heilbrigðisráð- herra sem metur möguleika þess að afnema refsiábyrgð heilbrigðisstarfsfólks vegna atvika. Nefndin hefur nú fundað þrisvar og stefnir að því að gera tillögu að breyttum lögum fyrir haustþing. „Mikill hugur er í vinnuhópnum að klára málið,“ segir Stefna að tillögum fyrir alþingi í haust sýnt var hvort þeim yrði hleypt af stað og hvort þær fengju að klára. Tveir af 6 hópum hættu við sund þennan dag vegna veðurs. „Við vorum harðar á því að láta reyna á þetta. Við erum jú Íslendingar og vitum að veðurspá er bara spá. Hún getur breyst hratt,“ segir hún. „Við tókum stuttan fund á bryggju- sporðinum og ákváðum að ef okkur tækist ekki að klára, myndum við líta á sundið sem æfingu og fara aftur seinna. Sundið stóð tæpt allan tímann. Þegar fór að líða á var farið að hvessa. 66 gráður norður kraftgallarnir voru lífsbjörg um borð í bátnum,“ segir hún. Fimm ár eru síðan Elsa tók fyrsta sjó- sundssprettinn. „Vinkona mín hafði reynt að draga mig í mörg ár. Mér fannst þetta fáránlegt. Af hverju að fara út í sjó þegar sundlaugar eru allt um kring. Síðan fór ég að heyra fleiri tala um að sjósund væri æðislegt og ég ákvað því að láta undan þrábeiðninni og það varð ekki aftur snúið. Ég féll fyrir sportinu frá fyrsta sundi.“ Hópurinn var búinn undir allskonar veður á Ermarsundi. „En aðstæður voru töluvert verri en okkar svartsýnustu hug- myndir höfðu verið,“ segir Elsa. „Helming leiðarinnar voru þetta frekar slagsmál við öldurnar en sund. Þetta var eins og að synda í þvottavél. Manni leið eins og við kæmumst ekki áfram. Vorum að passa að kastast ekki á bátinn því öldugangurinn var svo mikill,“ segir hún. „Við fengum aldrei góðan kafla. Vorum alltaf með vindinn og ölduna í fanginu.“ Þær höfðu beðið lengi eftir sundinu, bók- uðu það í janúar 2019. „Og ég segi: Þetta var rosalegt en algjörlega þess virði. Til- finningin að hafa klárað þetta er mögnuð. Geta horft til baka og sagt: Ég synti yfir Ermarsundið. Það er meiriháttar.“ Theódór en stefnt er að því að stofnanir beri ábyrgðina en ekki einstaklingarnir. Theódór segir hópinn nú aðeins vinna að einni tillögu sem sett var fram í skýrslu um úrbætur frá 2015. Annar starfshópur sem stofnaður verður fyrir haustið vinnur í hinum tillögum skýrsl- unnar. „Hópurinn mun endurskoða ferlið sem fer af stað þegar alvarleg atvik verða innan heilbrigðiskerfisins.“ Theódór fagn- ar því að málið sé komið á skrið. „Ég vil þakka heilbrigðisráðherra fyrir að setja þessa vinnu í gang.“ Sigríður Lárusdóttir, Harpa Leifsdóttir, Bjarnþóra Egils dóttir og Elsa Valsdóttir í efri röð. Jórunn Atladóttir og Guðmunda Elíasdóttir fyrir framan. Mynd/aðsend Elsa og Jórunn huga að fæti Guðmundu Elíasdóttur sem náði landi fyrir hópinn í Frakklandi. Mynd/aðsend Theódór Skúli Sigurðsson fulltrúi heilbrigðisstarfsfólks í starfshópi ráðherra. Mynd/gag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.