Læknablaðið - 01.07.2022, Side 37
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 357
F R É T T I R
„Sundið tók á. Það var hrikalegt og
æðislegt á sama tíma. Það er ekki hægt að
lýsa þessari reynslu öðruvísi. Mér tókst
að synda yfir Ermarsundið, sem gerir
aðrar áskoranir léttari í lífinu,“ segir Elsa
Valsdóttir, skurðlæknir á kviðarhols-
skurðdeild á Landspítala. Hún synti í
boðsundssveitinni Bárunum með Jórunni
Atladóttur sem einnig er ristilskurðlæknir
á deildinni og fjórum öðrum þann 7. júní.
Með þeim tveimur voru Bjarnþóra Eg-
ilsdóttir, Harpa Leifsdóttir, Sigríður Lár-
usdóttir og Guðmunda Elíasdóttir. „Við
erum fimmta íslenska boðsundssveitin
sem klárar,“ segir Elsa. Sundið tók þær 16
klukkustundir og 4 mínútur. „Við syntum
54 kílómetra en loftlína Ermarsundsins er
33 kílómetrar,“ segir hún.
„Að synda yfir Ermarsundið gaf okkur þá tilfinningu að við getum hvað sem
er. Það verður ekkert verkefni það stórt að ekki sé hægt að yfirstíga það,“
segir Elsa Valsdóttir, skurðlæknir
„Við erum enn að jafna okkur. Höfum
synt smá og hlaupið smá. Svona sund
reynir minna á líkamann en hausinn.
Hann er númer 1, 2 og 3,“ segir hún og
lýsir ströngum reglum. Þær hafi ekki mátt
hjálpast að eða snertast milli spretta og
urðu að vera klukkustund hver ofan í í
einu. Matsmaður hafi verið um borð sem
skar úr um hvort sundið væri gilt.
„Það þurfti sterkan vilja til að koma sér
út í og halda sér ofan í 13-14 gráðu heitum
sjónum í klukkutíma,“ segir Elsa. Passa
þurfi að panikka ekki í svona erfiðum að-
stæðum. „Við vorum að súpa sjó og hósta
upp. Þetta var rosalega erfitt, skítkalt bæði
í sjónum og í bátnum.“
Ölduhæðin hafi náð einum metra og
aðstæður til sundsins svo erfiðar að tví-
Persónulegur sigur í
söltu Ermarsundi
„Lykilatriði er að tryggja aftur traust
í heilbrigðiskerfinu og auka öryggi
sjúklinga og starfsmanna,“ segir Theó-
dór Skúli Sigurðsson, formaður Félags
sjúkrahúslækna. Hann er fulltrúi heil-
brigðisstarfsfólks í hópi heilbrigðisráð-
herra sem metur möguleika þess að
afnema refsiábyrgð heilbrigðisstarfsfólks
vegna atvika.
Nefndin hefur nú fundað þrisvar og
stefnir að því að gera tillögu að breyttum
lögum fyrir haustþing. „Mikill hugur er
í vinnuhópnum að klára málið,“ segir
Stefna að tillögum fyrir alþingi í haust
sýnt var hvort þeim yrði hleypt af stað
og hvort þær fengju að klára. Tveir af 6
hópum hættu við sund þennan dag vegna
veðurs. „Við vorum harðar á því að láta
reyna á þetta. Við erum jú Íslendingar og
vitum að veðurspá er bara spá. Hún getur
breyst hratt,“ segir hún.
„Við tókum stuttan fund á bryggju-
sporðinum og ákváðum að ef okkur
tækist ekki að klára, myndum við líta á
sundið sem æfingu og fara aftur seinna.
Sundið stóð tæpt allan tímann. Þegar fór
að líða á var farið að hvessa. 66 gráður
norður kraftgallarnir voru lífsbjörg um
borð í bátnum,“ segir hún.
Fimm ár eru síðan Elsa tók fyrsta sjó-
sundssprettinn. „Vinkona mín hafði reynt
að draga mig í mörg ár. Mér fannst þetta
fáránlegt. Af hverju að fara út í sjó þegar
sundlaugar eru allt um kring. Síðan fór
ég að heyra fleiri tala um að sjósund væri
æðislegt og ég ákvað því að láta undan
þrábeiðninni og það varð ekki aftur snúið.
Ég féll fyrir sportinu frá fyrsta sundi.“
Hópurinn var búinn undir allskonar
veður á Ermarsundi. „En aðstæður voru
töluvert verri en okkar svartsýnustu hug-
myndir höfðu verið,“ segir Elsa. „Helming
leiðarinnar voru þetta frekar slagsmál við
öldurnar en sund. Þetta var eins og að
synda í þvottavél. Manni leið eins og við
kæmumst ekki áfram. Vorum að passa að
kastast ekki á bátinn því öldugangurinn
var svo mikill,“ segir hún.
„Við fengum aldrei góðan kafla. Vorum
alltaf með vindinn og ölduna í fanginu.“
Þær höfðu beðið lengi eftir sundinu, bók-
uðu það í janúar 2019. „Og ég segi: Þetta
var rosalegt en algjörlega þess virði. Til-
finningin að hafa klárað þetta er mögnuð.
Geta horft til baka og sagt: Ég synti yfir
Ermarsundið. Það er meiriháttar.“
Theódór en stefnt er að því að stofnanir
beri ábyrgðina en ekki einstaklingarnir.
Theódór segir hópinn nú aðeins
vinna að einni tillögu sem sett var fram
í skýrslu um úrbætur frá 2015. Annar
starfshópur sem stofnaður verður fyrir
haustið vinnur í hinum tillögum skýrsl-
unnar. „Hópurinn mun endurskoða ferlið
sem fer af stað þegar alvarleg atvik verða
innan heilbrigðiskerfisins.“ Theódór fagn-
ar því að málið sé komið á skrið. „Ég vil
þakka heilbrigðisráðherra fyrir að setja
þessa vinnu í gang.“
Sigríður Lárusdóttir, Harpa Leifsdóttir, Bjarnþóra Egils dóttir og Elsa
Valsdóttir í efri röð. Jórunn Atladóttir og Guðmunda Elíasdóttir fyrir
framan. Mynd/aðsend
Elsa og Jórunn huga að fæti Guðmundu
Elíasdóttur sem náði landi fyrir hópinn
í Frakklandi. Mynd/aðsend
Theódór Skúli Sigurðsson fulltrúi
heilbrigðisstarfsfólks í starfshópi
ráðherra. Mynd/gag