Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2022, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 01.07.2022, Blaðsíða 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 359 Læknavakt á fimmtudegi. Klukkan er 22:30. Stend læknavaktina eftir dagvakt á heilsugæslunni. 83. skjólstæðingur dags- ins gengur inn. Það er komið að þeim mörkum þar sem ég er orðin óörugg um eigin dómgreind. Verkefni dagsins eru farin að flæða saman og ég rétt vona að ekkert of flókið bætist við. Bakkafullur lækur. Hugtak sem við þekkjum af öllum stigum heilbrigðiskerf- isins. Við erum öll stödd í bakkafullum lækjum sem stöðugt er borið í. Streita, álag, siðferðisskaði og kulnun eru hugtök sem við erum orðin of kunnug í daglegu umhverfi okkar. Heilbrigðiskerfið er rekið á hliðinni og við það að hrynja. Það er orðið lífsnauðsynlegt okkur og skjól- stæðingum okkar að veita viðspyrnu. Heilsugæslan hefur verið í mikilli jákvæðri uppbyggingu undanfarin ár. Hún hefur fest sig í sessi sem fyrsti við- komustaður og vaxið í trausti og virðingu í samfélaginu. Verkefnum hennar fjölgar stöðugt um leið og ásóknin eykst og opn- ar drop-in dagvaktir eru reknar á nánast öllum heilsugæslum samhliða bókaðri móttöku. Viðtölum lækna og símtölum hefur fjölgað töluvert og undanfarin tvö ár hefur orðið sannkölluð sprengja í raf- rænum samskiptum. Á sama tíma hefur fækkað í starfshópi sérmenntaðra heimilislækna og sérgreinin á leið í mönnunarlega lægð næstu 5-6 árin – þar til sívaxandi sérnám nær vonandi að snúa við þeirri þróun. Þannig er augljóst að álag á heimilis- lækna hefur aukist mikið. Til viðbótar þyngri verkefnum vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðar og aukinna fjölveikinda þá hlaupum við hraðar til að sinna bráðaþjónustu og endalausum raf- rænum skilaboðum. Áður en við hlaupum heilsugæsluna í þrot er því vert að staldra aðeins við og hugsa. Ef svo vel vill til að þessi lægð sem nú er mun einungis standa í nokkur ár, hvernig ætlum við að komast í gegnum hana og upp úr þessum bakkafulla læk? Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin skoðanir en ekki félagsins. heimilislæknir formaður FÍH Margrét Ólafía Tómasdóttir Það er vel þekkt að heilbrigðisþjón- usta fellur ekki að klassískum lögmálum um framboð og eftirspurn. Það er frekar á þann hátt að eftir því sem framboðið verður meira, þeim mun meiri verður aðsóknin í þjónustuna. Síðastliðinn vet ur varð Læknavaktin að bæta við mönnunarlínum 7 og 8 á hefðbundna vakt vegna álags, á sama tíma og sérfræðing- um starfandi á vaktinni hafði fækkað úr 68 í 49 á örfáum árum. Dagvaktir sem hafa verið mannaðar af einum lækni á stöð þurfa nú að bæta þeim næsta við vegna aðsóknar. Þar sem starfsfólki fjölgar ekki lengist um leið biðtími eftir bók- uðum tímum með auknu álagi á símtöl, skilaboð og pappír sem því fylgir. Það er því augljóst að við erum að brenna kerti starfsfólks í báða enda – en erum við raunverulega að bæta þjónustuna? Á vöktum hittum við mest fyrir tiltölu- lega hraust fólk með afmörkuð vandamál, pestir, stoðkerfisverki og slíkt, á meðan þeir sem þurfa á langtímaeftirfylgd flók- inna vandamála, aldraðir, fjölveikir og einstaklingar með geðræn vandamál, eru stærri hluti þeirra sem nýta bókaða tíma og sitja því á hakanum. Heilsuveru- skilaboðin innifela að sama skapi mest einföld og afmörkuð vandamál sem þurfa ekki endilega mest á athygli okkar og starfskröftum að halda en krefjast stöðugt meiri tíma af vinnudeginum. Við erum sammála um að bráðaþjónusta og gott aðgengi skipta máli í grunnþjónustunni en það er greinilega þörf á að endurskoða jafnvægið svo það kaffæri ekki aðra þjón- ustu. Eitt af grunngildum heimilislækna er samfella í þjónustu. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að þeir sem skráðir eru með fastan heimilislækni sem sinnir þeim til lengri tíma hafa betri heilsu og lífs- gæði, leita síður á bráðamóttöku, leggjast sjaldnar inn og hafa bættar lífslíkur.1 Til að uppfylla þessa samfellu er þó ekki nóg að heimilislæknir sé nafn á blaði, hann þarf að geta hitt skjólstæðingana og sinnt málum þeirra af kostgæfni. Norðurlöndin hafa flest komist að þeirri niðurstöðu að heimilislæknir í fullu starfi geti sinnt um 1000-1200 manns í sínu samlagi. Félag íslenskra heimilislækna er á sama máli. Í dag er þessi tala í reynd um 2300 á hvern íslenskan heimilislækni. Annað af grunngildum sérgreinar- innar er að veita þeim forgang sem mest þurfa á þjónustunni að halda, ég tel mikil- vægt að við skilgreinum hver sá hópur sé og skoðum aðkomu hans að þjónustunni. Við viljum stuðla að jöfnuðí í heilbrigð- iskerfinu en í stjórnlausu kerfi fær sá mest sem er frekastur á þjónustuna. Við þurfum að koma okkur út úr stjórnleysinu, taka völdin á þjónustunni út frá því sem við sjáum að skiptir skjól- stæðingahóp okkar mestu máli með hlið- sjón af getu út frá núverandi mönnun. LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna Þórdís Þorkelsdóttir Sólveig Bjarnadóttir Félag íslenskra heimilislækna Margrét Ólafía Tómasdóttir Oddur Steinarsson Félag sjúkrahúslækna Theódór Skúli Sigurðsson Magdalena Ásgeirsdóttir Læknafélag Reykjavíkur Ragnar Freyr Ingvarsson Ingibjörg Kristjánsdóttir Steinunn Þórðardóttir formaður Stjórn Læknafélags Íslands Úr bakkafulla læknum Heimild 1. Sandvik H, Hetlevik Ø, Blinkenberg J, et al. Continuity in general practice as predictor of mortality, acute hospitalisation, and use of out-of-hours care: a registry- based observational study in Norway. Brit J Gen Pract 2022; 72: 715. Gagnaeyðing ehf. · Bæjarflöt 7 · 112 Reykjavík · Sími 568 9095 · www.gagnaeyding.is · gagnaeyding@gagnaeyding.is Örugg eyðing gagna Sjúkragögn eru í dag að mestu orðin rafræn og varðveitt til lengri tíma. En fjölmörgum viðkvæmum skjölum og rafrænum afritum þarf að farga með öruggum hætti. Við vinnum samkvæmt vottuðu og öruggu ferli þegar við tökum við, flytjum og eyðum gögnum. Eyðingin sjálf gerist með tætingu og fer kurlið til endurvinnslu hjá viðurkenndum vinnsluaðilum. Hafðu samband! Opið mánudaga - fimmtudaga 8:30 -17:00 og til 16:00 á föstudögum. Má eyða sjúkragögnum?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.