Læknablaðið - 01.07.2022, Blaðsíða 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 359
Læknavakt á fimmtudegi. Klukkan er
22:30. Stend læknavaktina eftir dagvakt á
heilsugæslunni. 83. skjólstæðingur dags-
ins gengur inn. Það er komið að þeim
mörkum þar sem ég er orðin óörugg um
eigin dómgreind. Verkefni dagsins eru
farin að flæða saman og ég rétt vona að
ekkert of flókið bætist við.
Bakkafullur lækur. Hugtak sem við
þekkjum af öllum stigum heilbrigðiskerf-
isins. Við erum öll stödd í bakkafullum
lækjum sem stöðugt er borið í. Streita,
álag, siðferðisskaði og kulnun eru hugtök
sem við erum orðin of kunnug í daglegu
umhverfi okkar. Heilbrigðiskerfið er rekið
á hliðinni og við það að hrynja. Það er
orðið lífsnauðsynlegt okkur og skjól-
stæðingum okkar að veita viðspyrnu.
Heilsugæslan hefur verið í mikilli
jákvæðri uppbyggingu undanfarin ár.
Hún hefur fest sig í sessi sem fyrsti við-
komustaður og vaxið í trausti og virðingu
í samfélaginu. Verkefnum hennar fjölgar
stöðugt um leið og ásóknin eykst og opn-
ar drop-in dagvaktir eru reknar á nánast
öllum heilsugæslum samhliða bókaðri
móttöku. Viðtölum lækna og símtölum
hefur fjölgað töluvert og undanfarin tvö
ár hefur orðið sannkölluð sprengja í raf-
rænum samskiptum.
Á sama tíma hefur fækkað í starfshópi
sérmenntaðra heimilislækna og sérgreinin
á leið í mönnunarlega lægð næstu 5-6 árin
– þar til sívaxandi sérnám nær vonandi að
snúa við þeirri þróun.
Þannig er augljóst að álag á heimilis-
lækna hefur aukist mikið. Til viðbótar
þyngri verkefnum vegna breyttrar
aldurssamsetningar þjóðar og aukinna
fjölveikinda þá hlaupum við hraðar til að
sinna bráðaþjónustu og endalausum raf-
rænum skilaboðum. Áður en við hlaupum
heilsugæsluna í þrot er því vert að staldra
aðeins við og hugsa. Ef svo vel vill til
að þessi lægð sem nú er mun einungis
standa í nokkur ár, hvernig ætlum við að
komast í gegnum hana og upp úr þessum
bakkafulla læk?
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin
skoðanir en ekki félagsins.
heimilislæknir
formaður FÍH
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Það er vel þekkt að heilbrigðisþjón-
usta fellur ekki að klassískum lögmálum
um framboð og eftirspurn. Það er frekar
á þann hátt að eftir því sem framboðið
verður meira, þeim mun meiri verður
aðsóknin í þjónustuna. Síðastliðinn
vet ur varð Læknavaktin að bæta við
mönnunarlínum 7 og 8 á hefðbundna vakt
vegna álags, á sama tíma og sérfræðing-
um starfandi á vaktinni hafði fækkað úr
68 í 49 á örfáum árum. Dagvaktir sem
hafa verið mannaðar af einum lækni á
stöð þurfa nú að bæta þeim næsta við
vegna aðsóknar. Þar sem starfsfólki fjölgar
ekki lengist um leið biðtími eftir bók-
uðum tímum með auknu álagi á símtöl,
skilaboð og pappír sem því fylgir. Það er
því augljóst að við erum að brenna kerti
starfsfólks í báða enda – en erum við
raunverulega að bæta þjónustuna?
Á vöktum hittum við mest fyrir tiltölu-
lega hraust fólk með afmörkuð vandamál,
pestir, stoðkerfisverki og slíkt, á meðan
þeir sem þurfa á langtímaeftirfylgd flók-
inna vandamála, aldraðir, fjölveikir og
einstaklingar með geðræn vandamál,
eru stærri hluti þeirra sem nýta bókaða
tíma og sitja því á hakanum. Heilsuveru-
skilaboðin innifela að sama skapi mest
einföld og afmörkuð vandamál sem þurfa
ekki endilega mest á athygli okkar og
starfskröftum að halda en krefjast stöðugt
meiri tíma af vinnudeginum. Við erum
sammála um að bráðaþjónusta og gott
aðgengi skipta máli í grunnþjónustunni
en það er greinilega þörf á að endurskoða
jafnvægið svo það kaffæri ekki aðra þjón-
ustu.
Eitt af grunngildum heimilislækna
er samfella í þjónustu. Rannsóknir hafa
ítrekað sýnt að þeir sem skráðir eru með
fastan heimilislækni sem sinnir þeim
til lengri tíma hafa betri heilsu og lífs-
gæði, leita síður á bráðamóttöku, leggjast
sjaldnar inn og hafa bættar lífslíkur.1 Til
að uppfylla þessa samfellu er þó ekki nóg
að heimilislæknir sé nafn á blaði, hann
þarf að geta hitt skjólstæðingana og sinnt
málum þeirra af kostgæfni. Norðurlöndin
hafa flest komist að þeirri niðurstöðu að
heimilislæknir í fullu starfi geti sinnt um
1000-1200 manns í sínu samlagi. Félag
íslenskra heimilislækna er á sama máli. Í
dag er þessi tala í reynd um 2300 á hvern
íslenskan heimilislækni.
Annað af grunngildum sérgreinar-
innar er að veita þeim forgang sem mest
þurfa á þjónustunni að halda, ég tel mikil-
vægt að við skilgreinum hver sá hópur sé
og skoðum aðkomu hans að þjónustunni.
Við viljum stuðla að jöfnuðí í heilbrigð-
iskerfinu en í stjórnlausu kerfi fær sá mest
sem er frekastur á þjónustuna.
Við þurfum að koma okkur út úr
stjórnleysinu, taka völdin á þjónustunni
út frá því sem við sjáum að skiptir skjól-
stæðingahóp okkar mestu máli með hlið-
sjón af getu út frá núverandi mönnun.
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna
Þórdís Þorkelsdóttir
Sólveig Bjarnadóttir
Félag íslenskra heimilislækna
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Oddur Steinarsson
Félag sjúkrahúslækna
Theódór Skúli Sigurðsson
Magdalena Ásgeirsdóttir
Læknafélag Reykjavíkur
Ragnar Freyr Ingvarsson
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Steinunn Þórðardóttir formaður
Stjórn Læknafélags Íslands
Úr bakkafulla læknum
Heimild
1. Sandvik H, Hetlevik Ø, Blinkenberg J, et al. Continuity
in general practice as predictor of mortality, acute
hospitalisation, and use of out-of-hours care: a registry-
based observational study in Norway. Brit J Gen Pract
2022; 72: 715.
Gagnaeyðing ehf. · Bæjarflöt 7 · 112 Reykjavík · Sími 568 9095 · www.gagnaeyding.is · gagnaeyding@gagnaeyding.is
Örugg eyðing gagna
Sjúkragögn eru í dag að mestu orðin rafræn og varðveitt til lengri tíma.
En fjölmörgum viðkvæmum skjölum og rafrænum afritum þarf að farga með
öruggum hætti.
Við vinnum samkvæmt vottuðu og öruggu ferli þegar við tökum við, flytjum og
eyðum gögnum. Eyðingin sjálf gerist með tætingu og fer kurlið til endurvinnslu
hjá viðurkenndum vinnsluaðilum.
Hafðu samband!
Opið mánudaga - fimmtudaga 8:30 -17:00 og til 16:00 á föstudögum.
Má eyða
sjúkragögnum?