Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 11
FINNSK FLÍSFÖT
íslenskir veiðimenn hafa uppgötvað finnsku veiðivörurnar
frá Jahti Jakt en þær henta einstaklega vel hér á landi og
eru sérhannaðar fyrir veiðijaxla. Flísfötin frá þessum finnsku
snillingum eru vel sniðin, hlý og anda vel. Peysan nær vel upp í
háls. Á sumum peysunum eru hlífar sem ná yfir handarbök og
lófa þótt fingurnir séu frjálsir til að taka í gikk eða halda um
flugulínu. Gjafverð. Peysa og buxur á 4,500 krónur.
Fæst hjá lcefin, Nóatúni 17.
Þessi litli, sniðugi hlutur gæti komið í veg fyrir
ama og tjón. Margur hefur brotið veiðistöng
þegar hann er að bjástra við hana við bílinn sinn.
Segulhaldarinn frá Hopkins & Holloway í Bretlandi
er einfaldlega settur á bilinn og stangirnar eru
öruggar í stað þess að detta um koll við minnstu
vindhviðu. Fæst í Intersport, Lindum eða
Bíldshöfða og kostar 2,490 krónur
TOPPSTÖNGIN FRÁ G. LOOMIS
Veiðideild Intersport hefur nú yfirtekið G. Loomis umboðið á Islandi.
G. Loomis flugustangirnar eru einstaklega vandaðar. Aðrir eins
gæðagripir eru vandfundnir. Þessi GLX einhenda, 9,5 fet fyrir iínu
númer 8, er líklega öflugasta stöngin á íslenskum markaði fyrir lax
og stóran silung. Þetta er vorveiðistöngin fyrir tveggja ára laxinn og
stóru birtingana sem haga sér eins og tundurskeyti.
Verð 120,000 krónur
N'08
11