Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 16

Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 16
ÓLAFSFJARÐARÁ í þykkum tvídjakka með slaufu um hálsinn. Að vísu hefur hann látið blankskóna víkja fyrir klofstígvélum og hefur brugðið veiðivesti yfir jakkann. Skeggið er vandlega snyrt og hann horfir góðlátlega á vin sinn sem stendur sperrtur á bakkanum eins og haukur sem vokir yfir bráð. Teal & Black „Er það satt að þú veiðir bara á Teal & Black?" spyr ég Kristinn þegar hann opnar fluguboxið til að velja flugu að hnýta á tauminn. „Já, yfirleitt hef ég bara notað hana og oftast hefur það verið þannig að ef hún gefur ekki þá er ómögulegt að veiða á nokkuð annað," svarar hann og þræðir tauminn í gegnum augað á einni svartri.„Að vísu hefur Guðmundur verið að ota að mér einhverju nýmóðins dóti í seinni tíð og stundum hefur það gefið. En ég kann ekkert á púpurnar," bætir hann við. Guðmundur Ármann hafði sagt mér söguna um Teal & Black. Að Kristinn hafi byrjað að nota hana á sjöunda áratugn- um og hún hafi alltaf gefið fisk. Til hvers þá að flækja málin með því að nota eitthvað annað? Þeir eru báðir listmálarar og ég veit að Guðmundur Ármann er með vatnslitina í skottinu. Hann hefur þá alltaf með sér í veiðiferðir en Kristinn lætur líklega nægja að túlka áhrifin á léreftið þegar heimerkomið. Þeir hafa veitt saman í Ólafsfjarðará, einn dag á sumri, í röskan áratug. Á margan hátt eru þessir menn algjörar andstæður en þó svo undarlega líkir. Ég er kominn með þeim einn dýrlegan júlídag í Ólafsfjörðinn til að fylgjast með þeim veiða, spjalla um lífið og tilveruna, upplifa með þeim náttúruna og reyna að ráða í það úr hverju vinátta þeirra sem veiða saman er gerð. Hver veit nema ég fái líka kaffi og kleinur þegar stund gefst milli stríða. Tvídjakki og slaufa Bleikjan kom seinna í gamla daga, segir Kristinn þegar við stígum út úr bílnum í brakandi morgunblíðunni við Þjófvaðs- hyl á neðra svæðinu. Það er einn af eft- irlætisveiðistöðum þeirra félaga og geymir oft ógrynni af fiski. Ég teygi úr mér á slóðanum sem liggur niður að ánni og þykist strax sjá hreyfingu á vatnsborðinu þar sem áin breiðir úr sér í miklum hyl. Þó getur það varla verið því við höfum frétt að lítið sem ekkert hafi fengist í ánni síðustu daga. Það kom góð gusa af bleikju upp í ána um miðjan júlí en síðan ekki söguna meir. Kannski var þetta bara vindgustur sem gáraði vatnið, kannski auga hring- iðunnar sem straumurinn myndar í hylnum. Hér er ekki aug- Ijóst hvert vatnið rennur og líklega erfitt að geta sér til um það hvernig fiskurinn snýr í vatninu. Þegar ég segi Guðmundi að ég þykist hafa séð fisk þá segir hann að það geti mjög vel verið, réttir mér stöngina sína og spyr hvort ég vilji ekki byrja. Nei, svara ég með semingi en finn að mig klæjar í puttana. Ég er bara hingað kominn til að fylgjast með ykkur og læra kannski aðeins á ána. Guðmundur lætur það gott heita, enda sjálfur eflaust orðinn spenntur að kasta fyrir lónbúann. Hann læðist að hylnum og sveiflar mjúkri Daiwa-stönginni ótt og títt. Kristinn fylgist með tilburðunum og brosir ofurlítið í gegnum skeggið. Líklega skynjar hann eftirvæntinguna sem hríslast um félagann. „Ég veiddi fyrst hérna upp úr 1962 en þá þýddi ekkert að byrja fyrr en um eða upp úr verslunarmannahelginni," segir hann. Ég virði fyrir mér þennan kankvísa veiðimann og hugsa með mér að kannski hafi lítið breyst síðan 1962. Ég veit að í þá daga veiddu menn gjarnan í sjakket með hálstau og jafnvel á blankskónum. Kristinn er klæddur eins og breskur aðalsmaður, Ólafsfjarðará er þeim félögum yfírleitt gjöful og veðrið leikur við hvurn sinn fingur. Kristinn G. Jóhannsson kætist yfir góðum Jeng. Myndilfr.var tekinfyrir fáeinum áruhri. 16 11 '08

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.