Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Side 38
ÚR VEIÐIBÓK DOWDING 1908-1914
ÚR VEIÐIBÓK DOWDING 1908-1914
KAFTEINN
DOWDING
OGLAXÁ
Herbert W. Dowding hét enskur maður sem kom til urriðaveiða í Laxá í
Þingeyjarsýslu árin 1908—1914. Dowding var foringi í flota hennar hátignar
og var m.a. kafteinn á orrustuskipinu HMS Asia á síðari hluta 19. aldar.
Jón Benediktsson frá Auðnum skrifar hér um veiðar Dowdings í Laxá og birtir
þýdda kafla úr stórmerkilegri veiðidagbók hans sem er varðveitt á Húsavík.
r
rin 1893-1938 bjuggu á Halldórsstöðum í Laxárdal
Páll Þórarinsson og kona hans, Elisabet Þórarinsson,
fædd Grant. Páll hafði hleypt heimdraganum og dval-
ið tvisvar nokkurn tíma í Skotlandi og varð það meðal ann-
ars til þess að hann kom þaðan með konu sína Elisabet, sem
jafnan var nefnd Lizzie eftir að hingað kom. Ensku hafði Páll
lært vel í Skotlandi og þar sem hann var talsvert hneigður til
kaupskapar nýttist honum enskukunnáttan ágætlega til
viðskipta í Englandi.
Skömmu eftir aldamótin fóru enskir stangveiðimenn að
leggja leið sína að Halldórsstöðum og dvöldu þeir þar við sil-
ungsveiðar. Halldórsstaðir voru meðal fárra bæja í sveitum þar
sem nægilega vel var hýst til að bjóða útlendingum vist; þar
var byggt árið 1893 timburhúsið sem enn ber við loft á bæjar-
hólnum. Ekki má gleyma þætti húsmóðurinnar, Lizziear, því
auk þess að vera hvers manns hugljúfi kunni hún ágæta vel til
matreiðslu og að umgangast gesti, mun raunar hafa verið alin
upp við slík störf þar sem faðir hennar var veiðivörður og gest-
gjafi.
Sá er hélt veiðidagbók þá sem hér eru birtir kaflar úr hét
Herbert W. Dowding og veit sá er þetta ritar varla um hann
annað en nafnið og að hann mun hafa verið all hátt settur í
breska hernum en kominn á eftirlaun. Hann kom árlega til
dvalar á Halldórsstöðum árin 1908-1914 ásamt einum til tveim
félögum sínum. Að því er best verður séð hefur hann komið
hingað fyrst árið 1906. Líklega hefur heimsstyrjöldin fyrri
komið í veg fyrir fleiri veiðiferðir hans hingað.
Dowding hafði ána á leigu og var Páll umboðsmaður hans.
Leigan var samtals 300 kr. til þeirra níu jarða í Laxárdal sem í
hlut áttu. Bændur áttu auk þess silunginn sem veiddist og
hefur það fyrirkomulag sennilega verið algengt á þessum
tíma.
Öllum silungum léttari en tvö ensk pund var sleppt, þætti
þeim lífvænt og mun það fyrirkomulag hafa verið frá veiði-
mönnunum runnið.
Veiðibók Dowding var geymd á Halldórsstöðum en er nú
varðveitt í Safnahúsinu á Húsavík ásamt ífæru sem Dowding
átti og mörgum fleiri munum sem tengjast veiðiskap í Laxá.
Hér á eftir fer þýðing á nokkurs konar formála fyrir bókinni,
veiðiskýrslum áranna 1908 og 1914 og bréfi frá Dowding til
Páls; bréfið hefur allt til þessa dags fylgt bókinni. Skýringum
og athugasemdum þýðanda er hér og þar skotið inn með
skáletri og innan sviga. Reynt er að láta textann koma les-
endum fyrir sjónir sem líkast og hann er í frumritinu.
38
//'08