Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Blaðsíða 52
Vörðuflói er einhver frægasti veiðistaður Laxár. (flóanum er oftast ógrynni af silungi og getur hann verið um allan flóann. Hér stendur
veiðimaður Hofsstaðaeyjarmegin en flóinn er einnig veiddur úr Brettingsstaðalandi.
Best er að veiða ofarlega í flóanum, en þar næst neðan til
þar sem ganga tvö nef fram í flóann. Af þeim er ágætt að
veiða. Svo má vaða fram þar sem sprettur lind fram úr bakk-
anum, ofanvert við flóann og þá allangt út. Stundum er
þetta bússutækt, en stundum þarf vöðlur, og kemur þá
veiðimaður fram á eyri í miðjum flóanum og er ekki nema
tæplega hnédýpi á henni. Eftir þessari eyri má síðan fara hátt
á annað hundrað metra um ofanverðan flóann og veiða á
báðar hendur. Þar er skemmtilegt að vera, en talsverður
hluti aflans er fremur smár silungur.
Þá komum við í Geldingatóftarflóann. Hér gildir það
sama og fyrr var frá sagt, að væni silungurinn heldur sig uppi
í strengjunum innan um stórgrýtið. Festuhætta er minni
þegar veitt er úr eynni. Smærri silungurinn fæst svo neðar í
flóanum.
Hér með höfum við gengið milli veiðistaðanna á austan-
verðri Hofsstaðaey, og lægi nú beint við að halda leiðsög-
unni áfram upp með eynni að vestanverðu. í reyndinni munu
veiðimenn ganga þessa mjóu ey þvers og krus við veiðarnar.
Þannig kynni leiðsögnin þó að verða býsna flókin, og kýs
leiðsögumaður því að hverfa aftur suður og upp með ánni
og ganga nú ofan og norður eyna að vestanverðu. Þá byr-
jum við að veiða suður á Gafli, sem er efsti veiðistaður
eyjarinnar og framúrskarandi skemmtilegur veiðistaður. Þar
eru nokkrir hólmar fyrir ofan og þægilegt að vaða í tvo þá
næstu. Hér vatnar ekki nema í hné ef stiklað er á steinum, en
eins gott að stíga ekki niður á milli þeirra. Vaði maður suður
þessi brot að austari hólmanum má kasta á báða bóga upp á
brotið, að hinum hólmanum þar sem oft er góð fengsvon,
og jöfnum höndum austur í Pollinn sem svo er nefndur.
Einnig má veiða vestan við Gafl niður að fossi. Úr vestari
hólmanum má líka veiða, en ekki er sá staður jafngóður
hinum, sem kenndir eru við Gafl.
Frá fossinum sem fyrr er nefndur vestan undir Gafli er
ekki veiðandi sökum straumólgu fyrr en ofan undir endan-
um á Hafursey. Þar heitir Stangarhald, góður veiðistaður
með stórum fiskum, en misjafnlega feitum. Veiðistaðir eru
beggja vegna í Hafursey en viðsjált að vaða í hana fyrir þá
sem ekki eru því fastari á fótum. Niður með Hafurseynni eru
vik í Hofsstaðey þar sem fá má bröndu á stangli, en tæpast
ráð að eyða þar löngum tíma.
Neðan við Hafursey - á móts við Ferjustaðinn austan á
eynni - er mjög góður veiðistaður, að mestu strengir og
silungurinn oftast vænn. Hér nær veiðistaðurinn ofan að
Langhólma, en kringum hann er ekki veiði.
í strengjunum og vikunum hér neðan við má að vísu slíta
upp fisk og fisk, en héðan skundum við eigi að síður með
eftirvæntingu ofan að þúfunni við strengina ofanvert við
Vörðuflóa. Þúfan er auðþekkt af sjálfri sér á tiltölulega sléttri
flöt þarna á árbakkanum. Hér er einhver vinsælasti veiðistaður
Hofsstaðaeyjar, m.a. sökum þess hversu silungurinn er vænn.
Kastað er á tiltölulega straumþunga strengi þar sem fiskarnir
liggja í vari við steina og klapparhryggi. Frá Þúfunni er sam-
felldur veiðistaður allar götur norður í Vörðuflóa og síðan
allan Vörðuflóann á enda. Bestur veiðistaður er þó í flóanum
ofantil þar sem í hann fellur úr strengjunum milli klappa og
flúða, andspænis steinunum, en að þeim víkur síðar.
Vörðuflóinn er dægraviðfangsefni veiðimanns, og allt ofan
frá fyrrgreindri Þúfu og ofan á flóabrot má reyna hvers konar
flugur, frá smæstu púpu og þurrflugu upp í stærstu straum-
flugur með góðum árangri. Einmitt hér er staðurinn til að
sannreyna, að silungsveiðimaðurinn má alls ekki setja traust
sitt á kennisetningar, eða munnmæli, heldur verður að beita
skynseminni, sé hún honum nærtæk. Þá er þess að geta, að
vaða má frá hólmanum við flóabotninn upp eftir flóanum og
upp að vörðunni sem flóinn dregur nafn sitt af. Þetta er
grjóthryggur í miðri á, þó öllu nær vesturlandinu, og af hon-
um má veiða til beggja handa. Einkum er þetta gott í bjart-
viðri þegar sól er hnigin til vesturs og silungurinn leitar í
skuggann undir brekkunni. Að því atriði verður vikið í göng-
unniumBrettingsstaðalandið.Ávörðunniergrunnt,envöðlur
þarf oftast til þess að vaða á hana úr hólmanum og botn er
ekki sléttur. Annars staðar ætti ekki að vaða á Vörðuflóa.
Til glöggvunar má geta þess að vegalengd frá Þúfunni
góðu að upphafi Vörðuflóa er h.u.b. tvö hundruð metrar.
Miklu víðar má fá veiði í Hofsstaðaey en á þeim stöðum,
sem hér hafa verið nafngreindir, en þeir verða þó að nægja
um sinn.
52
iro8