Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Page 54

Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Page 54
VEIÐISTAÐALÝSING ^ III.HLUTI VEIÐISVÆÐIN í LAXÁRDAL Brettingsstaðir Nú erum við ekki lengur í Skútustaðahreppi því landa- merkjagirðingin milli Helluvaðs og Brettingsstaða erá hreppa- mörkunum. Hér erum við sem sagt komin formlega í Laxárdal, en hann er í Reykdælahreppi. Mývatnssveit höfum við þó ekki kvatt með öllu, því þaðan er hægast að rækja tvö efstu veiði- svæði Laxdæla, en um þau göngum við að tilvísan frændanna Agnars Tómassonar og Hákonar Jónssonar, sem báðir ólust upp á Brettingsstöðum og styðjumst jafnframt við skrá, sem Konráð Erlendsson gerði um örnefni á Brettingsstöðum, en hann var móðurbróðir Hákonar. Brettingsstaðir eru eyðibýli, bæjarhúsin fallin fyrir löngu, en ofarlega í hlíðinni, og þó fjarri gömlu bæjarrústunum, stendur sumarhús landeigenda, sem allir munu með ein- hverjum hætti vera venslamenn síðustu ábúendanna. Við ökum moldarslóð talsvert niðurgrafna, heim undir þetta sumarhús og framhjá því og síðan beygjum við til hægri og fylgjum greinilegum hjólförum ofan hjallann og skiljum bílinn eftir á brekkubrúninni ofan syðsta veiðistaðarins. Áður en við setjum saman stöngina skulum við íhuga breytinguna sem orðin er á hegðun árinnar og lífríki hennar frá því gangan hófst við Mývatnsósa. Sem fyrr segir eru hornsíli verulegur hluti af átu silungsins á svæðunum næst upptökum Laxár í Mývatni. Þar gefast því býsna vel stórar straumflugur í hornsílalíki. Eftir því sem norðar dregur og neðar með ánni fækkar hornsílunum. AgnarTómas- son segist ekki hafa heyrt þess getið að hornsíli hafi fundist í silungsmaga neðan við Helluvað. Urriðinn tekur straumflugur um alla ána, en í Brettingsstaðaveiðunum, Hofsstaðaey og þar fyrir neðan er okkur best að treysta öllu meir á dökkar flugur nr. 6 - 8 og þaðan af smærri og gildir einu hvort þær eru hnýtt- ar á laxa- eða silungsöngla. Púpur í líkingu við mýflugulirfur- nar, og kastað upp í strauminn, gefa dágóða raun við réttar aðstæður og frést hefur um ágæta þurrfluguveiði á þessum slóðum. Athyglisverð er frásögn Agnars af því hversu troðnir silungsmagarnir eru stundum á vorin af vatnakuðungum, en hver kýs séragn við hæfi. Syðsti og efsti veiðistaður Brettingsstaða er í Strengjunum andspænis og ofanhalt við Þúfuna nafntoguðu í Hofsstaðaey. Hér gengur hlíðin nær hvarvetna brött að ánni, kjarri vaxin allt að vatnsborði að kalla, þröngt og óþénugt fyrir bakkast og óvíða meiri þörf fyrir langar stengur með níðþungri línu og kunnáttu til að veltikasta. Hér í Strengjunum og eins í Vörðuflóanum fyrir neðan, leitar silungurinn oft í skuggann undir hlíðinni í bjartviðri þegar sól er gengin til vesturs. Sjálfur hef ég ekki kastað á Strengina og Vörðuflóann Brettingsstaðamegin og veldur þar um hversu örðug hún er kjarri vaxin brekkan hinum einfætta. Aftur á móti hef ég séð úr Hofsstaðaey tilburði þess manns, sem ég ætla að sé einna klókastur veiðimaður við Laxá, Jóhannesar Kristjánssonar frá Akureyri; hvernig hann stóð að veiðinni: Hann kastaði með fíber-tvíhendu, að því er mér virtist, með fremur sökkhraðri línu, stuttum köstum, stóð oftast á að giska fimm til sex metra uppi í brekkunni, hreyfði sig hægt og fumlaust, skákaði í öruggu skjóli þess að hann bar ekki við himin og varpaði ekki neinum skugga á ána. Hann sá býsna vel silungana í skugga- num, þótt þeir yrðu hans hreint ekki varir þar sem hann bar í gróna hlíðina. Þarna rótfiskaði Jóhannes í forsælunni meðan ég mátti þakka fyrir lítinn feng í sólskininu handan ár í Hofsstaðaey. Ég hef enn ekki komið því í verk að þakka honum persónu- lega fyrir þá fágætu skemmtun að fylgjast með öguðu og framúrskarandi fengsælu framferði veiðimanns, sem kann að snúa erfiðum aðstæðum sér í hag. Á því síðdegi minnir mig að aðdáunin hafi borið af öfund minni. Og svo loks, áður en lengra er haldið: Þegar veitt er undan þessari bröttu hlíð þá má það teljast til nauðsynja að hafa með sér poka, sem hengja mætti á grein, því hvergi má leggja frá sér silung svo ekki sé hætta á því að hann hrapi aftur í ána. Það vita þeir best, sem reynt hafa. Hákon Jónsson segir að Strengirnir byrji þar sem "straum- gretturnar"fara af ánni. Þar má byrja að veiða. Hér hafa tíðum gefist uppgrip af silungi. Sveitungar utar í Laxárdal sóttu hér oft til veiða, og Páll á Halldórsstöðum leigði hér veiði handa enskum og skoskum veiðimönnum, en það voru sem kunnugt er breskir stangveiðimenn sem kenndu Laxdælum að veiða á flugu. Við einn þessara ágætu útlendu veiðimanna er kennt örnefni á þessum slóðum, Dádingssteinn, sem að verður vikið síðar. Agnar skiptir Strengjunum í tvo hluta. Syðristrengir byrja sem sagt undan "straumgrettunum" frá viki í bakkanum og steini, sem brýtur á úti í miðri á suðvestur af Þúfunni góðu í eynni. Þeim lýkur norðan við næsta nef, en þar taka við Ytri- strengir allt norður í Vörðuflóa. Vörðuflói er talinn byrja við svonefndan Brókarklett í Hofsstaðaey og heitir þar Brókarvík við bakkann. Andspænis 54 11 '08

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.