Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Qupperneq 58
Djúpidráttur er nafntogaður veiðistaður í Laxárdal.
Djúpidrátturog Pollnesáll
Skammt norðan fyrrgreindrar girðingar er flúð í ánni og veiði
sunnan við hana. Norðan flúðarinnar tekur við Djúpidráttur,
nafntogaður veiðistaður og gjöfull eftir því allar götur norður
að Víði. Sunnan til eru dálitlar grynningar og þarf að vaða.
Albesti veiðistaðurinn er niður af nefinu suðvestur af Víði. Þar
þarflítiðað vaða.
Veiði er á nokkrum stöðum í kvíslinni milli Þverárhólma
og lands, en grynningar á milli. Austan við hólmana eru góðir
veiðistaðir beint á móti Bárnavík, sem síðar verður greind og
norður af skeri, sem er yst austan við hólmana. Hér snögg-
dýpkar áin og er best að vaða grynningarnar og kasta fram í
halliðofan við dýpið.
Þá vöðum við sem sagt aftur í land úr Þverárhólmum og
leggjum leið okkar í Pollnesið, en svo heitir landið norðan
hólmanna, og er þá næsti veiðistaður við Pollnestá. Hér lig-
gur áll með landinu, Pollnesáll, ekki ýkja breiður og fremur
grunnur, en oft ágæt veiði í honum. Grynnstur er állinn sunn-
an til, en silungurinn liggur hér oft á hnédjúpu vatni og þaðan
af grynnra. Hér skyldu menn hemja vaðlöngun sína, að
styggja ekki fiskinn og ennfremur kastgleðina að kasta ekki
flugunni austur yfir álinn og fram á grynningarnar. Þó er gott
að standa við hæfi í ánni fremur en að kasta af háum bakka-
num þar sem veiðimann ber við himin, en fiskarnir býsna
fráneygir í álnum í nokkurra metra fjarlægð.
Norðan við Pollnestána mætast tveir álar nokkuð langt
fram í ánni svo ekki nærtil þeirra af bakkanum. Þargetur veiði,
en áin er ströng þarna og illt að vaða.
Skammt frá er svo Kreppuvík, sem ekki er merkt á kortinu.
Við bakkann í víkinni og svo norður frá henni er stundum
silungur. Við brotið sem þarna myndast er góður veiðistaður
en þarf að vaða dálítið til þess að kasta. Slæðan svonefnda
byrjar við girðingu, sem gengur fram að ánni og nær austur að
brotinu. Margur veiðimaðurinn glaðnar á svipinn þegar hann
heyrirSlæðuna nefnda.
Merkin milli Þverár og Halldórsstaða eru um grjótgarð þar
sem hraunið gengur fram í ána og getur ekki meiriháttar
veiðistaðar milli Slæðunnarog landamerkja utan smápoll við
bakkann skammt norðan víkurinnar rétt neðan Nafarvaðs,
sem merkterá kortinu.
Halldórsstaðir
Hér erum við sem sagt komin í land Halldórsstaða og þá fyrst
talsvert undirlendi, hrauni kringt og heitir Kringla. Þar norður
með bökkunum eru víða smápollar með silungi.
fvíkinni þarsem merkturerá kortinu Háahraunsbakki,og
þá komið yfir allmargar girðingar frá Halldórsstöðum, þar
tekur við svæði, sem ýmist er kallað Sláttur eða Engið hans
Villa, og má heita samfelldur veiðistaður af háum bakka allar
götur norður undir Halldórsstaðahólma, en ofanvert við þá
grynnist áin svo vaða þarf fram að álnum, sem beygir hér til
austursofanviðhólmann.OfanvertviðHalldórsstaðahólmann
og með austurbakka hans er ágætur veiðistaður og best að
vaða fyrst fram af dulitlu nefi sunnanvert á hólmanum, er
Sauðatangi nefnist, kasta þaðan þvert til austurs og láta flug-
una svima við bakkann. Síðan er best að kasta af sjálfum
58
//'08