Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Blaðsíða 62

Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Blaðsíða 62
GUÐMUNDUR STEFÁN HEPPINN Á SUNNUDÖGUM Guðmundur Stefán Maríasson var endurkjörinn formaður SVFR á síðasta aðalfundi félagsins. Hann hefur setið í stjórn þess í fimm ár og ræðir hér helstu málin sem brenna á félaginu á erfiðum tímum. Bjarni Brynjólfsson: Hvernig er staða SVFR í þessum erfiðleikum sem nú blasa við í þjóðfélaginu? Guðmundur Stefán Maríasson: Félagið er fjárhagslega sterkt en óvissan er mikil. Framtíð þess veltur því mikið á því að samkomulag náist við veiðifélög um að verðlag verði rétt. Veiðileyfi hafa hækkað geysilega mikið undanfarin ár, sérstak- lega vegna verðbóta í vaxandi verðbólgu. Nú þarf að leita jafnvægis í verðum. Hins vegar liggur innri styrkur félagsins í félagsmönnunum. Við treystum því að félagsmenn haldi áfram að kaupa veiðileyfi og standi með sínu félagi gegnum þykkt og þunnt. Ástandið er vissulega ótryggt. Kaupendur að dýrustu veiði- leyfunum hafa dottið út allir á einu bretti. Það liggur Ijóst fyrir. BB: Er félagið að endurskoða sína samninga við veiðiréttar- eigendur? GSM: Við höfum átt samræður við nokkur veiðifélög um það hvað hægt sé að gera. Viðræður við önnur félög standa fyrir dyrum. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta auðvit- að um sameiginlega hagsmuni veiðiréttaeigenda og veiði- leyfasala þegar til lengri tíma er litið. Félagið hefur látið veiði- félög njóta góðæris undanfarinna ára. Þannig höfum við haft frumkvæði að endurskoðun samninga til hækkunar þegar aðstæður hafa leyft. Þetta auðveldar okkur breytingar á samningum nú þegar vá er fyrir dyrum. BB: Þannig að það er borð fyrir báru í samningunum? GSM: Ja, núna erum við í þeirri óþægilegu stöðu að þurfa að leita til þeirra um lækkun. Við vonum að þetta góða samband skili sér í því að báðir aðilar geti unað við sitt og samkomulag náist. BB: Nú hefur þú setið sem formaður í heilt ár. Þú tókst við góðu búi. Hafðir þú ákveðið að gera einhverjar áherslubreyt- ingar á starfsemi félagsins áður en kreppan reið yfir? GSM: Þetta eru undarlegir tímar. í staðinn fyrir að byrja árið í blússandi sókn þurfum við að hefja ákveðið varnarstarf til að vernda hagsmuni félagsins. Áherslan í dag er fyrst og fremst á það að verjast stórum skakkaföllum í rekstri félagsins sem gætu duniðyfir efekkertværi að gert. BB: Mikið hefur verið rætt um stóran samning félagsins um urriðasvæði Laxár í S-Þingeyjarsýslu. Hefur þessi samningur mikla áhættu í för með sér fyrir félagið? GSM: Þegar svæðið var boðið út átti félagið þriðja hæsta tilboðið í það. Við vorum mjög ánægðir þegar tilboðinu var tekið. Við litum svo á að tilboðið væri bindandi. Það hefur alltaf verið stefna SVFR að standa við gerða samninga. Við gerðum tilboðið að vel athuguðu máli og töldum ekki mikla áhættu fólgna í því. Þá getum við komið að aðalatriðinu. Gjör- breyttar ytri aðstæður hafa breytt grundvelli tilboðsins. Það má því vissulega segja að samningurinn sé mun áhættu- samari nú en áður. Það er erfitt að fá fram breytingar eins og frystingu vísitölu eða lækkun þegar samningur hefur nýlega verið undirritaður. BB: Urriðasvæðið í Laxá hefur verið höfuðvígi íslenskra silungsveiðimanna um áratugaskeið. Fá gamlir viðskiptavinir fyrri veiðileyfasala einhvern forgang? GSM: Að sjálfsögðu. Við höfum alltaf sagt að þeir sem hafa veitt þarna muni hafa forgang að svæðinu. Það er mikilvægt fyrir svæðið að það haldi sínum viðskiptavinum. Hins vegar er allt verðlag í uppnámi. Frá því að verð veiðileyfa var ákveðið fyrir árið 2008 og þar til veiði hefst 2009 má gera ráð fyrir að vísitala verðlags hafi hækkað um allt að 30 af hundraði. Það þýðir einfaldlega að veiðileyfi sem kostuðu 18,000 krónur ættu að kosta 24,000 krónur árið 2009. Þá er ekki tekið tillit til hækkunar sem útboð á veiðisvæðunum felur í sér. Okkar samningar eru verðtryggðir en við munum reyna eins og kostur er að halda verði niðri. Það hefur alltaf verið markmið félagsins. Við vitum ekki hvaða áhrif atvinnuleysi, lækkun launa og minnkandi kaupmáttur okkar félagsmanna hefur á kaup IIV 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.