Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 65
GUÐMUNDUR STEFÁN
„Það er líka rökrétt að
efnahagsþrengingar muni þrýsta
á að„rétt" verð myndist á ný en nú
má búast við því að það verði
lægra en „rétta" verðið var."
GSM: Uppkaup á netalögnum er einhver besta friðunar-
aðgerð sem gerð er fyrir stórlaxinn. Félagið mun að sjálfsögðu
halda áfram sinni stefnu varðandi uppkaup á netalögnum og
mun reyna að fá fleiri aðila með í þetta. Því miður hafa aðrir
veiðileyfasalar á svæðinu ekki séð sér fært að taka þátt í neta-
uppkaupunum nema í örfáum undantekningartilvikum. I því
sambandi má sérstaklega nefna Stangaveiðifélag Selfoss sem
tók þá ákvörðun að leggja netaskatt á hverja selda stöng á
svæðum félagsins. Stefnan hefur reyndar alltaf verið sú að
Veiðifélag Árnesinga taki þetta yfir og sátt verði um málið á
svæðinu öllu. Það verður að ríkja sátt um málið annars fellur
það um sjálft sig. í sjálfu sér er það ekki hlutverk félagsins að
standa í friðunaraðgerðum. Það ætti fyrst og fremst að vera
mál veiðiréttareigenda, sem er treyst fyrir því að varðveita
auðlindina, að standa vörð um hana og rækta hana.
BB: Heitar umræður hafa verið um fluguveiði og maðkveiði
á spjallsíðum félagsins. Margir eru óánægðir með að flugu-
veiðimönnum sé gert hærra undir höfði en öðrum veiðimönn-
um.Hvarstendurþú?
GSM: Einsog ég sagði áðan erég ekki mótfallinn maðkveiði
og veiði sjálfur á maðk ef það er leyft og aðstæður bjóða upp
á slíkt agn. Hins vegar nota ég flugu þar sem hún á við og er
alveg sáttur við það að veiða í ám þar sem einungis fluguveiði
erleyfð.
BB: Eitthvað sem þú vilt segja við félagsmenn að lokum?
GSM: Það er mikilvægt nú að félagsmenn standi saman
um sitt félag og hætti ekki að veiða en sríöí sér stakk eftir
vexti bæði hvað verð og dagafjölda varðar. Ég vil hvetja alla
félagsmenn til að standa vörð um félagið sitt á erfiðum tímum
og að þeir kaupi veiðileyfi af því fyrir þær krónur sem eru
aflögu. Ég er alls ekki að agnúast út í það að verslað sé við aðra
veiðileyfasala sem bjóða veiði í íslenskum ám. Mérfinnst hins
vegar - meðan þetta efnahagsástand varir - röng skilaboð
þegar íslendingar birta af sér myndir frá stórveiði með stór-
laxa úr dýrum ám í útlöndum, allt greitt í dýrmætum gjaldeyri.
Kaupum veiðileyfi á íslandi á næsta ári.
Það er nægilegt framboð af ódýrum veiðileyfum í fögru
umhverfi innan vébanda félagsins.
Það er ómetanlegt að eiga kost á því að efna í nýjar
veiðisögur á hverju sumri og bæta í reynslubankann. En það
er ekki alltaf veisla í veiðinni og væntingar mismunandi.
Varðandi væntingar þá dettur mér alltaf í hug fyrsti laxinn
sem ég fékk á svæði IV í Stóru-Laxá. Ég var þarna í þriðja sinn,
dolfallinn af náttúrfegurðinni og laxlaus í þriðja sinn. Svo
álpaðist loks lax á og ég landaði þokkalegum smálaxi. Er ég
hafði gengið frá honum settist ég á stein og fór að hugsa:
„Skyldi þetta verða til þess að ég fari að gera kröfu um að fá
alltaf lax þegar ég kem í Stóru-Laxá?" Ég þurfti ekki að hugsa
lengi áður en ég svaraði sjálfum mér. „Nei, það er fráleitt,
hingað kem ég aftur og aftur, alveg sama hvort veiðist eða
ekki."
Það er nefnilega ekki sjálfgefið að fá lax en við eigum engu
að síður að njóta þess munaðar að vera úti í fallegri náttúru
með fjölskyldu eða góðum vinum þótt veiðin sé takmörkuð.
II'08
65