Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 66

Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 66
Vötn íVeiðikortinu 2009 1 Arnarvatn á Melrakkasléttu 2 Baulárvallavatn á Snæfellsnesi 3 Haugatjarnir í Skriðdal 4 Haukadalsvatn í Haukadal í Dalabyggð SVTH SVFR-FRÉTTIR Veiðikortið 2009 Veiðikortið er nú að hefja sitt fimmta starfsár Veiðikortið er frábær valkostur fyrir silungsveiðimenn. Veiðikortinu hefur verið vel tekið af veiðimönnum enda stórkostlegtaðhafameðVeiðikortinunánastótakmarkaðan aðgang að meira en 30 veiðivötnum fyrir aðeins 6.000 krónur - félagsmenn í SVFR fá Veiðikortið með 20% afslætti eða á 4.800 krónur. Frábærar undirtektir veiðimanna hafa þýtt að tekist he- fur jafnt og þétt að auka framboð spennandi veiðivatna in- nan Veiðikortsins. Nýjast viðbótin er Meðalfellsvatn í Kjós sem kom inn sl. sumar. Handhafar Veiðikortsins geta veitt nær ótakmarkað í vötnum víða um landið og tjaldað endurgjaldslaust við mörg þeirra. Veiðikortið er stílað á nafn og gildir fyrir ko- rthafann og börnyngri en 14 ára ífylgd með honum. í bæklingi sem fylgir hverju Veiðikorti eru lýsingar á veiðisvæðunum, reglur um umgengni og veiðihætti, kort og myndir. Sjá nánari upplýsingar á vef Veiðikortsins www. veidikortid.is. Þar eru meðal annars upplýsingar á ensku fyrir erlenda áhugamenn um veiðiskap. Veiðimenn eru hvattir til að ganga vel um veiðisvæðin og skilja hvorki eftir sig rusl né önnur óæskileg ummerki. Veiðikortið 2009 er hægt að kaupa á www.veidikortid.is, á næstu Nl-stöð og í veiðivöruverslunum. Félagsmenn í SVFR geta pantað kortið samhliða umsókn um önnur veiði- leyfi í janúar næstkomandi, á skrifstofu félagsins eða á www. svfr.is. 5 Hítarvatn á Mýrum 6 Hópið í Húnavatnssýslu 7 Hraunhafnarvatn á Melrakkasléttu 8 Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi 9 Hraunsfjörður á Snæfellsnesi 10 Kleifarvatn á Reykjanesskaga 11 Kleifarvatn í Breiðdal 1 2 Kringluvatn í Suður-Þingeyjarsýslu 13 Langavatn í Borgarbyggð 14 Ljósavatn í Suður-Þingeyjarsýslu 15 Meðalfellsvatn í Kjós 16 Mjóavatn í Breiðdal 1 7 Skriðuvatn í Skriðdal 18 Sléttuhlíðarvatn í Skagafirði 19 Svínavatn í Húnavatnssýslu 20 Syðradalsvatn við Bolungavík 21 Sænautavatn á Jökuldalsheiði 22 Urriðavatn við Egilsstaði 23 Úlfljótsvatn - Vesturbakkinn 24 Vatnasvæði Selár - Ölvesvatn á Skaga 25 Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði í Barðastrandasýslu 26 Vífilsstaðavatn í Garðabæ 27 Víkurflóð við Kirkjubæjarklaustur 28 Þingvallavatn - þjóðgarður 29 Þórisstaðavatn í Svínadal 30 Þveit í Hornafirði 31 Æðarvatn á Melrakkasléttu 66 IIV8 Ljósmynd úrsafni SVFR.

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.