Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Side 20
Garðabær
VETRARLEIKIR í MÓTUÐU UMHVERFI
Hvaða leikir eru vetrarleikir? f úthafsloftslagi eins
og hér á landi er tiltölulega lítill árstíðamunur á veðráttu,
miðað við hnattlegu. Munur á sumri og vetri kemur fyrst og
fremst fram í lengd sólargangs, og að sjálfsögðu er ekki sama hvort
hitastigið er um frostmark eða um eða yfir 10 gráður. Hér verður þó
aldrei óþægilega heitt, og langar frosthörkur eru sj aldgæfar. Einkennast
leikir okkar og útivera því af mikilli hreyfingu, t.d. bolta- og
hlaupaleikjum, göngu- og reiðtúrum.
Þegar talað er um vetrarleiki, detta manni fyrst í hug skíði, sleði,
snjóþota, skautar, snjókarl og snjóhús. Við nánari íhugun kemst
maður þó að því að hitastig um eða undir frostmarki er algjör forsenda
fyrir slíkum leikjum. Dagar meðjafnföllnum snjó eða froststillum og
sólskini eru sennilega álíka sjaldgæfir og sólbaðsdagar sumarsins.
Eftir standa allir hinir dagamir með umhleypingum, skafrenningi,
slabbi og slyddu. Þá daga er líka leikið sér, og þeir leikir eru því líka
vetrarleikir.
í eftirfarandi máli er að finna hugleiðingar um hvemig viðgetum bætt
útivistarsvæði bæjanna með vetramotkun.
Opin svæði til útivistar. Bæir á íslandi hafa flestir þá sérstöðu
18
að í nágrenni þeirra er stórbrotin náttúra, öllum aðgengileg. Á
þessum svæðum em óteljandi möguleikar á útivist allan ársins hring,
svo sem náttúruskoðun, hestamennsku, veiði, berjatínslu og
skíðaiðkun. Þessa útivist stunda bæjarbúar aðallega um helgar allan
ársins hring, og á björtum sumarkvöldum.
Eftir því sem bæimir stækka, fjarlægjast þessir möguleikar, og þörfin
fyrir sérstaklega skilgreind útivistarsvæði innan byggðareykst. Þessum
svæðum er ætlað að sinna daglegum þörfum bæjarbúa fyrir hreyfingu,
leik og hvíld, varðveita landslagssérkenni og deila byggð í einingar.
Algengt er að svæðin em fyrirliggjandi samkvæmt aðalskipulagi, en
hafa ekki fengið nauðsynlega meðhöndlun í takt við uppbyggingu
bæjarins.
Þetta hefur þó víða breyst til batnaðar hin síðustu ár. Böm leika sér
nú sem fyrr, og á upplýsingaöld verður vart við síaukinn áróður fyrir
útivist og heilsurækt allra aldursflokka. Við skipulag bæja verður því
æ brýnna að meta landkosti til útivistar til jafns við aðra þætti
skipulags.
Bestu og ódýrustu útivistarsvæðin eru náttúruleg svæði sem draga
fram landslagssérkenni staðarins, en bjóða jafnframt upp á
mm ARKITEKTÚR OG SKIPULAG ■■■■■■■
j