Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Qupperneq 22
Verulegur vatnshalli og gott frárennsliskerfi á leiksvæðum flýtir fyrir
þomun þeirra í slíku færi og bætir þannig leikaðstöðuna.
Umhverfi uppeldisstofnana. Stofnanir eins og dagheimili,
leikskólar, skólarog skóladagheimiligegnastærraog stærrahlutverki
í uppeldi bama, og þar dvelja flest böm stóran hluta uppvaxtarára
sinna. Því er mikilvægt að skapa þeim umhverfi, sem fullnægir
leikþörf þeirra og er um leið notalegt, án þess þó að vera einangrað frá
umheiminum. Óteljandi möguleikar liggja í nýtingu jarðhita til
upphitunar yfirborðs, og þörf bama og unglinga fyrir ferskt loft má
uppfylla með hálfyfirbyggðum leiksvæðum.
Dagheimilin og leikskólamir em lokuð í mánuð yfir hásumarið,
og í skólunum liggur starfsemi niðri frá 1. júní til 1. september eða
alla góðu daga sumarsins. Það er því augljóst að forsendur fyrir
skipulagi leikskóla- og dagheimilislóða sem og skólalóða eru aðrar
en hins almenna útivistarsvæðis. Þó svo að skólalóðimar gegni
hlutverki sem hverfisleiksvæði allt árið, er vetramotkunin mikilvægust.
Leikskóla- og dagheimilislóðir. í þeim aldurshópi, sem á
þessum stofnunum dvelur, em sennilega mestu hörkutólin, þegar
kemur að því að fara út í hvaða veður sem er. Þau eru sett í pollagalla,
fá fötu og skóflu í hönd, og moka allt sem fyrir þeim verður, hvort sem
það er sandur, vatn ípolli eða snjór. Mikilvægt er að á lóðinni sé hægt
að komast í skjól fyrir öllum vindáttum. Girðingar er þó æskilegt að
staðsetja þannig að yfir þær sjáist á stöku stað, svo að bömin skynji
umhverfið utan girðingar. I þessu sambandi gegna klifurtuminn og
sleðahóllinn hlutverki sem útsýnisstaðir.
Líftíma sandkassans er hægt að lengja með því að leggja snjóbræðslu
undir hann, en henni þarf að vera hægt að loka á sumrin, til þess að
koma í veg fyrir þomun sandsins.
Ekki má gleyma smæð bamanna við hönnun leiksvæðis. Rúmlega
eins metra hár hóll nægir til þess að kitla mann í magann þegar fyrsta
þotuferðin er farin. Og spenningurinn er svo mikill að margra metra
löng biðröð myndast.
20
Skólalóóir. Á skólalóðinni eru leikimir famir að þróast frá
dundinu á dagheimilinu yfir í skipulagðari ærsl, hlaup og hópleiki.
Hinir hefðbundnu vetrarleikir eins og sleðaferðir og skautahlaup eru
lítið stundaðir í stuttum frímínútum. Snjókast er þó sígild iðja, sem
mun ekki leggjast af fyrr en hið síðasta snjókom er fallið. Þó verður
að segjast að hangs undir húsvegg og við innganga er sú iðja sem
algengust er í frímínútum á skólalóðum. En er það ekki vegna þess
að krap er yfir öllu, eða þá að um flata og skjóllausa 15.000 m2 stóra
lóðina gnauða vindar sem á Kili væru?
En okkur er ekki alls varnað. Við getum hækkað hitastigið á sumrin,
en við getum líka sent úrkomuna til föðurhúsanna. Með sífellt
stórfelldari virkjun á jarðhita hljótum við að geta leyft okkur að leggja
hita í valin svæði á skólalóðunum. Hér þarf einnig að vera hægt að
finna skjól fyrir flestum vindáttum. Með skjólgirðingum má búa til
rými, þar sem hópast má saman. Þó skal forðast að snúa þeim afsíðis
frá fjölförnum leiðum, því slík skúmaskot em algengir fy rirsátarstaðir,
og freista til áreitandi tilburða.
Eftirsjá er í yfirbyggðum leiksvæðum eins og við Austurbæjarskólann,
þar sem frfskt loft er að finna, en samtímis skjól fyrir veðri og vindum.
Myndarlegar gróðursetningar trágróðurs milda umhverfi hinna stóru
mannvirkja sem skólabyggingar okkar vilja oft verða, og skipta
hinum víðáttumiklu skólalóðum í minni afmörkuð svæði, þannig að
nýting verði sem best og árekstrar sem fæstir. Trjágróður er ekki
minna afgerandi í umhverfinu en að sumri. Leiksvæðin við
uppeldisstofnanir em mikilvægur hluti þess umhverfis sem bömum
er skapað á uppvaxtarárum þeirra. Gerum okkur því grein fyrir þeim
þörfum sem notendur þessara svæða hafa, ekki bara í fermetrum talið.
Mótum þau útfrá þeim, og þá munum við sannfærast um að þau eru
ekki sóun á dýrmætu byggingarlandi.
Þráinn Hauksson
ARKITEKTUR OG SKIPULAG