Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Blaðsíða 28
MÝVATNSSVEIT VETRARPARADÍS
Mývatnssveitereinnfjölsóttastiferðamannastaðurlandsins,
svo sem flestum mun kunnugt. Á hverju sumri hópast fólk
þangað til að skoða hin fjölmörgu náttúrufyrirbæri sem
svæðið er frægt fyrir og njóta óviðjafnanlegrar náttúrufegurðar.
Miklu færri þekkja þá stórkostlegu möguleika, sem Mývatnssveit
hefur upp á að bjóða fyrir þá sem leggja stund á vetrarsport, eða vita
að fegurð sveitarinnar í vetrarbúningi tekur oft fram því sem gerist á
sumrin.
Á síðasta ári gekkst Ferðamálafélag Mývatnssveitar fyrir sérstakri
kynningu á vetrarferðum til Mývatns og í vetur er haldið áfram á sömu
braut og bryddað upp á ýmsu áhugaverðu í því sambandi.
Mývatnssvæðið er kjörið fyrir vélsleðaáhugamenn og þar hefur
árlega verið haldin vegleg vélsleðakeppni, sem í raun hefur verið
óopinbert Islandsmót. í vetur var vélsleðakeppnin, Mývatn 89, haldin
dagana 2,- 5. mars og var hún fyrsta opinbera íslandsmótið í
vélsleðaíþróttum. Keppt var í þremur greinum, fjallaralli,
spymukeppni og alhliða þrautarkeppni, þar sem keppendur þurfa að
leysa ýmsar þrautir. Jafnframt voru skipulagðar vélsleðaferðir um
nágrenni Mývatns mótsdagana, þar sem kunnugir leiðsögumenn voru
með í för. Starfrækt var vélsleðaleiga og er áformað að reka hana til
vors.
Síðustu vetur hafa verið snjóléttir um norðaustanvert landið, og
snjóleysi á öræfunum suður og austur af Mývatni hefur langtímum
saman takmarkað eða hindrað ferðalög á vélsleðum um þessi svæði.
Margir vélsleðaeigendur og aðrir sem áhuga hafa á vetrarsporti eru
því spenntir fyrir hugmyndinni um hálendisvegi og sjá fram á að slíkir
vegir um miðhálendið myndu, auk þess að hafa stórkostlega þýðingu
varðandi samgöngur milli landshluta, auðvelda fólki mjög að komast
þangað sem snjór er að jafnaði nægur, og á sumrin opnaðist raunhæfur
möguleiki á því að bjóða upp á jöklaferðir á miðhálendinu, t.d. á
Bárðarbungu.
26
Dorgveiði á ísnum á Mývatni hefur lengi verið vinsæl tómstundaiðja,
en var áður stunduð sem atvinnugrein. Ferðamálafélag Mývatnssveitar
hefur nokkur undanfarin ár haldið dorgveiðikeppni á vatninu um eða
eftir miðjan apríl. Undanfarin tvö ár hafa þátttakendur að hluta komið
erlendis frá, en að öðru leyti hefur nær eingöngu verið um heimamenn
að ræða og fólk úr nágrannabyggðarlögum. Þess er vænst að í vor
komi keppendur víðar af landinu, en einnig er reiknað með þátttöku
erlendra veiðimanna.
Dorgveiðitfminn hefst 1. febrúar og stendur meðan ís er á vatninu, eða
að jafnaði fram í maí. Á þessu tímabili er hægt að dorga um hverja
helgi er veður Ieyfir.
Við Mývatn er mjög góð aðstaða til skíðagöngu og þar er einnig
skíðatogbraut í upplýstri brekku. Troðnar eru gönguslóðir í nágrenni
við Hótel Reynihlíð og um páskana fer fram svonefnd Mývatnsganga,
sem er trimmganga á skíðum. Er hún liður í dagskrá sem skipulögð
er í páskavikunni fyrir þá ferðamenn sem kjósa að eyða páskafríi sínu
í Mývatnssveit. Eru þá einnig m.a. skipulagðar dorgveiðiferðir og
boðið upp á lifandi tónlist í Hótel Reynihlíð.
Auk þess sem nefnt hefur verið hér að framan, er vert að hafa í huga
að auðvelt er að leggja stund á gönguferðir umhverfis vatnið, skoða
hið einstæða landslag eða fuglana. Þáereinnig boðið upp á skipulagðar
skoðunarferðir ef um er að ræða a.m.k. fimm manna hópa, og er
komið á ýmsa þekkta staði svo sem hverasvæðið við Námafjall,
Dimmuborgir, Höfðaog Skútustaðagíga. Ekki mágleymaþvíaðeftir
ævintýralegan dag er gott að fá sér sundsprett í ágætri sundlaug í
Reykjahlíð, slaka á í heitum nuddpottum eða fara í sánabað, og óhætt
er að fullyrða, að sá sem sækir Mývatnssveit heim að vetrarlagi mun
ekki snúa aftur vonsvikinn.
Jón lllugason
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG