Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 40
OENDANLEIKI I
Fyrir mér eru í aðalatriðum aðeins tvær aðferðir til sköpunar
rýmis, þ.e. rými sem byggir á massa, þ.e. umhverfisrými, og
rými sem byggir á afmörkun með fjarveru massa, þ.e. umhverf
rými.
Við hönnun Vínbúðar í Mjódd og Vínbúðar við Lækjargötu,
Hafnarfirði, hef ég staðið sjálfan mig að því að endurskapa og þróa
þær rýmistilraunir, sem ég hóf 1986 við hönnun Skartgripaverslunar
Péturs Tryggva gullsmiðs við Skóla- vörðustíg.
Þessar tilraunir voru í aðaldráttum tilhlaup til að leysa hluti undan
kröftum þyngdaraflsins þ.e. að fá hluti til að virka þyngdarlausa, og
að skapa rými, sem byggist á afmörkun þrátt fyrir fjarveru massa.
Með öðrum orðum að gefahreinu rými forgangsrétt yfir hlutgervingum
(object). Þetta þýðir þó ekki að ég vilji útiloka form og hlutgervinga
í þeim verkum, sem ég reyni að skapa. Þvert á móti eru form og
hlutgervingar mikilvægir þættir, en eingöngu til þess að skilgreina
visst rými. Það segir sig því sjálft, að slíkir hlutgervingar í rýminu
verka oft við fyrstu sýn fjarrænir hvað frágang og áferð snertir, en
þeim er einfaldlega ætlað að hverfa út í rýmið.
Fjarvera massa í tilteknu rými auðveldar okkur að nema vissan
óendanleika í annars afmörkuðu rými.
Vínbúð í Mjódd. Vínbúð í Mjódd hefur nokkra sérstöðu meðal
38
LOKUÐU RÝMI
útsölustaða ATVR, en þessi verslun er hugsuð sem sérverslun með
léttvín.
Versluninni er einnig ætlað að þjóna viðskiptavinum með sérþarfir
innan léttvínsgeirans. Sérpöntuð vín og árgangsvín verða þar á
boðstólnum svo og viðhlítandi upplýsingar og fræðsla um þá vöru.
Verslunarrými og skrifstofu er komið fyrir innan ramma sem er um
7 m x 25 m. I kjallara eru lager og starfsmannarými.
Rýmið er afmarkað af íhvolfu lofti, löngum veggflötum, jaðarlýsingu
og súlum. Bogadregna loftið er hluti úr stórri hvelfingu. í gegnum
það skerast burðarbitar úr hrárri steinsteypu og gæða loftið þar með
vissu þyngdarleysi. Jaðarlýsingunni er ætlað það hlutverk að leysa
upp línulega afmörkun rýmisins og þannig stuðla að vissum
óendanleika.
Vínhirslum er komið fyrir meðfram lengsta vegg rýmisins, undir
bogadregnu loftinu.
Inn í þetta rými skerst síðan skrifstofukjarninn sem þrengir að og
spennir upp þetta langrými, áður en komið er að litlum setkrók við
enda rýmisins, afmörkuðum af þremur súlum úr hrárri steinsteypu.
Rýmisskipanin miðar að þvi að undirstrika lengd húsnæðisins og
styrkja rýmisskynjun sem skírskotar til viss óendanleika, í annars
lokuðu rými. »»
ARKITEKTUR OG SKIPULAG