Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Síða 53
Nesjavallarveita.
jarðhitann til snjóbræðslu og slíkrar umhverfishitunar. Það hófst í
mjög litlum mæli fyrir nokkrum áratugum, en vex nú mjög hratt.
Umhverfishitun má skipta í tvo flokka eftir uppruna:
A. Nýting afrennslisvatns
B. Hitun með framrennslisvatni
I flokki A er nýting á afrennslisvatni frá einstökum húsum. Þetta er,
samkvæmt núverandi gjaldskrá H.R., ókeypis varmi og er sjálfsagt að
húseigendur nýti sér þessi fríðindi. Það gera þeir einnig í miklum
mæli og er hitun í heimkeyrslum að næstum hverju nýju einbýlis- og
raðhúsi í dag. Þetta er að mestu leyti nýting á varma, sem annars væri
ekki nýttur, og gefur óverulega aukningu á varmatöku úr
jarðhitasvæðum.
Um flokk B, hitun með framrennslisvatni, gildir nokkuð annað. Þó
stofnkostnaður sé litlu meiri en fyrir flokk A, er annað að segja um
reksturinn. Reynslan sýnirað varmakostnaður við snjóbræðslu erum
eða yfir 300 krónur á fermetra á ári. Heildarrekstur á snjóbræðslu fyrir
eitt bílastæði kostar því um 10.000 krónur ár ári. Þetta er verulega
hærri kostnaðu en fyrir gömlu snjómokstursaðferðina. Þetta er bein
viðbót við varma- töku úr jarðhitasvæðunum og jafnvel aukning á
notkun olíu. Einnig er til sambland af þessum tveim flokkum, þ.e.
hitun með afrennslisvatni með viðbót frá frumorku.
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG ■■
3. Framtíðin. Þegar hugað er að nýtingu jarðhita verður að gera
sér grein fyrir eðli hans. Hann er orka, sem hægt er að geyma. Sá
varmi, sem ekki er notaður í dag, er til reiðu á morgun eða næsta ár.
Þettaeröfugt við vatnið, sem ekki ernýtt ívatnsaflsstöðinni og rennur
til hafs, engum til gagns. Jarðhitasvæði er eins og náma, en þó er
yfirleitt gert ráð fyrir einhverju innstreymi í það. Tímabundin
ofnýting á jarðhitasvæði getur skemmt það með innrennsli kalds
grunnvatns. Það minnkar verulega þá heildarorku, sem hægt er að
nýta úr svæðinu. Við verðum því að fara vel með jarðhitasvæðin
okkar og stefna að langtímanotkun þeirra. Við skulum vona að við
séum ekki síðasta kynslóð, sem nýtir þau.
Hér að ofan hefur verið sýnt fram á að ekki verður á næstunni nein
orka, sem selja má með niðursettu verði. Kostir til nýtingar varma til
umhverfis eru margir. Nú er hann notaður til að hita heimkeyrslur að
húsum, gangstéttiroggötur. En möguleikarnireru fleiri. Hægterað
nefna vistgötur, göngugötur, leiksvæði, skokkbrautir og torg. En hér
er rétt fyrir mig að hætta, það eru aðrir, sem taka við og hanna og
framkvæma draumana. En það verður að velja svæðin vel, þvíorkan
er ekki ótakmörkuð.
Hreinn Frímannsson
51