Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 59

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 59
sjónarmiði, þ.e. að rætt er um of- eða vannýtingu á ákveðnu svæði, sbr. til dæmis nýtingu fiskimiða og beitarþol. Þegarnýting er há, þ.e. þegar by ggt er mikið á hverri flatareiningu geta byggingar haft ýmiss konar áhrif á nánasta umhverfi, t.d. truflað útsýni og birtu hjá nágrönnum og valdið bílastæða- og umferðarvanda, svo dæmi séu tekin. Slíkt getur leitt til óeðlilega mikils kostnaðar hjá sveitarfélagi við að leysa slík mál, t.d. í umferðarmannvirkjum. Eins er algengt að litlar byggingar standi á stórum lóðum sem eru miðsvæðis í byggð og væri því hægt að fá meiri arð af stærri byggingu á lóðinni. Reynslan í Reykjavík seinustu tvo áratugina hefur verið sú, að sífellt er sótt á um að byggja meira á athafnalóðum sem eru miðsvæðis í borginni. Reykjavík hefur því ekki aðeins þanist út, hún hefur einnig „hækkað”. I Aðalskipulagi Reykjavíkur 1984-2004 er í fyrsta skipti hér á landi tekin upp ákveðin stefnumörkun og vinnubrögð í stjómun nýtingarmála í aðalskipulagi (sjá hér á eftir). Áhrif lóðaverðs á landnotkun. Helstu ástæður fyrir því að skipulagsmenn vilja stjóma nýtingu í borgum eru fjórar: (Skipulagsdeild San Francisco, 1966). 1) Ofnýting á einstökum lóðum í samanburði við næstu lóðir. 2) Koma í veg fyrir óæskileg umhverfisáhrif (útsýni og birta). 3) Koma í veg fyrir bílastæða- og umferðarvandamál. 4) Takmarka skrifstofubyggingar í miðborgum. Því þéttari sem byggðin er, þeim mun mikilvægara verður að hafa góða stjóm á landnotkun og nýtingu, enda er hvergi strangari stýring á þessum málum en í stórborgum Norður-Ameríku („Zoning”). Reyndar eru til fleiri stjómtæki í skipulagi en nýting sem nota má til að stjóma æskilegu byggingarmagni á flatareiningu. Sem dæmi má nefna ákvæði um hæðir húsa, afmörkun byggingarlínu við götu og byggingarreits á lóð og að hluti bygginga sé inndreginn. Slík atriði eru iðulega tekin fram í skiimálum með deiliskipulagi. Skilgreiningar: Þéttleiki byggðar og nýting. Þegar fjallað er um þéttleika byggðar á flatareiningu í skipulagi þéttbýlis hefur helsta vandamálið verið afmörkun landsvæðisins sem lagt er til grundvallar. Skortur á samræmingu hefur valdið því að samanburður milli staða er erfiður. Þegar fjallað er um heila borg (eða sveitarfélag), borgarhluta eða hverfishluta, tel ég rétt að nota hugtakið þéttleiki byggðar („density”), því t.d. í íbúðahverfum eru götur, leiksvæði og stofnanalóðir iðulega reiknuð með íbúðalóðunum þegar stuðullinn fy rir þéttleika er fundinn. Aftur á móti þegar viðmiðunarlandið ereingöngu byggingarlóð(ir) tel ég rétt að nota hugtakið nýting („plot ratio” eða „floor space index”) og þá talað um reitanýtingu ef um margar lóðir er að ræða (oftast götureit) eða lóðamýtingu um einstakar lóðir. Æskilegt væri að hætta að nota hugtakið nýtingarhlutfall, sem hefur verið notað jöfnum höndum um lóðar- og reitanýtingu og jafnvel þéttleika byggðar í íbúðahverfum. Oft er gengið skrefi lengra og fjallað um þröngbýli („overcrowding”) þ.e. hve margir búa saman í hverri íbúð eða hve margir einstaklingar eru um hvert íveruherbergi, þ.e. svefnherbergi og stofur („occupancy rate”). I Bretlandi er t.d. talað um þröngbýli ef 1.5 til 2.0 persónur eru um hvert íveruherbergi (Housing Act. 1936). Sem betur fer búum við við svo rúman húsakost að við höfum ekki þurft að hafa miklar áhyggjur af þröngbýli. f Reykjavík eru nú að meðaltali 2.6 íbúará íbúð ogmeðalherbergjatala íbúða 3.8, þannigað aðeins 0.7 einstaklingar em um hvert herbergi. Nýting hækkar eftir því sem nær dregur miðbæ. Lítum nú nánar á viðmiðunarmörk við skilgreiningu á þéttleika byggðar. I viðamikilli könnun sem skipulagsskrifstofa Stokkhólmssvæðisins gerði árið 1968, „Exploatering i 100 bostadsomráden”, koma fram viðmiðunarskilgreiningar fyrir mismynandi stór íbúðarsvæði. 1) Hverfishluti („bostadskvarter”) 0.5-10 ha. íbúðalóðir, húsagötur, almenn bílastæði, lítil leiksvæði og e.t.v. lítil þjónustulóð fyrir svæðið. Afmörkunin miðast við hálfa götubreidd safngatna eða annarra gatna umhverfis svæðið, eða línu umhverfis svæðið, sem miðast við helminginn af meðalfjarlægð milli húsa dregið út frá ystu húsum í þyrpingunni. 2) íbúðahverfi („stadsdelar”) 10-100 ha. Skólahverfi, með íbúðalóðum, innri götum, þjónustu- og stofnanalóðum, sem þjóna hverfinu eingöngu. Afmörkun miðast við hálfa breidd umlykjandi safngatna eða tengibrauta eða helminginn af eðlilegri fjarlægð í næstahverfi miðað við svipað skipulag. í Reykjavík eru ný skólahverfi skipulögð fyrir um 4-6 þúsund íbúa, 70 til 100 ha eftir þéttleika. 3) Borgarhluti („stadsdelsgruppe”) 100-5.000 ha. Borgarhlutinn tekur iðulega yfir nokkur íbúðarhverfi og öll opin svæði milli þeirra svo og atvmnusvæði og þjónustukjama á svæðinu. Ekki er gefin upp nánari viðmiðun um afmörkun, en mjög algengt er að stofnbrautir afmarki borgarhluta. í umferðarskipulagi er oft miðað við að borgarhlutar, þ.e. möskvarnir í stofnbrautakerfinu, séu ARKITEKTUR OG SKIPULAG 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.