Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Side 72
SKÍÐA- OG FERÐAMIÐSTÖÐ,
BLÁFJÖLLUM
SKÍÐA OG FERÐAMIÐSTÖÐ f BLÁFJÖLLUM.
Asíðari árum hefur skíðaíþróttin stóraukið fylgi sitt á Islandi,
jafnframt því sem skíðaaðstaða hefur stórbatnað.
I nágrenni Reykjavíkur er helst að nefna skíðasvæðið í
Bláfjöllum, sem Reykjavíkurborg og nokkur önnur sveitar- og
bæjarfélög hafa byggt upp á skömmum tíma. Einnig skal nefna
skíðasvæðið í Skálafelli, sem er frábært skíðaland með lyftukosti er
aukist hefur mjög hin síðari ár.
Þjónusta á skíðasvæðunum er fyrir hendi og fullnægir þeim kröfum
sem fólk gerir þegar um dagsferð er að ræða.
En hverjir eru möguleikarnir fyrir hinn almenna borgara, er óskar að
gista yfir helgi eða lengur? Fyrir þann sem ekki er í skíðafélagi eru
valkostir þröngir, a.m.k. í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Markmið. Markmið með verkefninu var að auka möguleika á
gistiaðstöðu og á „skíðafríi” á Islandi, aðstöðu sem allir gætu notið,
án kröfu um félagsskap í einu eða öðru félagi.
Skíða/Ferðamiðstöðin, sem ég hef valið að kalla staðinn, skyldi vera
opin jafnt sumar sem vetur. Að vetri aðallega með skíðafólk í huga.
A sumrin mætti reka staðinn sem ferðamiðstöð (hótel), með
dvalaraðstöðu fyrir fólk sem njóta vill útivistar, hvílast, eða stunda
böð og æfingar sem miðstöðin gefur kost á.
Möguleiki væri að „eldri borgarar” nytu þama hvíldar og hressingar
á sumrin.
Einnig gætu útreiðar/hestamennska auðgað sumaraðstöðu staðarins.
Húsið stæði opið til ráðstefnu- og fundarhalds jafnt vetur sem sumar,
og gæti þetta orðið kærkomin aðstaða fyrir íþróttafélög sem og önnur
félög.
Hin núverandi þjónustumiðstöð skyldi áfram gegna sínu hlutverki.
Val staðar/staðsetning. Staðarval skíðamiðstöðvarinnar í
Bláfjöllum á rætur að rekja til nálægðar staðarins við
höfuðborgarsvæðið.
Svæðið er í eigu og undir stjóm borgar og sveitarfélaga, er móta
grundvöll að rekstri staðarins í þágu almennings. Staðurinn býr yfir
náttúrufegurð og athyglisverðir hellar og eldgígar eru á svæðinu.
Stabarval bygginga. Island er þekkt fyrir óstöðugt veðurfar.
Mikilvægt er að hafa það í huga þegar mannvirki sem skfðamiðstöð
er hannað.
Markmið mitt var að mynda þyrpingu húsa þar sem samspil landslags,
umhverfis og hinna veðurfarslegu skilyrða erí hávegum.
Skíðastaðurinn mótast af nokkrum sjálfstæðum byggingum, þ.e.
70
2
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG