Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Blaðsíða 91
DAGSKRA.
MAÍ.
6.-13. - Sýning á vegum sýningarráðs og A.Í., þarsem félagsmönnum gefstkosturáað sýnahugverk sín. Sýnt verðuríÁsmundarsal, í salnum,
á göngum og í gryfjunni eftir því sem aðstæður leyfa. Útbúnir verða ákveðnirreitir til frjálsra afnota fyrir félagsmenn. í tengslum við sýninguna
verður haldin „Workshop" þar sem nokkrir arkitektar komi saman til þess að leysa ákveðið verkefni.
JÚNÍ.
- Samnorrænn stjómarfundur þar sem stjórnir Norrænna arkitektafélaga koma saman.
- Vettvangsferðir á vegum A.í og Borgarskipulags Reykjavíkur. Almenningi er boðið upp á skoðunarferð um eldri og nýrri hverfi borgarinnar
með leiðsögumanni.
JÚLÍ.
9.-13 - Málþing samtaka kennara í arkitektúr austan (EAAEj og vestan (ACSA) með þátttöku A.í. Þingið verður haldið í Odda.húsi HÍ dagana
6.-9 júlí. Menntamálaráðherra verður vemdari málþingsins.
SEPTEMBER.
- Sýning á verkum Gunnlaugs Halldórssonar arkitekts. Hann var einn af frumkvöðlum „funksjónalisma“ á íslandi og heiðursfélagi í A.í.
Gunnlaugur yrði 80 ára á þessu ári.
OKTÓBER.
7. - Opinn kappræðufundur um gömlu höfnina í Reykjavík og tengsl hennar við miðbæ Reykjavíkur. Fundurinn verður haldinn í samvinnu
við samtökin Gamli Miðbærinn og opinn öllum.
NÓVEMBER.
18. og 19 - Ráðstefna innan A.í. fyrir félagsmenn um stöðu íslenskrar byggingarlistar eftir 50 ár. Hvað hefur áunnist, er til séríslenskur
arkitektúr, hvert stefnir? Ráðstefnan verður haldin í Ásmundarsal.
- Hugmyndasamkeppni fyrir félagsmenn um efnið: Húsið í landslagi. Samkeppnin er frjáls þannig, að þátttakendur geta sjálfir valið landslag
og mannvirki. Hún verður opnuð í lok mánaðarins og skiladagur er mánudagur 19. mars. 1990.
DESEMBER.
- Viðurkenning fyrir íslenska byggingarlist, veitt í fyrsta skipti á 50 ára afmæli A.í. Arkitektafélag íslands veitir viðurkenningu fyrir mannvirki
sem er verðugt framlag til byggingarlistar í landinu. Þess háttar viðurkenning verður fastur viðburður í starfsemi félagsins á komandi árum.
VERÐLAUNASAMKEPPNI
UM VEGGSPJALD
í tilefni af 50 ára afmæli Arkitektafélags íslands var efnt til Fyrstu verðlaun hlaut Guðmundur Bogason. Dómnefnd skipuðu Jes
verðlaunasamkeppni meðal nemenda á 2. námsári í grafískri hönnun EinarÞorsteinsson, SigurðurÖm Brynjólfsson og Bjami Daníelsson.
í Myndlista- og handíðaskóla íslands. Verðlaunatillaga Guðmundar Bogasonar er á næstu síðu.
ARKITEKTUR OG SKIPULAG
89