Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Side 11
Frá Kempervennen í Hollandi.
grundvallaratriði vellíðunar eins og við einhæfari aðstæður.
En einnig er óhætt að hvetja flest fólk til göngu- og hestaferða
næstum hvaða dag sem er, þegar það á kost á lopapeysum og
fisléttum, fullvatnsþéttum göllum. Auðvelt er að snara slíkum
flíkum niður í tösku, þegar léttir til, jafnvel þótt fara þurfi úr og
í nokkrum sinnum á sama degi, eins og skeð getur í
skúraleiðingum.
Orlofsbúöir. Ef „þjónustuþorp” af þessu tagi yrðu það
vinsæl, að grundvöllur reyndist fyrir stækkun sumra þeirra, þá
væri hægt að gera aðstöðuna betur úr garði og miða þá einnig
við fólk, sem vildi vera t.d. viku á sama stað. Afþeim stöðum,
sem nefndir voru áðan, er þá sérstaklega hugsað til Akureyrar
og Egilsstaða, en auðvitað kæmu ýmsir aðrir staðir til greina.
I þessu sambandi má benda á sumarleyfisþorp erlendis, sem
víða hafa náð geysilegum vinsældum.
Þekktast meðal Islendinga er líklega „Kempervennen” í Hol-
landi, sem einkum var reist í þeim tilgangi að halda Hollend-
ingum meira heima við í fríum sínum. Þar er byggt yfir svo
stórt sundlaugasvæði og „miðbæ”, að ekki verður leikið eftir
hér á landi, en hugmyndina má hafa til viðmiðunar og sníða
stakk eftir vexti.
Þetta leiðir hugann að framkvæmd og eignaraðild. Einhvers
konar hlutafélag eða samvinnurekstur gæti hentað á þann veg,
að einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir ættu fleiri eða færri hús
í svona þorpi (þorpum) og sameiginleg yfirstjórn sæi um að
leigja gistiaðstöðuna, þegar hún væri ekki notuð af eigendum.
Sumar þjónustugreinar tengdust þessum rekstri beint, en reynt
yrði að leigja sem flestarþeirra fólki, sem vildi takahina ýmsu
rekstrarliði að sér og fara eftir reglum orlofssvæðanna.
Æskilegt væri að svæðin yrðu notuð meira eða minna allt árið
og er þá enn helst hugsað til Akureyrar og Egilsstaða. Við
áðumefnda tómstundaaðstöðu mætti þá t.d. bæta golfi og
síðan siglingum á Pollinum og Leginum, en á veturna veiði í
gegnum ís, svo og skautum og skíðum. Enda virðist ekkert því
til fyrirstöðu, að aðrir ferðamenn en þeir sem gistu á svæðinu,
svo og íbúar á nærliggjandi stöðum gætu notið þjónustunnar
að meira eða minna leyti, en um leið styrktu þeir
rekstrargrundvöllinn.H
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
9