Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Síða 86

Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Síða 86
lýsingu á því hvemig tillögur um breytingar á texta eða korti eru gerðar. Landeigandi verður að vita í hvaða flokki landnotkunar (í hvaða reit) eign hans er á kortinu til þess að vita hvaða hluti reglugerðarinnar á við eign hans. Reitun í New York borg er skipt í þrjá meginflokka eftir landnotkun: íbúðarreiti (10 flokkar, R1-R10), verslunar- og viðskiptareiti (8 flokkar, C1-C8) og iðnaðarreiti (3 flokkar, M1-M3). I hverjum reit eru ákvæði um: • Leyfilega notkun. • Byggingarmagn. • Fjölda íbúða eða herbergja á lóð. • Fjarlægð milli húss og götu. • Fjarlægð milli húss og lóðarmarka. • Fjölda bílastæða. • Önnur ákvæði sem eiga þá sérstaklega við einhvem hinna ýmsu flokka. I íbúðarreitum er t.d. kveðið á um hver minnsta lóðarstærð megi vera og hlutfall opins svæðis á lóð. Af íbúðarreitum hefurR-1 lægstanýtingarhlutfallið,0.5og R- 10 hæsta, 10.00 og 12.00 ef uppbót er gefin. Vissar stofnanir, t.d. skólar og hverfisverslanir eru leyfðar í íbúðarreitum. Af verslunar- og viðskiptareitum eru C-1 og C-2 ætlaðir til þess að þjóna hverfum og C-5 og C-6 miðbæjarkjamanum (Central Business District) og þjóna þá bæði borg og svæði umhverfis hana. I þeim síðastnefndu getur nýtingarhlutfall orðið allt að 18.00. Ibúðir og hverfastofnanir eru leyfðar í C- 1 - C-6 en ekki í C-7. í C-8 eru íbúðir ekki leyfðar, en hverfastofnanir. Iðnaðarreitir (manufacturing) eru flokkaðir eftir því hvaða mengun þeir geta valdið. Þar sem mest hætta er á mengun eru þeir reitir hafðir fjærst íbúðarhverfunum. Uppfylla verður ákvæði um hættu á mengun eins og hávaðamengun, loftmeng- un, titring, rykefni í lofti, lykt, skaðleg efni, geislavirkni, eld- og sprengihættu. Ibúðireru ekki leyfðar í iðnaðarreitum en þó eru undantekningar gerðar frá reglugerð eins og t.d. í SoFIo- hverfi á Manhattan þar sem vinnustofur listamanna og íbúðir eruáiðnaðarsvæði. Nýtingáiðnaðarreitunumerfrá 1.0 til 5.0. FRÁVIK OG NÝJUNGAR í REITUN Frávik frá reglugerð um reitun eru breytingar, undanþágur og skilorðsbundinnotkun. Breytingareruþóaðeinsgerðarefþær eru álitnar til heilla almenningi. Undanþágur eru notaðar til þess að draga úr þeirri ósanngirni sem getur falist í reitun, t.d. þegar landeigandi á erfitt með að uppfylla ákvæði í reit vegna lögunar lóðar. Skilorðsbundin er notkun sem ekki hafði verið gert ráð fyrir í reit en er álitin nauðsynleg og er leyfð ef hún spillirekki yfirbragði byggðar. í ibúðarreitgeturskilorðsbundin notkun t.d. verið vatnstum. Dæmi um nýjung í reitun eru flutningur á byggingarrétti, sérstök svæði og svæði þar sem náttúrlegt umhverfi ræður meira um skipulag en ákvæði landnotkunar í reglugerð. I Bandaríkjunum hefur landeigandi rétt til þeirrar loftsúlu sem er fyrirofan eign hans. Ef eigandi kýs að notaekki þennan rétt eða í mjög litlum mæli má hann selja eða leigja hann. Dæmi um þetta er loftsúlan fyrir ofan jámbrautateina. Flutningur á þessum rétti til aukins by ggingarmagns til nágranna er leyfður ef stjómvöld hafa bannað frekari uppbyggingu á landareigninni en telja að aukning megi eiga sér stað í nágrenninu. Sérstök svæði eru hverfi þar sem landnotkun er sérstök eða í sérstökum tilgangi. Þetta hugtak er þrengra en hin hefðbundna flokkun landnotkunar og á við t.d. hótel-/mótelhverfi, leikhúshverfi eða hverfi þar sem á að varðveita sögulegar minjar. Markmiðið með þessari þröngu flokkun er í fyrsta lagi að koma í veg fyrir að þrætumál rísi milli íbúa og stofnana þegar sótt er um undanþágur frá reglugerð um reitun og í öðru lagi til þess að varðveita hverfi sem hafa sérkenni og eiga á hættu að breytast vegna þenslu byggðar umhverfis þau. A sérstökum skipulagssvæðum falla venjuleg ákvæði reitun- ar niður og leyfilegt er að auka nýtingu með því að þjappa byggð saman og nýta hluta svæðisins fyrir opin svæði íbúunum til handa. Einnig er leyft að blanda hústegundum saman. STJÓRNUN Lögfræðilega séð er reitun það sem nefnt er í Bandaríkjunum „löggæsluvald”. Það er vald ríkis til þess að stjóma starfsemi einkaaðila vegna heilbrigðis, öryggis, siðferðis og velfamaðar almennings. Þetta vald felst í löggjöf ríkja. Sveitarfélög hafa ekki þetta vald nema að því marki sem ríkið veitir það. Viðurkenning á því að þetta löggæsluvald megi nota til þess að hafa stjórn á landnotkun fékkst árið 1922 þegar Hæstiréttur Bandaríkjannastaðfesti lögmæti reglugerðarum reitun í bænum Euclid, Ohio. Reynslan hefur yfirleitt verið sú að reitun hefur komið á undan skipulagi bæja og borga. Reglugerðin sem sett var árið 1916 í New York borg kom t.d. 53 árum áðuren fyrsta heildarskip- ulagið varð til fyrir borgina og 22 árum áður en fyrsta skip- ulagsnefnd hennar var stofnuð. Það er þó viðurkennt að reitun ætti að vera byggð á og samkvæm stefnu í skipu- lagsmálum og að heildarskipulag sé grundvöllur reitunar. Reitun ertalin áhrifamestatækið til þess að stjóma landnotkun og er sú aðferð sem er víðast notuð í Bandaríkjunum til þess að hafa stjóm á landnotkun og uppbyggingu á landi. Nær því öllum stórum borgum þar í landi er skipt í reiti og fleiri litlar borgir og smærri sveitarfélög eru farin að nota reitun sem stjómunartæki. Mikilvægt atriði í þessu sambandi er að byggingarverktakar og þeir sem stunda fasteignaviðskipti viðurkenna reitun sem stjóm yfirvalda á uppbyggingu lands. HELSTU HEIMILDIR Bamett, Jonathan. 1982. AnlntroductiontoUrbanDesign. New York.Harper/Row, Publishers. ThePracticeofLocalGovernmentPlanning. 1979. Wash- ington, Intemational City Management Association. Munici- pal Management Series. Ritstjóri: David S. Amold. Zoning Handbook of New York. I 84 ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.