Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 41

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 41
Kortin sýna svæðisÞörf og þéttleika byggðar. Á kortinu til vinstri hefur fullt tillit verið tekið til umhverfisverndunar; kortið til hœgri sýnir óbreytta áframhaldandi þróun. Eitt helsta vandamálið hefur verið að finna þróunarleiðir sem stuðla að fleiri markmiðum en einu og gefa góða heildarniðurstöðu hvað umhverfið varðar. Nýlega hafa verið gefnar út skýrslur fyrir hvert rannsóknarsvæði, þar sem sýndar eru mismunandi leiðir til byggðaþróunar næstu 30 ár, með náttúru- og umhverfisvernd að markmiði. Á fyrra stigi þessa verkefnis skilgreindum við hvers konar þróun við gætum búist við ef við héldum áfram eins og við höfum gert. Á næsta stigi mun verða gerð grein fyrir því hvaða afleiðingar það hefur að taka fullt till- it til umhverfismála og þessir kostir bornir saman. Að endingu munum við svo gera grein fyrir því hvað nauðsynlegt er að hafa að leiðarljósi vilji menn stefna að þéttbýlisþróun sem tekur fullt tillit til um- hverfisverndar. ÞÉTT BYGGÐ OG GOTT UMHVERFI GETA FARIÐ SAMAN Getur jafnmikil byggðaþróun og við sjáum fyrir og umhverfisvernd farið sam- an? Við fáum fyrst svar við þessu þegar niðurstaða liggur fyrir úr næsta áfanga rannsóknarverkefnisins. Þó teljum við okkur geta sagt fyrir nú þegar út frá þeim niðurstöðum sem liggja fyrir, að það er hægt, ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt. Svarið er skilyrt vegna þess að einungis er hægt að taka fullt tillit til umhverfisverndar með því að landnotkun, byggðaþróun og samgöngumál verði í grundvallaratriðum ólík því sem þau eru í dag. Til þess að gefa yfirlit yfir þessa vinnu þá held ég mig við reynslu frá Borre/ Horten (sem er bær með um 23,000 íbúa). Vinna á öðrum rannsóknarsvæðum er með mjög svipuðum hætti og niðurstöðurnar eru líka mjög áþekkar. Ef draga á úr orkunotkun og minnka útblástur frá bifreiðum, án þess að jafnframt sé dregið úr velferð og virkni þá er nauðsynlegt að byggt sé þétt. Mikill hluti af þessari þéttingu verður að eiga sér stað innan núverandi þéttbýlis. Þetta er líka nauðsynlegt til þess að koma í veg fyrir að byggt sé á svæðum sem hafa mikið umhverfislegt og menningarlegt gildi. Við þurfum að nýta byggingarlóðir betur á nýjum byggingarsvæðum og á íbúðarsvæðum þarf að vera barnaheimili, hverfisverslun, skóli og pósthús innan göngu-/hjólreiðafjarlægðar. Þetta fyrir- komulag léttir fólki hversdagsstörf og myndar grundvöll fyrir hagkvæma almenninflutninga. Ný byggð sem ekki er hægt að finna stað innan núverandi byggðasvæða á að vera í tengslum við núverandi þéttbýli þar sem aðgangur að almennings- flutningakerfinu er góður. Því er oft haldið fram að þétting byggðar sé í mótsögn við gott umhverfi í viðkomandi hverfi. Þetta þarf ekki að vera satt. í athugun á þéttingarmöguleikum í Horten höfum við t.d. sýnt að hægt er að koma fyrir 3300 nýjum íbúðum á núverandi byggðasvæðum, það er um 60% aukning á núverandi íbúðafjölda. Þessi aukning næst samtímis því að aðgangur að almenningsgörðum og útivistarsvæðum er bættur verulega og byggðasvæðin eru gerð „grænni" með markvissri gróðursetningu. Lykilatriði er að flytja náttúruna inn í þéttbýlið til þess að hlífa náttúrunni. Þétting ætti fyrst og fremst að eiga sér stað á núverandi byggingarlóðum og á svæðum sem þegar eru undir áhrifum frá aðliggjandi þéttbýli. Hægt er að mynda umtalsverð byggingarsvæði með því að minnka það svæði sem notað er fyrir um- ferð og bílastæði í þéttbýli. Ef við viljum draga úr bifreiðaumferð þá er hvorki æskilegt né nauðsynlegt að ráðstafa jafn- miklu landi fyrir vegi og bifreiðaumferð og í dag. NOTUM UPPFYLLINGAR OG UMFERÐARSVÆÐI Það er vel þess virði að gera sér grein 39
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.