AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Síða 45

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Síða 45
SJÁVARÚTVEGUR Á ÍSLANDI 2018 Að spá er ekki mín uppáhaldsiðja. Spár hljóta flestar þau örlög að bera hugarfari eigin tíma sterkt vitni, um leið og þær sýna hvað margt fór allt öðruvísi en ætlað var. Þróunin ræðst að miklu leyti af þáttum sem erfitt er að sjá fyrir, - þeirra mikilvægastur er ný þekking, - nokkuó sem engin leið er að spá um. Minnug þessa treysti ég mér ekki til að spá um það hvernig sjávarútvegi verður háttað á íslandi eftir 20 ár, - en ég get reynt að rýna fram á veginn og benda á ýmsa þætti sem líklegir eru til að hafa áhrif á þróun sjávarútvegs á næstu áratugum. FORTÍÐIN Vilji maður skyggnast 20 ár fram í tímann getur verið hollt að líta um öxl og athuga hvar við vorum stödd fyrir tuttugu árum. Hverju hefðum við þá spáð um stöðu sjávarútvegs á íslandi árið 1996? Árið 1976 var bátaútgerð ráðandi hér á landi, skut- togarar voru að ryðja sér til rúms um leið og síðutog- urunum frá Nýsköpunartímabilinu var lagt. Fyrsta svarta skýrsla Hafrannsóknastofnunarinnar leit dags- ins Ijós um þetta leyti og umræðan hófst um að flotinn væri of stór miðað við ástand fiskistofnanna hér við land. Árið 1976 voru enn sjö ár í það að kvótakerfinu var komið á, til eins árs í tilraunaskyni, eins og það var kallað. Frystitogarar áttu ekki upp á pallborðið hjá íslendingurm þá. Þeir voru í eigu útlendinga, voru kallaðir ryksuguskip og menn höfðu almennt skömm á þeim. NÚTÍÐIN Það hefur nánast orðið bylting í útgerðarháttum okkar á síðustu árum. Togurum og smábátum fjölgaði mjög átímabili, en bátum af millistærð, sem áðurvoru uppi- staðan í flotanum, hefur fækkað svo um munar. íslendingar hafa fjárfest gífurlega í frystitogurum og þeir eru nú rúmlega þrjátíu talsins. Þeir ógna að sumu leyti afkomu landvinnslunnar.en draga jafnframt björg í bú af fjarlægum miðum sem erfitt er að sækja á ísfisktogurum. Kvótakerfið hefur valdið grundvallar- breytingu á útgerðarháttum, sem enn sér ekki fyrir endann á. Opnir fiskmarkaðir og frjáls verðmyndun eru einnig nýlunda og gefa þeirri vinnslu, sem ekki er tengd útgerð, nýja möguleika. Eftir því sem lög- saga þjóða hefur stækkað, hafa þeir sem áður öfluðu fyrir eigin markað með gríðarstórum úthafsveiðiflot- um, eins og Portúgalar, Spánverjar, Frakkar og Jap- anir, haft minna svigrúm til veiða á úthöfunum. Veiðar þeirra hafa dregist saman og þeir kaupa fisk í aukn- um mæli, sem kemur íslendingum til góða. Síðast en ekki síst hafa íslendingar haslað sér völl erlendis í veiðum, vinnslu og sölu sjávarafurða. Þeir hafa keypt hlut í erlendum útgerðum.stofnað sjávarútvegsfyrir- tæki í ýmsum heimshlutum og tekið að sér að selja sjávarafurðir erlendra framleiðenda. FRAMTÍÐIN Margir þættir munu ráða framtíð okkar í sjávarútvegi. Um einhverja tauma getum við sjálf haldið og reynt aó stýra af viti, - en um annað fáum við litlu ráðið. Stjórnmálaástandið í markaðslöndum okkar og geng- issveiflur ráða miklu um magn og verð þeirrar vöru sem við getum selt, - eins og nýleg dæmi sýna frá mörkuðum okkar í Sovétríkjunum fyrrverandi, sem gerbreyttust á örskömmum tíma. Breytingar á tolla- múrum og öðrum viðskiptahindrunum munu ýmist opna eða loka leiðum. Eftir þvísem fiskveiðilögsaga einstakra ríkja verður færð út, minnkar svigrúm til út- hafsveiða. Þeir sem vilja veiða munu annaðhvort semja um eða kaupa sér aðgang að veiðum hjá þeim sem hafa ráðstöfunarrétt yfir veiðisvæðunum.eins og gerðist milli Spánar og Marokkó í fyrra. Þetta verður framhald á þeirri þróun sem við þegar sjáum milli íslands og Noregs, þar sem stjórnvöld eru farin að ræða möguleika á því að skiptast á veiðiheimildum eftir því hvernig árar hjá hvorum um sig. Það er spurning hvernig sjávarútvegur þróast í þriðja heiminum. í dag eiga þjóðir þar langt í land með að 43 GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR FORSTM. SJÁVARÚTV.ST. H.í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.