AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Síða 57
FRAMTIÐAR -
STOFNUN-
Hvað er það?
VAÐ KEMUR TIL?
Áriö 2000 hefur í vitund núlifandi kyn-
slóöar haft á sér Ijóma fjarlægrar fram-
tíöar en er nú skammt undan. Við ald-
arlok og á mótum árþúsunda er viö hæfi aö huga að
framtíðinni og skoöa nútímann í Ijósi hennar.
Fólk á liðnum árum og öldum hefur mótaö nútímann.
Framtíð þess er okkar nútíð. Viö sem nú erum uppi
erum í sömu stöðu gagnvart komandi kynslóðurm:
Nútíminn veröur þeirra fortíö og okkar framtíð þeirra
fortíö. Framtíðin blasir viö eins og safn möguleika
sem viö veljum úr meö ákvörðunum okkar á líðandi
stund - á meðvitaöan eöa ómeðvitaðan hátt. Þaö
skiptir máli að valið sé farsælt.
HVAÐ ER FRAMTÍÐARSTOFNUN?
Nýlega tóku sig saman 12 einstaklingar og settu á
laggirnar Framtíðarstofnun til þess „að vera aflvaka
og vettvang umræðu um framtíðina og stöðu íslands
í samfélagi þjóða”, eins og segir í stofnsamþykktinni.
Að þessu stendur fólk sem vill örva umræðu um brýn
hagsmunamál sem tengjast komandi tíð. Aðstand-
endurnir telja þörf fyrir slíkan vettvang sem stendur
utan við bein hagsmuna- og stjórnmálatengsl og
getur gegnt því hlutverki að leiða saman ólík sjónar-
mið til eins hlutlægrar greiningar og kostur er á mikil-
vægum málefnum sem varða þróun íslensks sam-
félags.
Framtíðarstofnun er ekki ætlað að spá um framtíðina
eða fella dóma um ákvarðanir eða stefnur. Henni er
fremur ætlað að vekja spurningar og greina viðfangs-
efnin og þannig hjálpa einstaklingum, fyrirtækjum og
stofnunum að öðlast betri skilning á mikilvægum þátt-
um sem móta framtíðina og þar með vonandi taka
farsælar ákvarðanir.
Stofnendurnir hafa fengð til liðs við sig um þrjátíu
manns í trúnaðarráð sem valið er til tveggja ára í
senn. Trúnaðarráðið kýs fimm menn í stjórn til eins
árs í senn og er trúnaðarráðið stjórninni til ráðuneytis
um stefnumótun og verkefnaval. í trúnaðarráðinu sitja
fulltrúar af ýmsum sviðum þjóðlífsins; úr atvinnu- og
viðskiptalífi; opinberri stjórnsýslu; frá mennta- og
fræðastofnunum og af vettvangi félagsmála og lista.
í stjórn Framtíðarstofnunar sitja nú:
Páll Skúlason, prófessor, formaður, Steingrímur Her-
mannsson, seðlabankastjóri, varaformaður, Hulda
Valtýsdóttir, blaðamaður, ritari Jón Jóel Einarsson,
gjaldkeri, Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri,
meðstjórnandi Framtíðarstofnunin mun leitatil stuðn-
ingsaðila,einstaklinga,fyrirtækja ogstofnana um fram-
lög til greiðslukostnaðar af verkefnum sem hún tekur
sér fyrir hendur, en öll störf fyrir hana eru ólaunuð.
HVERS VEGNA FRAMTÍÐARSTOFNUN?
íslendingar hafa ekki tamið sér að hugsa til langs
tíma en hefur tekist að byggja upp nútímalegt þjóð-
félag sem er í fremstu röð meðal þjóða. Þeir hafa að
ýmsu leyti tileinkað sér hætti veiðimanna og með
atorku og snarræði gripið þau tækifæri sem hafa gef-
ist, endafiskveiðar bókstaflega verið undirstaða þjóð-
arbúskaparins að stórum hluta alla þessa öld.
55
VILHJÁLMUR LÚÐVÍKSSON FRAMKV.STJ.