AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Síða 62

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Síða 62
N Ý J Nýr vörulisti frá RÖNN- ING á bók, geisladiski og Internetinu Ný útgáfa af vörulista Johan Rönning hf er komin út, en nú eru fimm ár frá síðustu útgáfu. Fyrsti vörulisti fyrirtæk- isins kom hins vegar út fyrir 32 árum. Þá voru vörunúmerin 200 talsins en nú eru þau þau um 5300. Frá síðustu útgáfu hefurvöruúrval auk- ist mikið og er vörulistinn alls 440 síður með 1700 myndum. Hann er eins og áður alfarið unninn af starfsmönnum Johan Rönning hf, í tölvukerfi fyrirtæk- isins. Samhliða prentaðri útgáfu er vörulist- inn gefinn út á geisladisk (CD-ROM) fyrir tölvur, og hann er einnig á heima- síðu fyrirtækisins á Internetinu (http:// www.ronning.is). Rafræn útgáfa er tvimælalaust útgáfumáti framtíðarinnar og Johan Rönning hf leggur metnað sinn í það að vera fyrsta fslenska fyrirtækið til að gefa út vörulista á þessa þrjá vegu. Vörulistinn hefur að geyma itarlegt yfir- lit vöruúrvals fyrirtækisins, og hann er nokkurs konar uppsláttarrit um rafbún- að. Listanum er skipt í 13 kafla, sem hver um sig samanstendur af nokkrum vöruflokkum. Kaflarnir nefnast: Raf- strengir, Tengibúnaður, Rafveitubún- aður, Innlagnaefni, Rofar og tenglar, Lagnaleiðir, Töflubúnaður, Stýribúnað- ur.Mælar, Rafmótorar, Hitatæki, Ljós- búnaður og Heimilistæki. U N Johan Rönning hf var stofnað árið 1933 og er núna ein af stærstu og rót- grónustu heildverslunum landsins og leiðandi á sínu sviði með mikla mark- aðshlutdeild í rafmagnsvörusölu. Fyrirtækið er umboðsaðili fyrir marga rafbúnaðarframleiðendur, sá stærsti er ABB-samsteypan, en búnaður frá ABB er bæði í virkjunum okkar sem og flutn- ings- og dreifikerfum landsins. Rafmagnsvörur krefjast sérfræðiþekk- ingar og allir starfsmenn Johan Rönn- ing hf, alls 25 talsins, eru sérhæfðir á sínu sviði.viðskiptafólk,rafvirkjar, raf- magnstæknifræðingar og rafmagns- verkfræðingar. Áhersla er lögð á góða heildarþjónustu við viðskiptavini, hvort sem þá vantar lítinn rofa eða heilt orku- ver. ■ GLUGGAR OG GARÐHÚS: uPVC GLUGGAR OG HURÐIR Frá þvf menn fóru að byggja sér hús til íveru hafa þeir notað tré til glugga- og hurðagerðar en tekist misvel til. Hin síðari ár hafa gerviefni verið þróuð sem leysa timbur af hólmi. Eitt þeirra er PVC. Við skulum nú skoða hvaða rök hníga að því að velja PVC í stað viðar til Glugga og hurðasmíða. 1. Hversu góður sem viðurinn er og hversu vönduð sem vinnslan er þá þenst hann og þrútnar við upptöku raka. Þess vegna gengur oft illa að fá málningu eða aðra yfirborðsvörn til að loða við hann. uPVC er litekta, með sléttri áferð, þrútnar ekkert í raka.breyt- G A R ist lítið við hitabreytingar og er þess vegna viðhaldsfrítt og getur enst í heilan mannsaldur. 2. Öll höfum við kynnst opnanlegum fögum sem standa föst þegar opna skal eða lokast ekki vegna þess að þau hafa þrútnað. Á PVC gluggum þekkist það ekki af fyrrgreindum ástæðum. 3. Oft vinda útihurðir sig þannig að rifa myndast bæði að ofan og neðan því önnur hliðin snýr út í allt að 100% raka en hin hliðin inn þar sem er þurrt og hlýtt. Hurð úr PVC vindur sig ekki, hún leggst í tvöfaldan þéttikant og læs- ist á 5 stöðum. Það „pískar" því ekki inn með henni þótt rigni lárétt. 4. ísetning PVC glugga og hurða er auðveld og glerjun mjög fljótleg. Glerlistum er smellt í þar til gerðar raufar og yfirkíttun engin. Glugga- rammarnir eru soðnir saman á hornun- um, en áður er heitgalvaniseruðu stáli rennt inn í þá til styrktar. 5. Sú tíð er liðin að fólk vilji eyða frítíma sínum í endalaust viðhald, skrap og málun. Á íslandi sem annars staðar er fólkfarið að spyrja bæði um verð, gæði og endingu. Af framansögðu má vera Ijóst að með tilkomu uPVC er komið til sögunnar efni sem er að mörgu leyti æskilegra en viður í glugga og hurðir. Verð hefur lækkað á undanförnum árum á sama tíma og timbur hefur hækkað. f dag er verð á uPVC glugga hliðstætt timbur- glugga sem keyptur er fullmálaður. Gluggar og Garðhús hafa 12 ára reynslu af smíði glugga, hurða, sól- stofa o.þ.h. úr uPVC og álstyrktu uPVC. Einungis er notað þýskt hráefni frá viðurkenndum framleiðanda með ISO staðal 9000. ■
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.