AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Page 68

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Page 68
á, að fara þyrfti lengra í að draga upp mynd af því hvernig valkostirnir fimm litu út að því er varðar ávinn- ing og hættur og einnig er varðar nauðsynlegar fjár- festingar og framkvæmdir. Þetta þýðir að ekki dugir að teikna upp eitt framtíðar- landsskipulag, heldur þurfi að draga upp frumdrætti skipulags fyrir alla fimm valkostina. í uppdrætti fyrir Orkuvinnslu- og Stóriðjuleið, sem myndi sýna marg- földun á umsvifum miðað við í dag, kæmi t.d. fram mikill fjöldi raflína, uppistöðulóna sem og stóriðju- svæða, með tilheyrandi mengunardreifingu. Megineinkenni Ferðaþjónustuleiðar væri hinsvegar mikill fjöldi nýrra ferðavega til að dreifa umhverfis- álaginu sem víðast um landið. Til að geta byrjað á að teikna upp og kanna þennan valkost, sótti greinar- höfundur um styrk til Vegagerðarinnar. Hefur hann nú unnið að þessu verkefni í tæp tvö ár. Kominn er fjöldi nýrra ferðaleiða á kort, en skipulag myndi síðan velja úr þær bestu. Heillandi er sá möguleiki, fyrir fslendinga sjálfa, að geta kynnst ýmsum nýjum stöðum á slíkum framtíðarferðaleiðum. VAL Á LEIÐ ER VAL Á MENNINGU ísland hefur nú um langt skeið fyrst og fremst verið land sjávarútvegs, — og hefur það reynst farsælt. Nú er hins vegar þörf á að auka uppbyggingu ann- arra atvinnuvega, því tæpast fjölgar fiskunum mikið, og skynsamlegt er að fá fram þróaðri og fjölbreytt- ari atvinnutækifæri, ef unga fólkið á að vilja búa hér. Þekkingariðnaður á tæknisviðinu er æskilegur,' en samkeppnisaðstaðan er lakari hér en erlendis, og störfin nokkuð vélræn. Stóriðjan er líka vélræn og býður fá þróuð störf. Verndunar- og friðarleiðin hljóm- ar vel í fyrstu, en erfitt er að benda á mikla tekju- möguleika í sambandi við hana, í viðbót við það, að þar kynnum við að vera að gefa okkur út fyrir eitthvað sem saga okkar og framganga, t.d. í úthafsveiðum, rímar illa við. Einna vænlegast sýnist mér sambland af öllum fyrr- greindum leiðum, með t.d. 4-5 stóriðjuverum í viðbót, ferðamannaaukningu allt að 1/2 milljón gesta, sjávar- útvegi með umhverfisvænni tækni, aukinni úrvinnslu á matvælum og svo uppbyggingu þekkingartækni, sem hjálpað getur við að þróa og auka arðsemi af fyrrgreindum atvinnuvegum. Með þessu mynduðust ýmis störf sem byggjast á sérþekkingu og atvinnulífið og þjóðlifið á íslandi yrði jafnvel enn fjölbreyttara og skemmtilegra en nú er. ■ Dæmi um útfærslu á feröaþjónustuleið á Austurlandi. Ferðahring- leiðir út frá Egilsstöðum (hringur) eru nauðsynlegar, — og aðeins þannig eykst streymi ferðamanna um firðina. sjávarúfveginn. Hin strjála byggð á NA-landi og hafnleysið á S- landi gerir öflugan kjarna á A-landi mikilvægan. Út frá landfræðilegum staðreyndum skiptist landið á eðlilegan hátt í þrjá þriðjunga en ekki fjóra fjórðunga. Kjarni á A-landi er mjög mikilvægur vegna hagkvæmustu sóknar á miðin. 66

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.