AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Síða 73

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Síða 73
VIN N UAÐSTAÐA Mikilvægt er aö þeir hlutar starfseminnar sem tengj- ast séu aðlægir þannig að göngu- og flutningsleiðir séu sem stystar. Umferðaleiðir þurfa að vera það rúmar á breidd og hæð að hjálpartæki rúmist og hægt sé að handleika byrðar í uppréttri stöðu. Of oft sjást dæmi þess að starfsmenn þurfa að bogra með byrðar t.d. í þröngum vörugeymslum þar sem lágt er til lofts. Lýsing þarf að vera nægileg. Gólf þurfa að vera slétt og án hæðarmunar, t.d. þröskulda, svo auðvelt sé að nota hjálpartæki. Gæta þarf þess að gólfefni séu ekki hál. Nauðsynlegt er að búnaður t.d. vinnuborð, vél eða flutningsband sé þannig að hægt sé að vinna í þægilegri vinnuhæð með beint bak og slakar axlir. Æskilegt er að auðvelt sé að aðlaga búnaðinn starfs- mönnum. Forðast skal hæðarmun eða bil í vinnslu- einingum þannig að lyfta þurfi byrðum á milli með handafli. Einnig þarf að gæta þess að seilingar- fjarlægð I byrðar, sem oft eru handleiknar, sé innan þægilegs vinnusviðs þannig að ekki þurfi að teygja sig eða vinda hrygginn. Rými þarf að vera nægilegt svo hægt sé að koma að nauðsynlegum búnaði og hjálpartækjum og jafn- framt að beita líkamanum á heppilegan hátt. Nauð- synlegt er að hægt sé að standa I uppréttri stöðu og þétt að byrðinni til að draga úr álagi. Rými þarf að vera nægilegt fyrir aftan starfsmann og til hliðar svo hann geti notað þungaflutning eigin líkamatil að létta sér verkið þegar byrðin er færð úr stað. í sumum tilvikum þarf að gera ráð fyrir að tveir eða fleiri starfs- menn geti unnið samtímis við sama verkið ef hjálpast þarf að við að flytja byrðar. Mikið álag skapast við að lyfta byrðum fyrir ofan axlarhæð og fyrir neðan hné. þvl þarf að skipuleggja vinnusvæði þannig að byrðar sem lyfta á með handafli séu hafðar fyrir ofan hnéhæð og fyrir neðan axlir. HJÁLPARTÆKI OG BYRÐAR Nota á hjálpartæki svo sem minnst þurfi að lyfta og bera. Þau þurfa að vera aðgengileg fyrir starfsmenn og þægileg og örugg í notkun. Mikilvægt er að skil- greina þær kröfur sem hjálpartæki á að uppfylla áður en valið er og bera saman/prófa mismunandi valkosti. Huga þarf að staðsetningu og fyrirkomulagi stjórn- búnaðar svo auðvelt sé að ná til hnappa og stjórna tækinu. Lyftarar, kerrur og vagnar þurfa að vera stöð- ug en jafnframt auðveld í akstri. Ekki hafa verið settar neinar tölur um hámarksþyngd byröa sem einstaklingar mega handleika. Hæfileg þyngd ræðst m.a. af aðstæðum við vinnu, stærð og lögun byrðarinnar, hættu vegna skyndilegs álags þegar fólki er lyft o.fl. Mun erfiðara er t.d. að lyfta 25 kg plötu sem er 2x1 m en jafnþungum kassa sem er lítill og gott að ná taki á. Því þarf að meta aðstæður hverju sinni. Þaó er erfitt fyrir hönnuði að hafa áhrif á þyngd og lögun fólks og dýra. Öðru máli gegnir um framleiðsluvörur. Hanna þarf og velja umbúðir byrða sem flytja þarf með handafli þannig að byrðin sé þægileg viðkomu, auðveld að ná taki á og hæfilega þung. VINNUSKIPULAG í reglunum er kveðið á um að skipuleggja eigi vinnu þannig að ef starfsmenn handleika byrðar í sífellu skuli hvíla þá með öðrum verkefnum eða koma fyrir hléum til að draga úr hættu á heilsutjóni. Þegar meta á álag skiptir máli að huga ekki aðeins að þyngd einstakra byrða heldur einnig að heildarþyngd þeirra byrða sem starfsmenn handleika yfir daginn.Ef starfs- maður getur ekki haft áhrif á vinnuhraðann er meiri hætta á því að hann verði fyrir óheppilegu álagi en ella. LOKAORÐ Hér að framan hefur verið varpað Ijósi á ýmsa þætti sem hafa þarf í huga við hönnun til að draga megi úr óþægindum og hættu á heilsutjóni. Ég hvet alla þá sem á einhvern hátt tengjast og/eða bera ábyrgð á hönnun vinnustaða að kynna sér reglur þessar í heild en þær eru fáanlegar hjá Vinnueftirliti ríkisins um land allt. ■ Heimildaskrá: 1. Ólöf Steingrímsdóttir o.fl. Einkenni frá hreyfi- og stoðkerfi meðal íslendinga, Læknablaðið 1988:74:223-32. 2. Hagberg M., Kilbom Á., Buckle P. o.fl. Strategies for pre- vention of work-related musculoskeletal disorders. Consen- sus paper. Int J Ind Erg 1993;11:77-81. 3. Arbejdsmiljofondet. Nár EGA skal afskaffes,en hjælp til virksomhedens indsats mod Ensidigt Gentaget Arbeide, Danmörk 1995. ISBN. 4. Vinnueftirlit ríkisins: Varnir gegn álagseinkennum, Tema Nord 1994:514. þróun aðferða til að meta álag og vinnuskilyrði á Norðurlöndum, Reykjavík 1994. 5. Kilbom Á. og Hagberg M. Arbetsrelaterade muskuloskel- etala sjukdomar - riskyrken ooch riskfaktorer. Arbete och hálsa 1990:19, Stockholm 1990. ISBN 91-7045-069-2. 71
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.