AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Page 74

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Page 74
STEFAN JONSSON P U N O G G L E R S L í Arið 1922 markaði þáttaskil í sögu gleriðnaðar á íslandi. Þá kom til lands- ins ungur maður að nafni Ludvig Carl Christian Adolph Storr, í daglegu tali nefndur Ludvig Storr. Hann setti á fót verslun sem seldi gler og spegla sem hann flutti inn tilbúið frá ýmsum fyrirtækjum í Evrópu. Þegar fyrirtækið var tveggja ára flutti það um set að Laugavegi 11 og var þar næsta áratuginn. Árið 1937 byggði hann nýtt hús- næði að Klapparstíg 16 og flutti fyrirtækið þangað sama ár. Ennfremur fékk fyrirtækið nýtt nafn, Gler- slípun og Speglagerð hf. sem það heitir enn í dag. Til þess að koma fótum undir fyrirtækið voru ráðnir glerslípunarmeistarar frá Þýskalandi og Belgíu og ruddu þeir brautina fyrir iðngreinina hér á landi. All- flestir sem numið hafa iðngreinina hér á landi hafa lært hjá Glerslípun og Speglagerð hf. Árið 1994 markaði þáttaskil í sögu fyrirtækisins er það flutti í nýtt og betra húsnæði í Skeifunni 5, þar er öll aðstaða mun betri og meiri möguleikar til að auka þjónustuna. Með tímanum hefur vinnsla og gerð spegla þróast, komið hafa til sögunnar fullkomnari tæki en áður þekktust, eins hefur t.d. gerð spegla tekið miklum breytingum. Áður voru speglar „lagðir" hér heima en nú koma speglar til landsins í stórum skífum sem síðan eru skornar niður eftir óskum hvers og eins. Daglega koma til okkar viðskiptavinir með mismun- andi óskir, sumar auðveldar úrlausnar, aðrar flóknari. Hér á eftir ætla ég að stikla á stóru á þeim möguleik- um og þeim lausnum sem við bjóðum viðskiptavinum okkar. SPEGLAR Speglar eru til í mismunandi þykktum og gerðum. Gæðin eiga þó að vera þau sömu, þ.e. allir speglar í dag eru spélausir og rakaþolnir. Þykkt speglanna ræðst yfirleitt af því hvernig þeir eiga að festast upp, t.d. 6 mm speglar í festingar, 4 mm speglar í líming- ar og 3 mm speglar t.d. til límingar á skápahurðir. Form speglanna er einnig mismunandi. Áður fyrr voru speglar svo til eingöngu valdir með tilliti til notagildis en nú eru gerðar meiri kröfur til útlits og speglar þá oft og tíðum valdir með tilliti til þess að þeir eigi að vera meira til skrauts. Þá er ýmist brotið upp þetta hefðbundna form, þ.e. spegilllinn er óreglulega lag- aður, eða í hann er sandblásið munstur. Þá er einnig hægt að „facett-slípa", þ.e. slípað er inn á spegilinn 10-50%, mismunandi langt eftir óskum hvers og eins. Einnig er hægt að líma glerhillur utan á spegla. Það er góð lausn því lítið úrval hefur verið af hilluberum fyrir glerhillur. GLER Það fyrsta sem fólki dettur [ hug þegar talað er um gler er gler í gluggum, tvöfalt eða einfalt, en glerið býður upp á meiri möguleika. Það er til í mismunandi þykktum, þ.e. 3-4-5-6-8-10-12 og 15mm þykkt. Þykkt glersins fer eftir því í hvað á að nota það, t.d. 3-6 mm gler í einfalda glugga, eða lítil borð og 8-15 mm 72

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.