AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Side 76

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1996, Side 76
KIRKJURNAR í FÖROYUM Forlagið í Stöplum í Færeyjum hefur nýlega gefið út bókina „Kirkjurnar í Föroyum - Gömlu trækirkjurnar" sem arkitektinn J. P. Gregoriussen, sem er íslend- ingum að góðu kunnur, hefur ritstýrt. Þessi bók er sú fyrsta af fjórum í ritröð um byggingarsögu færeyskra kirkna til ársins 1950. Þessi bók er hið vandaðasta verk og prýdd fjölda litaðra teikninga eftir J. P. Gregoriussen sem sýna bæði aðliggjandi hús, kirkjurnar sjálfar, deiliteikningar af húshlutum, innréttingar og kirkjumuni. Þótt bókin sé rituð á færeysku ætti það ekki að vefjast fyrir íslendingum að lesa þetta ágæta rit. Henni fylgir líka grein eftir Sverre Dahl á dönsku og ensku um timbur- kirkjur í Færeyjum. Færeyskum kirkjum er mikill sómi sýndur með þessari ritröð ef fram heldur sem horfir og gæti hún verið mikilvæg hvatning til íslenskra kirkjunnar manna til þess að standaað álíka verki hér á landi. Full ástæða er líka fyrir íslendinga sem hafa áhuga á kirkju- byggingum að verða sér úti um þessa ritröð, ekki KIRKJURNAR f FÖROYUM GOMLU TRÆKIRKJURNAR J l’ GREGOKIUSSEN FOIU.AGÍD i STÖPLUM síst vegna þess að íslenskur byggingameistari kom þar talsvert við sögu, m.a. þegar dómkirkjunni í Þórshöfn var breytt, um 1860. Ofangreind bók er til sýnis á skrifstofu AVS að Garðastræti 17, Rvk. en hægt að panta hana beint frá Forlaginu í Stoplum í Færeyjum. ■ Hollráð Ætlar þú að veita veðleyfi í þinni íbúð ? Hafðu þá í huga, að veðleyfi jafngildir í raun ábyrgð á viðkomandi láni. Ef lántakandinn greiðir ekki af láninu, þá þarft þú að gera það. Getir þú það ekki, gaeti svo farið að þú misstir þína íbúð á nauðungaruppboð, því standi skuldari ekki í skilum ^ er andvirði íbúðar þinnar notað til að greiða lánið. GETUR ÞÚ GREITT AF LÁNINU EF LÁNTAKANDINN GETUR ÞAÐ EKKI ? Við leggjum til að þú fylgir þeirri reglu að veita aldrei öðrum veðleyfi í íbúð þinni fyrir láni sem þú getur ekki sjálfur greitt af, nema þú sért viss um að lántakandinn muni standa í skilum. FÓLK HEFUR MISST ALEIGU SÍNA VEGNA VINARGREIÐA HÚSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS 74

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.