AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Blaðsíða 10
SIEMENS
f yfir 70 ár hefur Siemens beitt
tækniþekkingu sinni og gert
mönnum heimilisstörfin einfaldari
og þægilegri með því að hanna og
framleiða gæða-heimilistæki.
Nú hugsar enginn lengur með
kvíða til þvottadaganna því að hinar
þýðgengu Siemens-þvottavélar
gera þá að tilhlökkunarefni. Og ekki
dregur það úr ánægjunni ef þurrkari
frá Siemens er einnig á heimilinu.
Kæli- og frystitækin frá Siemens
sjá um að geyma matvælin á sem
bestan hátt, jafnt fersk sem frosin.
Siemens-eldunartækin gera
matreiðsluna jafn-ánægjulega og
máltíðina sjálfa. Og nú hopar
enginn lengur af hólmi þegar að
uppþvottinum kemur. Allir vilja ólmir
fá að raða í Siemens-uppþvottavélina.
Siemens-ryksugurnar gera
laugardagsmorgnana að
sannkölluðum eftirlætisstundum.
Ryksugan í gangi og allt ryk hverfur
sem dögg fyrir sólu.
Vitaskuld eru litlu raftækin frá
Siemens ekki síðri: Hvort sem þig
vantar hrærivél, matvinnsluvél,
handþeytara, kaffivél,
hraðsuðukönnu, gufustrokjárn,
brauðrist, vöfflujárn, eggjasuðutæki,
handryksugu, sjálfvirka
eldhústusku, ...
Nei, nei, bara smágrín!
Að sjálfsögðu færðu einnig
símtækið, þráðlausa símann,
GSM-farsímann og símstöðina frá
Siemens því að Siemens hugsar
fyrir þínum þörfum.
Siemens á heima hjá þér.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 5113000
O
O
8