AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Blaðsíða 41
HUGMYNDAKEPPNI
UM ÚTILISTAVERK í SAMVINNU VIÐ
SÍM
áttur myndlistar í daglegu lífi almenn-
ings fer vaxandi. Þetta sér hver maöur
sem hefur auga fyrir því sem er gott og
fagurt á almannafæri. Myndlist er
menningarauki og myndlist í umhverf-
inu er vissulega annaö og meira en ein-
staka höggmynd af gengnum þjóöhetjum.
Myndlist í umhverfinu hlýtur aö fela í sér endurnýj-
un, - ný verk eftir listamenn samtímans, sprottin úr
þeim jarövegi sem líöandi stund er og þar af leið-
andi verk sem höföa beint til þess fólks sem nú
gengur um götur borgarinnar, - þaö er sú myndlist
sem viö þurfum á aö halda. Þetta er skiln-
ingur þeirra sem nú fara meö stjórn menn-
ingarmála af hálfu Reykjavíkurborgar og
þetta er forsenda þess aö nú er efnt til lok-
aðrar hugmyndakeppni um gerö útilista-
verks í borginni. Ætlunin er aö koma verk-
inu upp á árinu 2000, í tilefni af því aö
Reykjavík verður ein af menningarborgum
Evrópu á því ári.
Menningarmálanefnd Reykjavíkur, sem ég
er formaður í, efnir til þessarar hugmynda-
keppni í samvinnu viö Samband ísienskra
myndlistarmanna (SÍM). í samræmi viö
samkeppnisreglur SÍM eiga allir listamenn
innan sambandsins rétt til þátttöku, en dóm-
nefnd verður skipuö tveimur fulltrúum þaö-
an og þremur frá Reykjavíkurborg.
Keppnin fer þannig fram að auglýst veröur
eftir þátttakendum og veröa margar frum-
hugmyndir valdar úr öllum þeim er berast
kunna. Vænst er mikillar þátttöku og stendur til aö
gefa út á bók þær frumhugmyndir sem valdar
verða. Úr þeim velur dómnefndin síðan fimm hug-
myndir til þátttöku í lokaðri verksamkeppni þar
sem listamennirnir velja fyrirhuguöum verkum sín-
um staöi í borginni. Fyrir þessar fimm hugmyndir
veröa veitt verölaun og úr þeim valið eitt verk til
frekari útfærslu og uppsetningar, ef um semst við
listamanninn.
Ætla má aö þær hugmyndir sem birtast í bókinni
muni skipta tugum, enda er henni ætlað að veröa
heimildarrit sem veitir nokkra yfirsýn um íslenska
umhverfislist um árþúsundamót. Útgáfan er ætluö
öllum þeim sem óska eftir fræösluefni um myndlist
og þá ekki síst skólum. Af hálfu menningarmála-
nefndar er útgáfunni ætlaö aö vera eins konar
framhald af því framtaki Kjarvalsstaöa aö dreifa
því fræðsluefni sem stofnunin hefur gefið út á und-
anförnum árum í skóla í borginni. Þetta hefur
mælst vel fyrir og má líta
á það sem lið í því mikil-
væga starfi aö flytja
myndlistina og fræöslu
um hana út til fólksins, og
auka þannig vægi þess
starfs sem unnið er á
þessum vettvangi.
Áformaö er aö bjóöa
keppnina út mjög fljót-
lega, enda ekki seinna
vænna ef þaö verk sem
valið veröur á aö vera
komið upp áriö 2000.
Myndlistarmenn eiga um
þessar mundir merkilegt
frumkvæöi aö því aö
koma list sinni á framfæri
viö almenning, en Mynd-
höggvarafélagiö stendur
fyrir því aö útilistaverkum veröi komið upp með-
fram allri strandlengju borgarlandsins á listahátíö í
vor. Reykjavíkurborg á aöild aö þessu framtaki
listamanna, eins og vera ber, og er hér komið for-
dæmi aö þeirri stefnu sem fylgt er meö því aö efna
til hugmyndakeppni um útilistaverk. ■
Vœnst er mikillar
þátttöku og stendur
til að gefa út á bók
þœr frumhugmynd-
irsem valdar verða,
Úr þeim velur dóm-
nefndin síðan fimm
hugmyndir til þátt-
töku í lokaðri verk-
samkeppni þar sem
listamennirnir velja
fyrirhuguðum verk-
um sínum staði í
borginni.
39
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, ARKITEKT, form. menningamálanefndar Reykjavíkur