AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1998, Blaðsíða 61
Undirritaður vill ekki dæma um hvort ráðast eigi í
sameiginlega aðstöðu fyrir ráðstefnuhald og tón-
listarhús, en vill benda á ný á að ef uppi eru þank-
ar um slíka samnýtingu, þá er hún fyllilega mögu-
leg í tillögunum um tónlistarhúsið í Laugardalnum.
Tónlistarhúsið í Laugardal liggur í 5 mínútna
gönguleið frá Hótel Esju sem gæti nýst sem gisti-
staður ráðstefnugesta á sama hátt og Loftleiðir og
Saga.
NB: Það er hins vegar í álitsgerðinni ekki minnsta
viðleitni til að kanna möguleika á tengingu ráð-
stefnuaðstöðu við tónlistarhúsið í Laugardal (sbr.
bls. 3 í álitsgerð nefndar um tónlistarhús). Þess
vegna vil ég koma eftirfarandi á framfæri: í tillög-
unni í Laugardal er gert ráð fyrir tvöföldum löngum
streng (stoðvegg) meðfram Suðurlandsbraut sem
gegnir því hlutverki að mynda stoðvegg og móta
landslagshvörf (hæðarmun) milli Suðurlandsbraut-
ar og Laugardalsins. Stoðveggurinn gegnir jafn-
framt hlutverki sem leiðandi veggur með vatnaleið
(„bæjarlækjarsprænan") er leiðir aðkomu bifreiða
og gangandi frá Suðurlandsbraut að anddyri tón-
listarhússins.
Þessi stoðveggur hefur aldrei nýst fyllilega á starf-
rænan hátt. Sjálfsagt væri að nýta þetta rými fyrir
starfsemi með því að breikka bil milli veggjanna.
Hugmynd mín er því næsta einföld að nýta mætti
þennan tvöfalda stoðvegg með því að byggja ráð-
stefnuherbergin á milli veggflatanna, sem byggðir
yrðu hvort eð er sem hluti af heildinni. Þessi fyrsta
skissutillaga gerir ráð fyrir möguleika á 11 fundar-
sölum, þeir minnstu fyrir 30 manns og þeir stærstu
fyrir 72, til samans 540 fundargestir. Fundarað-
stöðuna er hægt að stækka í báðar áttir (breidd og
lengd). Breiðari strengur gæfi stærri fundarher-
bergi ef það þætti kostur. Þessar stærðir miðast
við að rúmlega helmingur strengsins sé nýttur í
fyrstu (1. áfangi) og síðar mætti bæta við eftir þörf-
um (2. áfangi). Heildarhugmynd mundi halda sér
með glæsilegri aðkomuleið með vatns- og gróður-
belti meðfram ráðstefnustrengnum sem liggur að
anddyri tónlistarhússins.
Auðvelt er að bæta við ráðstefnuaðstöðuna síðar
meir ef þarfir verða fyrir hendi, án þess að heildar-
útlit eða hugmyndafræði raskist, vegna sérstöðu
þessarar hugmyndar og hvernig byggingin liggur í
landi. Það er mikill kostur að hægt er að byggja í
áföngum, og ekki þarf að byggja ráðstefnuaðstöð-
una samtímis og tónlistarhúsið ef dreifa þyrfti
stofnkostnaði eða önnur áform um ráðstefnuhald
kæmu upp á pallborðið í millitíðinni.
AÐ LOKUM
Það er því fyllilega ástæðulaust að útiloka bygg-
inguna í Laugardalnum vegna vöntunar á ráð-
stefnuaðstöðu. Þvert á móti býður einmitt bygg-
ingin í Laugardalnum upp á mikla sérstöðu hvað
varðar aðlaðandi aðstöðu til ráðstefnuhalds í
tengslum við fallegan iðgrænann Laugardalinn og
fjallasýn á móti Esju. Undirritaður vill eindregið
benda ráðamönnum á að allir valkostir hafa ekki
verið skoðaðir fyrr en þessi tillaga mín er athuguð
og álitsgerðin því nánast marklítil. ■
GAGNABANKI
BYGGINGAR-
ÞJÓNUSTUNNAR
www.bygging.is
59