AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Blaðsíða 11
G E S T U R
ÓLAFSSON
Svsedísskripulag
höfudborgar-
svæðrisrins
því svæðisskipulagi sem nú er unnið að fyrir
höfuðborgarsvæðið er enn verið að reyna að átta
sig á núverandi stöðu þessa svæðis og hugsanle-
gri framtíð þess í þeirri von að fólk geti betur búið
sig undir komandi ár og ártugi og nýtt betur tak-
markað fjármagn. Gott skipulag þessa svæðis er
einnig tvímælalaust eitt mesta hagsmunamál allra þeir-
ra sem búa á höfuðborgarsvæðinu.
Samt er það engan veginn auðvelt verk að leiða þetta
mál til farsælla lykta og móta sameiginlega, heildstæða,
bindandi stefnu fyrir þetta svæði til næstu áratuga, eins
og ætlunin er með svæðisskipulaginu. Ástæðan fyrir
þessu er sú að ef litið er á svæðið í heild, óháð sveitar-
félagamörkum koma í Ijós talsvert aðrir hagsmunir og
möguleikar á lausnum en ef einungis er horft á hvert eitt
sveitarfélag og reynt að leysa flest mál innan þess
ramma. Það er samt fyrst og fremst með því að líta á
þetta svæði í heild sem hægt er að ná umtalsverðum
árangri viðvíkjandi æskilegri framtíðarþróun þess.
Reynslan hefur sýnt að sveitarstjórnarmenn sem
kosnir eru til áhrifa í einstökum sveitarféllögum eiga
mjög erfitt með að setja hagsmuni heildarinnar ofar
hugsanlegum hagsmunum síns sveitarfélags. Þarna
hefur hnífurinn oft staðið í kúnni undanfarna áratugi.
Hér hefur skort heildstæða, samræmda stefnu, þótt
ákveðin samvinna hafi að vísu náðst í ákveðnum
málaflokkum. Þótt þetta svæði skiptist nú í átta sveitar-
félög er það ekki aðalatriði í hugum flestra sem hér búa.
Það sem skiptir þá hins vegar mestu máli er að hér rísi
byggt umhverfi á heimsmælikvarða, hagkvæmt, öruggt,
með góðu samgöngukerfi og góðu aðgengi að atvinnu,
þjónustu og útivist fyrir alla aldurshópa. Áhrifasvæði
höfuðborgarsvæðisins takmarkast heldur ekki bara við
þau átta sveitarfélög sem aðild eiga nú að þessari
skipulagsvinnu. Á höfuðborgarsvæðinu er þjónustu-
miðstöð landsins alls og daglegt áhrifasvæði þess nær
allt frá Borgarnesi um Selfoss, Hveragerði og Þorláks-
höfn til Keflavíkur.
Gott svæðisskipulag verður ekki til af sjálfu sér. Það
verður ekki til með því einu að flytja inn erlendar lausnir
eða í viðræðum milli stjórnmálamanna á þessu svæði.
Nútíma skipulag er talsvert flókin fjölfræðigrein sem
hefur verið kennd við háskóla víða um heim í hart nær
hundrað ár. Við íslendingar komum að skipulagi þétt-
Almenningur gerir nú æ háværari kröfu um að fá að vita
hver beri faglega ábyrgð á skipulagi.
A þessum gatnamótum hafa orðið tvö banaslys, það sem af
er þessu ári.
býlis langt á eftir flestum öðrum þjóðum og höfum þurft
að tileinka okkur þessa þekkingu svo fljótt sem auðið er
og nýta okkar sérfræðinga á þessu sviði eftir föngum.
Stjórnmálamenn geta hér, eðli málsins samkvæmt, ein-
ungis tekið pólitíska ábyrgð á þessari vinnu. Hin faglega
ábyrgð hlýtur að hvíla á herðum þeirra skipulagsfræðin-
ga sem hér koma að verki, en þeirra sérþekking fels
m.a. í því að móta þannig heildstæða stefnu. Hér er
engin ástæða til að hafa minnimáttarkennd gagnvart
erlendum skipulagsfræðingum, enda eigum við sjálf vel
menntaða skipulagsfræðinga frá bestu háskólum bæði
austan hafs og vestan. Þessu starfi fylgir mikil ábyrgð
og almenningur á höfuðborgarsvæðinu á líka heimtingu
á að fá að vita hvaða skipulagsfræðingar bera faglega
ábyrgð á því skipulagi sem endanlega verður samþykkt
fyrir höfuðborgarsvæðið.
Einstaklingar og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu ættu
einnig að fá upplýsingar um hvaða áhrif mismunandi
þróunarhugmyndir hafa á ákveðin svæði og sveitar-
félög. Slíkt mat er ekki síður nauðsynlegt en umhverfis-
mat, áður en þessi mál eru endanlega afgreidd enda
skiptir skipulag höfuðborgarsvæðisins alla íslendinga
máli. Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins er líka
verkefni sem við getum ekki afgreitt með áhlaupi erlend-
ra sérfræðinga á 20 ára fresti frekar en við getum læk-
nað alla sjúklinga á íslandi í eitt skipti fyrir öll.
Endanlega öxlum við sjálf ábyrgð á því hvernig tekst til
með þetta verk. íslensk fyrirtæki og almenningur greiða
fyrir þessa skipulagsvinnu og á þeim lenda þegar upp er
staðið bæði jákvæðar og neikvæðar afleiðingar þessa
svæðisskipulags. ■
9