AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Síða 30
og porti Hafnarhússins), auk hins sérstæða og
skemmtilega sýningarrýmis í Ásmundarsafni.
Þetta aukna húsnæði gerir Listasafni Reykja-
víkur loks mögulegt að sýna listaverkaeign sína
með verðugum hætti. í safninu er að finna milli 13
og 14 þúsund listaverk, en þar ber auðvitað hæst
hin stóru sérsöfn, Kjarvalssafnið (sem telur rúm-
lega fimm þúsund verk), Errósafnið (rúmlega þrjú
þúsund verk) og Ásmundarsafnið (um tvö þúsund
og átta hundruð verk). Auk þess starfar við safnið
sérstök byggingalistardeild, sem varðveitir mikinn
fjölda sérsafna teikninga, líkana og uppdrátta sem
eru lykilgögn fyrir rannsóknir á sögu byggingalistar
á íslandi á 20. öld.
Með tilkomu Hafnarhússins má segja að öll
þessi sérsöfn eignist loks heimilisfestu innan
Listasafns Reykjavíkur. Höggmyndir Ásmundar
Sveinssonar njóta sín að sjálfsögðu best í hús-
næðinu og garðinum við Sigtún, þar sem áður var
heimili listamannsins. Nú hefur verið sett upp föst
sýning á úrvali úr verkum Jóhannesar S. Kjarvals
í austursal Kjarvalsstaða (sem var opnuð í janúar
sl.), og verður hér eftir ætíð hægt að ganga að
verkum hans þar, þó sú sýning eigi eftir að þróast
á komandi árum. Errósafnið verður í framtíðinni
sýnt með svipuðum hætti í tveimur sölum Hafnar-
hússins, en ætlunin er að bjóða það velkomið til
nýrra heimkynna með stórri yfirlitssýningu í öllu
húsinu sumarið 2001. Loks verða sérsýningar úr
almennri listaverkaeign Listasafnsins settar upp í
1-3 sölum Hafnarhússins,eftir því sem verkefni og
hugmyndir gefa tilefni til.
Samhliða þessum breytingum á starfsemi Lista-
safns Reykjavíkur verða eftir sem áður næg tæki-
færi til að hýsa tímabundnar sýningar innlendrar
og alþjóðlegrar listar í vestursal og miðrými Kjar-
valsstaða. Auk þess munu 1-3 salir Hafnarhússins
verða notaðir undir slíkar sýningar, enda bjóða
þeir upp á mismunandi möguleika sem mikil þörf
er á við framsetningu nútímalistar. Einnig mun fjöl-
notarýmið og útisvæði safnsins bjóða upp á ýmis
áður óþekkt tækifæri, en þar hafa þegar farið fram
fyrirlestrar, tónleikar, gjörningar og danssýningar
auk hefðbundnari sýninga, en nú á haustmánuð-
um (september og október) er þar t.d. í gangi sér-
stakt tölvuver (caf9.net), þar sem er að finna sér-
staka dagskrá um kynningu listaverka, samstarf
listafólks og sköpun listaverka með þátttöku lista-
manna og almennings í 8 af menningarborgum
Evrópu árið 2000.
Þessi fjölbreytta starfsemi er góð vísbending um
þá möguleika sem Listasafn Reykjavíkur hefur nú
upp á að bjóða. Tilkoma Listasafns Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu verður því vonandi til að efla listalíf í
borginni samhliða því að auka áhuga borgarbúa
og gesta Reykjavíkur á að njóta lista og menning-
ar við bestu mögulegu aðstæður í framtíðinni. ■
THE NEW REYKJAVÍK MUNICIPAL
ART MUSEUM
The Reykjavík Municipal Art Museum
opened new premises this past spring, in the
Reykjavík city centre. This article, written by
gallery director Eiríkur Þorláksson, details the
vast benefits of the new premises for the
gallery. These benefits include the possibility
of exhibiting more systematically the
gallery’s own collection, and being able to
accommodate more easily certain art forms
and cultural events which previously posed a
problem for art galleries in Iceland. The new
premises also have an outdoor exhibition
area, which is unique in Iceland and which
opens up new possibilities for sculpture exhi-
bitions, for example.
The article also discusses other spaces that
the Reykjavík Municipal Art Museum has at
its disposal, such as Ásmundarsalur and
Kjarvalsstaðir, and the role that is planned for
those in the future. ■
28