AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Blaðsíða 28
EIRÍKUR ÞORLÁKSSON, FORSTÖÐUMAÐUR
Listasafn Reykjavíkur
Hafnarhús
V /l eð opnun Listasafns Reykja-
\ / víkur í Hafnarhúsinu við
\ / Tryggvagötu í apríl sl. opnuð-
\ / ust nýir möguleikar til sýning-
\ / arhalds í Reykjavík, og öll
V starfsemi safnsins fékk auk-
inn byr í seglin.
Með opnun Hafnarhússins meira en tvöfaldaðist
sýningarrými safnsins, sem verður til þess að
mögulegt verður að kynna með skipulegri hætti en
áður hina miklu listaverkaeign safnsins. Auk þess
öðlaðist safnið sérstakan vettvang til að þjóna
mun betur en áður myndlist sem orðið hefur til
undanfarna áratugi og byggir á tækni og framsetn-
ingu, sem var nær óþekkt fyrir tveimur áratugum;
nú verður einnig hægt að hýsa í safninu fjölbreytta
menningarviðburði og uppákomur, sem áður var
erfitt að setja upp í listasöfnum hér á landi. Loks
býður Hafnarhúsið upp á útisýningarsvæði, sem
er einstakt fyrir íslenskt listasafn, og getur því
orðið mikil lyftistöng fyrir höggmyndlist í landinu.
Listasafn Reykjavíkur starfar nú á þremur stöð-
um í borginni, því auk Hafnarhússins eru Kjarvals-
staðir á Miklatúni og Ásmundarsafn við Sigtún
hlutar þess, en jafnframt hefur safnið umsjón með
úti listave rku m Reykjavíku rborgar.
Segja má að það safn listaverka sem Reykja-
víkurborg hafði eignast í gegnum árin hafi fyrst
fengið heimilisfestu árið 1973, þegar Kjan/alsstað-
ir voru opnaðir. Þar er að finna tvo stóra sýningar-
sali, sem strax urðu mjög eftirsóttir, en fyrstu tvo
áratugina voru þeir leigðir einkaaðilum til sýninga
samhliða því sem settar voru upp sýningar á
vegum húsráðenda.
26