AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Blaðsíða 61
Keflavik International and
National Alrport
Air-flight infrastructure
Reykjavik to Keflavik Airport
monorail infrastructure
Air-flight infrastructure to Asian Polar Shipping
economic markets Fast iransport through the polar
f region from eastern America
and Europe.
Reykjavik infracity
Intersection node in the global
economic network
Reykjavik International
Econormc Area. a tax free area
2. Einteinungs lestarkerfi Reykjavíkur tengir saman borg og alþjóðainnribyggingu flugallar - og Hafnarstæða.
Sérhæfðar borgir eru, eins og nafnið bendir til,
svæði tengd alþjóðainnribyggingum með einhæft
sérsvið sem sóst er eftir á alþjóðavettvangi. Dæmi
um slíkar sérhæfðar borgir er Silicon Valley (tölvu-
svið) og Las Vegas (ferðaiðnaður).
Virk alþjóðainnribyggingarhnit eru flóknari en þó
eru grunnkröfur sem þau verða að standast.
1. Pólitískt alþjóðaumhverfi; meðlimur í tollfrjáls-
um samtökum og öðrum alþjóðaefnahagskerfum.
2. Pólitískt / efnahagslegt jafnvægi og aðdráttar-
afl.
3. Borgarumhverfi; með aðgang að borgarþjón-
ustu og menntuðu starfsafli.
4. Beintengt alþjóðainnribyggingu; alþjóða lestar-
kerfi / flugvöllur / höfn í borg, eða beintengd borg
með járnbraut.
5. Virk borgarinnribygging; vel skipulögð, hröð, og
fjölbreytileg innribygging.
6. Landlæg staðsetning miðað við alþjóðainnri-
byggingu (krossgötur, millistaður, nálægð við mik-
ilvæga alþjóðainnribyggingu, os.frv.)
ísland stenst mikið af þessum kröfum í megin-
atriðum, fyrir utan beina tengingu milli borgar og
alþjóðaflugvallar. Verkefnið leggur til að áhrif þeir-
ra þátta sem eru uppfylltir verði aukin, og að leyst
verði úr þeim þáttum sem ekki eru uppfylltir:
1. Að landið leiti eftir þáttöku í NAFTA og / eða Frí-
verslunarsamtökum Asíu með sambærilegan
samning og EES samninginn í huga. Þetta mun
gera borgina (og þar með landið) að heitu hniti í al-
þjóðanetinu.það er: millistaðsetning í alþjóða innri-
byggingu.
2. Að skapað verði skatt- / tollfrjálst- alþjóðasvæði
(Svæði 1) í Reykjavík með beina tengingu við al-
þjóðaflugvöll (sjá einnig lið 5).
3. (Sjá lið 2).
4. Að Reykjavík verði tengd alþjóða innribygging-
um.
a) Flugvöllur: Helsta þörf Reykjavíkur er bein-
tenging við alþjóðaumhverfi. Fyrsta tillaga er að
Keflavíkurflugvöllur og Reykjavík verði tengd með
járnbraut (rafmagnseinteinung) til að skapa heil-
steypta alþjóðainnribyggingu í Reykjavík.
b) Höfn: Síðustu árin hafa erlend fyrirtæki rann-
sakað flutningaleiðir frá Evrópu og austanverðri
Ameríku til Asíu í gegnum norðurpólssvæðið.
Norðurskautsleiðin með ísbrjót-flutningaskipum er
mun styttri og fljótfarnari en aðrar siglingaleiðir.
Skip og búnaður eru þegar til staðar, en enn er
þörf fyrir milliskipunarhöfn milli venjulegra flutn-
ingaskipa og hinna sérhæfðu ísbrjóta-flutninga-
skipa. Krafan fyrir slíka höfn er að þar sé aðgang-
ur að þjónustu og sérhæfðu vinnuafli (borgarum-
hverfi), ásamt fullkominni uppskipunar- og flutn-
ingsinnribyggingu. Lagt er til að hin nýju áformuð-
u hafnarstæði við Geldinganes geti uppfyllt öll skil-
59