AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Blaðsíða 84
TILGANGUR MEO SVÆÐISSKIPULAGI
í verklýsingu útboðsgagna segir: „Með gerð
svæðisskipulags er ætlun sveitarfélaganna að
móta sameiginlega stefnu fyrir höfuðborgarsvæð-
ið hvað varðar landnotkun og þróun byggðar, sam-
göngumál, landslagsskipulag og yfirbragð byggð-
ar, umhverfismál og samfélagslega þróun.”
Á höfuðborgarsvæðinu fer fram margvísleg
samvinna á milli sveitarfélaganna í ýmsum mála-
flokkum. Snertifletirnir eru margir í þéttbýli sem að
mestu er samvaxið og brýn nauðsyn að samræma
ýmsa þætti á tímum örrar þróunar. Flest bendir til
að þessi þróun haldi áfram og ef ekkert verður að
gert má gera ráð fyrir óhagkvæmri byggðarþróun
með óhagstæðum fjárfestingum í samgöngu- og
þjónustukerfum.
Til frekari upplýsingar er vísað í avs, 3-4 tölu-
blað 1999, og heimasíðu svæðisskipulagsins á
eftirfarandi veffangi: www.svaedisskipulag. ssh. is
eða heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu: www. ssh.is .
Núverandi staða
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins er ennþá
í vinnslu.
Um þessar mundir verið að leggja lokahönd á
tillögu ráðgjafa til kynningar í aðildarsveitarfélög-
unum.
Þegar fyrri grein var skrifuð lá fyrir til umfjöllunar
hjá sveitarfélögunum skýrsla um greiningu gagna
þar sem dregnar eru fram nauðsynlegustu fors-
endur og markmið verkefnisins og svonefndar
kjörtillögur, fimm talsins, teknar til áhrifamats. í
kjörtillögunum voru metin mismunandi áhrif þess
ef byggð þróast meira til suðurs eða norðurs t.d.
varðandi landnýtingu og uppbyggingu landsvæða,
gerð byggðar,blöndun byggðar, þéttingu byggðar,
þéttleika á einstökum landsvæðum, kjarnamynd-
anir, áhrif umferðar og umhverfismál.
Eftir nauðsynlega umfjöllun um kjörtillögurnar í
sveitarfélögunum og unnið hafði verið úr athuga-
semdum þeirra voru í maímánuði s.l. lögð fram
fyrstu drög að endanlegri tillögu að svæðisskipula-
gi fyrir höfuðborgarsvæðið.
í ágúst s.l. komu út endurskoðuð drög að
svæðisskipulagstillögu í formi korta, aðalgreinarg-
erðar og sjö fylgirita. í aðalgreinargerð eru helstu
umfjöllunaratriði tillögunnar dregin fram og í fylgi-
ritum er fjallað nánar um einstaka málaflokk
Eftirtalin fylgirit hafa verið gefin
út:
Fylgirit 1, Byggðin og landslagið
Fylgirit 2, Tölulegar forsendur
Fylgirit 3, Endurnýjun og þróun borgar
Fylgirit 4, Umferðarspár
Fylgirit 5, Umhverfisstefna
Fylgirit 6, Framkvæmdakostnaður
Fylgirit 7, Framkvæmd skipulagsins
Þau drög sem nú liggja fyrir eru tillaga ráðgjafa.
Áður en samvinnunefnd um svæðisskipulag fyrir
höfuðborgarsvæðið tekur tillöguna til formlegrar
samþykktar skal hún kynnt opinberlega skv. 13 gr.
skipulags- og byggingarlaga. Samvinnunefnd
sendir tillöguna jafnframt til viðkomandi sveitar-
stjórna til yfirferðar og samþykktar og gerir hana
að sinni eftir að hafa yfirfarið, gert nauðsynlegar
breytingar og samþykkt hana formlega.
Samtímis er tillagan til athugunar hjá Skipulags-
stofnun.
Vegna mikillar umræðu og óvissu í sambandi við
stöðu Reykjavíkurflugvallar í svæðisskipulaginu
óskaði samvinnunefnd eftir því að unnin yrði sér-
stök athugun sem byggði á þeirri forsendu að
flugvöllurinn yrði fluttur eftir lok núverandi gildis-
tíma Aðalskipulags Reykjavíkur, árið 2016, og
flugvallarsvæðið tekið undir byggð. Ráðgjafar
gerðu tillögu sem reiknar með tiltölulega þéttri
byggð íbúðar- og atvinnuhúsnæðis á svæðinu í
tengslum við miðborg Reykjavíkur, Fláskóla ís-
lands og Landspítala.
Auk þess er í vinnslu á vegum samvinnunefndar
sérstök skoðun innlendra og erlendra sérfræðinga
á mismunandi valkostum í flugvallarmálinu. Niður-
stöðu er að vænta í byrjun nóvember.
Þá hefur verið ákveðið að stofna til kosningar/
skoðanakönnunar um framtíð Reykjavíkurflugvall-
ar í byrjun desember. Sérstök samstarfsnefnd
vinnur að málinu og búast má við niðurstöðu fyrir
áramót.
Samkvæmt núgildandi tímaáætlun fyrir svæðis-
skipulagið er gert ráð fyrir því að í byrjun árs 2001
verði allar forsendur skýrar, þar með talin ákvörð-
un um framtíð flugvallarsvæðisins, þannig að
samvinnunefnd geti samþykkt endanlega tillögu til
kynningar. Þá má reikna með að lokaútgáfa
svæðisskipulagstillögu verði auglýst formlega skv.
lögum í febrúar n.k. og staðfest af umhverfisráð-
herra á útmánuðum.
82