AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Blaðsíða 53
dómnefndar lá fyrir voru allar tillögur skoðaðar
vandlega og gerðar umsagnir endurskoðaðar.
Það var álit dómnefndar, að tillaga nr. 39 hafi
öðrum tillögum fremur náð fram þeim mark-
miðum sem sett voru fram í keppnislýsingu. í
niðurstöðu sagði m.a.:“Heildarlausn verkefnis
er mjög góð, grunnmynd er í heild ákaflega vel
leyst og bygging er hagkvæm í byggingu og
rekstri. Höfundar reyndust vera arkitektarnir
R.Ó. og G.S.
Byggingin
Sú lausn, sem höfð hefur verið að leiðarljósi
við hönnun þessa mannvirkis, eru þær
andstæður sem finnast í náttúru Reykjaness
og nærvera við Bláa lónið og orkuverið.
Hraunbreiða einkennir umhverfið framan við
orkuverið. Tæknivædd byggingin aðlagast
þessum staðháttum þar sem orkuverið myndar
kröftugan bakgrunn. Meginmarkmið er einföld
og skýr aðgreining gesta og starfsmanna
ásamt sveigjanlegu innra skipulagi.
Einkennandi í innri skipan er tvískipting í starf-
smannahluta annars vegar og ráðstefnu- og
sýningarhluta hins vegar. Starfsmannahlutinn
er í beinum tengslum við orkuverið, en kyn-
ningar- og móttökuhlutinn er eins konar
framhald af meginaðkomu gesta, Þessi aðko-
ma er skýrt aðgreind frá athafna- og aðko-
musvæði orkuversins. Þannig er viss ró yfir
starfsemi hússins þrátt fyrir nærveruna við tröl-
lauknar vélar orkuversins. Meginhlutar eru
salirnir og löng lægri bygging, þjónustu-
byggingin. Þjónustubyggingin tengir starfsemi-
na saman með þjónustu- og tæknirýmum sem
þjóna allri byggingunni. Eldhúsið er staðsett
miðsvæðis og er þaðan greiður aðgangur til
allra hluta hússins. Innra skipulag er sveigjan-
legt, og eru salirnir skýrt afmarkaðir og sam-
nýtanlegir. Efnisval endurspeglar víða tengslin
við nátttúruna. Segja má að náttúran sé í snert-
ingu við bygginguna og skapi þar andstæður í lit
og áferð. Fínslípað grjót, vatn, viður og úfið
hraun. Þegar inn í forsalinn er komið, taka salirnir
við og opnast mót hraunbreiðunni. Sérhæfður
búnaður getur byrgt þessa sýn og stjórnað birtu
eftir aðstæðum og þörfum hverju sinni. Öll er
byggingin staðsteypt og einangruð að utanverðu.
Því næst er hún klædd álklæðningum eða stein-
mulningi sem mynda samspil en um leið and-
stæður. Stórir glerfletir og ákveðnar lausnir inn-
andyra undirstrika svo tengslin við sérstætt um-
Ljósmyndir í grein teknar af Oddgeiri Karlssyni.
hverfið.
Gjáin
í hönnunarferli byggingarinnar þróaðist hugmynd
sem smám saman tók á sig fastari mynd. Á svæð-
inu þótti viðeigandi að kynna orkumál, jarðhita og
jarðfræði. Undir byggingunni var ákveðið að koma
upp sýningaraðstöðu sem fullnægði þessum þörf-
um. Um áramótin 2000 var sýningaraðstaða í
Gjánni opnuð. Sýningin leiðir áhorfandann frá
hinni almennu jarðfræði jarðarinnar, gegnum jarð