AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Blaðsíða 72
ÞÓRUNN SVEINSDÓTTR, SJÚKRAÞJÁLFARI
,ve
A'
Evrópska vínnuverndarvikan 2000
BAKVERKINN BURT
- Þáttur hönnuða -
tengslum við Evrópsku
vinnuverndarvikuna sem er
nýliðin hefur komið fram að
tæplega fjórðungur starfs-
manna í löndum Evrópu-
sambandsins er fjarverandi
árlega vegna atvinnutengdrar
vanheilsu. Alls tapast um 600
milljónir vinnudaga á ári vegna
þessa. Kannanir sýna að al-
gengustu vinnutengdu óþæg-
indin eru bakverkir, streita og
vöðvaverkir í hand- og fótleggj-
um. Enn er algengt að starfs-
menn vinni við slæmar vinnu-
aðstæður sem fela í sér óheppi-
legt álag, t.d. síendurteknar
vinnuhreyfingar, mikinn vinnu-
hraða, óþægilegar vinnustell-
ingar, einhæfa vinnu með stutt-
um vinnuferlum og að hand-
leika þungar byrðar (1). ísland
var ekki aðili að framangreindri
könnun. Ekki er þó nein ástæða
til að ætla að ástandið hérlendis
sé betra en í grannlöndunum því rannsóknir sem
gerðar hafa verið meðal þjóðarinnar og starfshópa
sýna að óþægindi frá hreyfi- og stoðkerfi eru
býsna algeng (2,3,4).
Ábyrgð hönnuða
Hinn gífurlegi kostnaður vegna veikindafjarvista
hefur án efa átt sinn þátt í að athyglin hefur í sí-
auknum mæli beinst að áhrifum vinnu og vinnu-
umhverfis á heilsu og vellíðan starfsmanna. Fram-
angreind könnun gefur glöggt til kynna að starfs-
menn verða fyrir óheppilegu álagi vegna óheppi-
legs vinnuskipulags og vinnuaðferða og slæmrar
vinnuaðstöðu.
í lögum um aðbúnað, hollustu og öryggi á vinnu-
stöðum (nr. 46/1980) kemur skýrt fram að hönn-
uðir hafa mikilli ábyrgð að gegna í hönnun vinnu-
staða og vinnuumhverfis. Sam-
kvæmt lögunum skulu þeir
taka tillit til góðs aðbúnaðar,
hollustuhátta og öryggis við
hönnun búnaðar, framleiðslu-
samstæða, húsnæðis og
annarra mannvirkja tengdra
atvinnurekstri. Ýmis önnur
ákvæði laganna ná að sjálf-
sögðu einnig til hönnunar þó
þess sé ekki sérstaklega getið,
t.d. þar sem fjallað er um til-
högun og framkvæmd vinnu.
Ýmsar reglur hafa verið sett-
ar á grundvelli laganna sem
kveða nánar á um skyldur að-
ila. Brýn nauðsyn er fyrir alla
þá er leggja stund á hönnun að
kynna sér gildandi reglur en
þær er að finna á heimsíðu
Vinnueftirlitsins (www.ver.is).
Reglur sem taka sérstaklega til
forvarna gegn álagseinkennum
eru Reglur um öryggi og holl-
ustu við að handleika byrðar
(5) og Reglur um skjávinnu (6). í reglum um hús-
næði vinnustaða eru ýmis ákvæði sem eiga að
stuðla að góðri vinnuaðstöðu með tilliti til líkam-
legs álags og er þar m.a. fjallað um stillanleika
búnaðar til að mæta þörfum einstakra starfs-
manna. Einnig skal bent á að í reglum um vélar og
tæknilegan búnað eru skýr ákvæði um öryggi og
heilsuvernd sem taka þarf tillit til við hönnun.
Breytingar á vinnuverndarlögun-
um
Á næstunni er að vænta breytinga á vinnuvernd-
arlögunum sem fela m.a. í sér skýrari ákvæði en
áður um að markvisst skuli unnið að forvörnum.
Ný lagaákvæði gera atvinnurekanda skylt að gera
skriflegt mat á áhættuþáttum í vinnuumhverfinu og
áætlun um forvarnir í samráði við fulltrúa starfs-
BAKVERKINN
BURT!
Átak gegn
atvinnutengdum
álagseinkennum í vöðvum
og liðum
(
Vinnuverndarvikan
23. - 27. október
VINNIJEFTIRLITIÐ
lutpy/www.ver.is
70